Nálgast Klaustursmálið með allt öðrum hætti en akstursgreiðslur Ásmundar

Hæf­is­reglur stjórn­sýslu­réttar virð­ast hvergi hafa komið við sögu þegar for­sætis­nefnd afgreiddi erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna.

Nálgast Klaustursmálið með allt öðrum hætti en akstursgreiðslur Ásmundar

Nefnd­ar­menn for­sætis­nefndar Alþingis virð­ast ekki hafa metið hæfi sitt með til­liti til hæf­is­reglna stjórn­sýslu­réttar þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um akst­urs­kostnað Ásmundar Frið­riks­sonar og ann­arra þing­manna var afgreitt í haust og vísað frá.

Forseti og vara­for­setar Alþingis til­kynntu í gær að þeir hefðu ákveðið að segja sig frá umfjöllun um Klaust­urs­málið vegna van­hæfis, meðal ann­ars vegna ummæla sem þau höfðu áður látið falla um fram­göngu þing­manna Mið­flokks­ins. 

Telja nefnd­ar­menn­irnir sig þurfa að fylgja hæf­is­reglum stjórn­sýslu­réttar við afgreiðslu Klaust­urs­máls, meðal ann­ars regl­unni um sér­stakt hæfi, og beygja sig undir sam­bæri­legar kröfur og gerðar eru til úrskurð­ar­nefnda í stjórn­sýslu.

Að mati þing­for­seta leiðir þetta óhjá­kvæmi­lega af fyr­ir­mælum 17. gr. siða­reglna þing­manna um að for­sætis­nefnd skuli „gæta þess að máls­með­ferð siða­reglu­mála sé í sam­ræmi við meg­in­reglur um óhlut­drægni og vand­aða og rétt­láta máls­með­ferð“. 

Athygli vekur að þing­menn sem tjáðu sig frjáls­lega um akst­urs­kostnað og tengd mál­efni, t.d. Brynjar Níelsson 2. vara­for­seti sem kom Ásmundi Frið­riks­syni til varnar á Facebook í febr­úar, töldu ekki ástæðu til að segja sig frá afgreiðslu máls­ins í for­sætis­nefnd. Nú í Klaust­urs­mál­inu telja þing­menn hins vegar til­efni til að beygja sig undir strangar hæfis­kröfur hlið­stæðar þeim sem gilda um úrskurð­ar­nefndir í stjórn­sýslu.

Björn Leví Gunn­ars­sonþing­maður Pírata

Í upp­haf­legu erindi Björns Levís til for­sætis­nefndar, sem hann sendi þann 21. febr­úar 2018, óskaði hann þess sér­stak­lega að for­sætis­nefnd tæki rök­studda afstöðu til hæfis nefnd­ar­manna. Í svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar þing­for­seta var hvergi vikið að hæf­is­reglum stjórn­sýslu­réttar en bent á að Alþingi hefði falið for­sætis­nefnd það hlut­verk að fjalla um mál sem varða siða­reglur alþing­is­manna, fram­kvæmda þeirra og brot á þeim, sbr. 2. mgr. 88. gr. þing­skapa. 

„Auk þessa gera lög um þing­far­ar­kaup og þing­far­ar­kostnað sér­stak­lega ráð fyrir því að for­sætis­nefnd úrskurði um ágrein­ings­mál sem upp kunna að koma við fram­kvæmd end­ur­greiðslna þing­far­ar­kostn­aðar, þ.m.t. ferða­kostn­aðar. Nefnd­ar­menn í for­sætis­nefnd verða því almennt ekki úti­lok­aðir frá því að fjalla um ein­stök álita­mál tengd siða­regl­unum, né um meint brot ein­stakra þing­manna á þeim,“ segir í svar­inu frá 8. maí 2018 þar sem erindi Björns Levís var vísað frá. „Af almennum reglum leiðir hins vegar að varði mál nefnd­ar­mann sér­stak­lega, víkur hann úr sæti ann­að­hvort af eigin frum­kvæði eða að und­an­gengnum úrskurði for­sætis­nefndar.“ 

„Nefnd­ar­menn í for­sætis­nefnd verða því
almennt ekki úti­lok­aðir frá því að fjalla
um ein­stök álita­mál tengd siða­regl­unum“

Björn Leví segir í sam­tali við Stundina að sam­kvæmt þeim nýju við­miðum sem for­sætis­nefnd beygir sig undir í Klaust­urs­mál­inu hljóti þing­menn­irnir að hafa einnig verið van­hæfir til umfjöll­unar um erindi hans um akst­urs­greiðslur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aksturskostnaður þingmanna

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár