Bára afhendir siðanefnd Alþingis hljóðupptökurnar af Klaustri

Upp­ljóstr­ar­inn af Klaustri svar­aði kalli skrif­stofu Alþingis og afhenti frum­gögnin í Klaust­urs­mál­inu til að auð­velda siða­nefnd að fjalla um málið.

Bára afhendir siðanefnd Alþingis hljóðupptökurnar af Klaustri
Afhendir upp­tökur Bára Hall­dórs­dóttir hefur afhent siða­nefnd Alþingis upp­tök­urnar sem hún gerði á Klaustri Bar, þar sem sex þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins töl­uðu með niðr­andi hætti um konur, sam­kyn­hneigða og fatl­aða. Mynd: Elín Edda Þorsteinsdóttir

Bára Hall­dórs­dóttir, konan sem sat skammt frá sex þing­mönnum á Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og hljóð­rit­aði sam­skipti þeirra, hefur afhent skrif­stofu Alþingi hljóð­upp­tök­urnar vegna umfjöll­unar for­sætis­nefndar og siða­nefndar Alþingis um málið. 

For­stöðu­maður laga­skrif­stofu Alþingis hafði sam­band við Stundina, DV og Kvenna­blaðið í síð­ustu viku og óskaði eftir gögn­unum fyrir hönd þing­for­seta. Stundin greindi Báru frá beiðn­inni og ákvað hún nú um helg­ina, eftir að hafa stigið fram undir sínu rétta nafni í við­tali við Stundina, að afhenda hljóð­upp­tök­urnar til að siða­nefndin gæti byggt vinnu sína á frum­gögnum.

For­sætis­nefnd Alþingis tók hátt­erni þing­mann­anna sex til umfjöll­unar á fundi sínum þann 3. des­em­ber og sam­þykkti að leita álits hinnar ráð­gef­andi siða­nefndar á grund­velli 16. gr. siða­reglna alþing­is­manna. Í bókun for­sætis­nefndar er þing­for­seta og skrif­stofu Alþingis falið að „ganga svo frá málum næstu daga að erindið fái sem skjótasta með­ferð í siða­nefnd­inni þannig að for­sætis­nefndin geti tekið end­an­lega afstöðu til máls­ins“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár