Gunnar Bragi segist hafa verið að ljúga en Sigmundur staðfesti frásögn hans

Fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra sem við­ur­kenndi að hafa farið fram á per­sónu­legan greiða frá Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir að skipa Geir H. Haarde sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum, seg­ist nú hafa verið að „bulla og ljúga“. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, heyr­ist hins vegar stað­festa frá­sögn Gunnars Braga á upp­töku.

Gunnar Bragi segist hafa verið að ljúga en Sigmundur staðfesti frásögn hans
Gunnar Bragi Sveins­son Var utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins árin 2013 til 2016, undir for­sæti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Mynd: Pressphotos

Fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, Gunnar Bragi Sveins­son, sem heyr­ist á upp­töku við­ur­kenna að hafa farið fram á per­sónu­legt end­ur­gjald frá Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir að skipa Geir H. Haarde að sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum, seg­ist nú hafa verið að ljúga að við­stöddum. 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sam­herji Gunnars Braga í Mið­flokknum og for­maður flokks­ins, stað­festi hins vegar ummæli Gunnars Braga sem náð­ist á upp­tök­unni, og er því ljóst að annað hvort sagði Sig­mundur einnig ósatt, eða að skýr­ing Gunnars Braga stenst ekki.

Gunnar Bragi fund­aði ásamt Sigmundi Davíð og tveimur þing­mönnum Flokks fólks­ins, Ólafi Ísleifs­syni og Karli Gauta Hjalta­syni, ásamt þing­konu Mið­flokks­ins, Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur, á barnum Klaustri, við hlið Alþing­is­húss­ins, að kvöldi þriðju­dags­ins 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, í vitna við­ur­vist. Í umræð­unum bak­töl­uðu þing­menn­irnir Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, og kall­aði Bergþór Ólason hana „fokk­ing tryllta“ og „húrr­andi klikk­aða kuntu“, auk þess sem Gunnar Bragi lét ýmis ummæli falla um konur. 

Gunnar Bragi lýsir því á upp­töku af umræð­unum að hann hafi gert Árna Þór Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi þing­mann Vinstri grænna, sem væri frændi hans, en hann teldi „fávita“, til þess að dreifa athygl­inni frá því að hann myndi gera Geir H. Haarde að sendi­herra Íslands í Washington, sem hann taldi að sjálf­stæð­is­menn myndu end­ur­gjalda sér: „Þegar ég á fund með Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og ég segi við Bjarna: „Það er algjör­lega sjálf­sagt. Auðvitað geri ég Geir að sendi­herra,“ og þá segi ég við Bjarna: „Og mér finnst sann­gjarnt að þið horfið til svip­aðra hluta þegar ég þarf á því að halda.““

Gunnar Bragi svar­aði fyrir ummæli sín í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun. „Ég nátt­úru­lega er ekk­ert að segja satt þarna, að þetta hafi verið ein­hver díll,“ sagði Gunnar Bragi.

Gunnar Bragi seg­ist hafa verið að ljúgaUmsjón­ar­fólk Morg­un­út­varps­ins spurði Gunnar Braga Sveins­son ágengra spurn­inga um mis­ræmi í frá­sögn hans í morgun.

Hann taldi sig ekki eiga að segja af sér þing­mennsku. „Auðvitað segjum við af okkur ef við brjótum af okkur. Ef við gerum eitt­hvað sem er gegn þjóð­ar­hag, eða eitt­hvað slíkt. Þetta er ekki svo­leiðis. Þarna erum við í ein­hverju partýi að tala óvar­lega og illa.“

Þegar Sigmar Guð­munds­son, spyrill þátt­ar­ins, benti Gunnari Braga á að hann hefði notað opin­bera aðstöðu sína til að skipa sendi­herra til að fara fram á per­sónu­legan greiða í skiptum, og skipað annan sendi­herra til að draga nei­kvæða athygli frá þeirri skipan, sagð­ist Gunnar Bragi hins vegar hafa sagt ósatt í því til­felli. 

Sigmar: „En bíddu nú aðeins. Núna kemur að því sem er auð­vitað alvar­leg­ast póli­tískt í þessu, Gunnar Bragi. Þú ert fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Og það er þetta með þennan sendi­herrakapal sem þú lýsir þarna. Þú lýsir því að þú hafir skipað Geir Haarde, sendi­herra í Washington. Þú vissir að það var umdeilt, þannig að þú skipar um leið Árna Þór Sig­urðs­son, VG-mann, til þess að umræðan yrði meiri um Árna Þór, þannig að það yrðu engin læti um Geir. Þetta er svona smjör­klípa, svo við tölum tungu­mál sem allir sem fylgj­ast með póli­tík þekkja. Og á móti telur þú að þú eigir inni gott veður og góðan díl hjá Sjálf­stæð­is­flokknum. Þetta er eitt­hvað meira heldur en eitt­hvað fyll­er­ís­r­ant. Þetta er alvar­legur hlutur, ef rétt er, er það ekki?“ 

„Sko, það sem er, það er nú meira þarna sagt, því miður, sem er ekki rétt. Það eina sem er rétt í þessu, og ég hringdi nú einmitt í for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær, og tal­aði við hann og bað hann afsök­unar á því að vera að bulla og ljúga svona upp á hann.“

Sigmar: Var þetta allt lygi? 

„Nei, það sem er satt í þessu er að ég skipa Geir og ég skipa Árna og það hafði staðið til í raun­inni lengur að skipa Árna Þór Sig­urðs­son sem sendi­herra, heldur en Geir. Það kemur upp hins vegar eftir ákveðin sam­töl og auð­vitað er það bara þannig að það er ákveð­inn þrýst­ingur frá Sjálf­stæð­is­flokknum að skipa hann. Ég sjálfur var þeirrar skoð­unar að það ætti að gera það. Geir er afburð­ar­maður og hafði staðið sig gríð­ar­lega vel að mínu viti...“

Sigmar: Hann var nátt­úru­lega fárán­lega umdeildur eftir hrunið... Það má alveg setja spurn­ing­ar­merki við þetta.

Gunnar Bragi: „Ég hef aldrei verið jafn­sann­færður um að það hafi verið rétt að gera nokkurn hlut eins og að skipa Geir sendi­herra, vegna þess að þessi aðför að honum var nátt­úru­lega bara til skammar.“ 

Geir H. Haarde var dæmdur fyrir Lands­dómi, fyrstur íslenskra ráð­herra, fyrir að hafa sýnt af sér stór­kost­lega „van­rækslu“ í aðdrag­anda efna­hags­hruns­ins. Hann hefur nú verið skip­aður full­trúi Norð­ur­land­anna í stjórn Alþjóða­bank­ans af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra. 

Gunnar Bragi taldi hins vegar grafal­var­legt mál að ummæli hans á barnum hefðu verið tekin upp. „Það lítur alltaf illa út ef stjórn­mála­menn eru að gera eitt­hvað sem er umdeilt. Það er bara þannig. En það sem mér finnst, og ég verð að fá að segja hérna. Auðvitað skil ég að menn vilji tala um þessi orð. En er það virki­lega þannig að mönnum finnst það bara í lagi að það sé verið að taka upp sam­töl fólks? Það er grafal­var­legt mál.“

Á upp­tök­unni má heyra að Sig­mundur Davíð stað­festir orð Gunnars Braga, sem Gunnar segir nú að hafi verið lygi. „Bjarni [Bene­dikts­son] fór út um víðan völl en nið­ur­staðan var sú að hann hefði fall­ist á það að ef þetta gengi eftir, þá ætti Gunnar inni hjá Sjálf­stæð­is­mönnum. […] Næsta skref var að hitta Bjarna með Guðlaugi Þór [Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra]. […] Bjarni má eiga það að hann fylgdi mál­inu vel eftir.“

SamtaliðSig­mundur Davíð stað­festir orð Gunnars Braga á upp­töku, en Gunnar Bragi seg­ist hafa verið að „bulla og ljúga“.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár