Lög brotin og rangar upplýsingar veittar í Braggamálinu

Skýrsla innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar er því sem næst sam­felldur áfell­is­dómur yfir aðkomu borg­ar­kerf­is­ins að end­ur­bygg­ingu hús­anna að Naut­hóls­vegi 100.

Áfellisdómur
Áfell­is­dómur Skýrsla innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar um fram­kvæmdir við end­ur­bygg­ingu bragg­ans í Naut­hóls­vík er svört. Mynd: Davíð Þór

Lög voru brotin, verk­ferlar voru ekki virtir, ekki var farið að inn­kaupa­reglum Reykja­vík­ur­borgar, borg­ar­ráði voru veittar vill­andi og jafn­vel rangar upp­lýs­ingar, samn­ingar um verk­efni voru ekki skrif­legir og þeir gerðir við vini og kunn­ingja þeirra sem stóðu að fram­kvæmd­inni. Þetta er meðal nið­ur­staðna í skýrslu innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar um end­ur­bygg­ingu bragga við Naut­hóls­veg 100 og sam­liggj­andi húsa. Skýrslan sýnir fram á alvar­legar brotala­mir er snúa að þætti Reykja­vík­ur­borgar við fram­kvæmdir í bragga­mál­inu svo­kall­aða. Þá kemur fram að bæði borg­ar­rit­ari og borg­ar­stjóri hafi van­rækt stjórn­un­ar­legar skyldur sínar og beri ábyrgð, í það minnsta að hluta, á þeim frá­vikum sem urðu við fram­kvæmd­irnar.

Greint var frá því í sept­em­ber síð­ast­liðnum að kostn­aður end­ur­bygg­ingar hús­anna þriggja sem um ræðir væri kom­inn langt fram úr þeirri kostn­að­ar­á­ætlun sem unnið var eftir. Frum­kostn­að­ar­á­ætlun, sem gerð var sum­arið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár