Kaupendur fá íbúðir ekki afhentar frá Sturlu

Kaupendur að íbúðum í Helga­fellshverfi í Mosfellsbæ hafa beðið afhendingar í marga mánuði. Fasteigna­félag Sturlu Sighvats­sonar á íbúðirnar og er það í alvarlegum vanskilum.

Sturla Sighvatsson
Sturla Sig­hvats­son Þorri fast­eigna félags Sturlu, Lauga­vegar ehf., hefur verið settur á nauð­ung­ar­upp­boð und­an­farna mán­uði. Mynd: RÚV

Hópur fólks hefur ekki fengið afhentar íbúðir við Gerplu­stræti 2–4 í Helga­fellshverfi í Mosfellsbæ sem félag Sturlu Sighvats­sonar fjár­festis hefur selt þeim. Síðast stóð til að afhenda þær í júlí, en fasteigna­félagið er nú í alvarlegum vanskilum.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar hefur kaupendum nú verið lofað afhendingu í desember. Illa hafi gengið að ná í Sturlu og lítið hafi verið gert til að klára íbúðirnar að undan­förnu að því er þeim sýnist. Óttast sumir að greiðslur þeirra sem fóru fram við undir­ritun kaup­samnings muni glatast ef fasteigna­félagið lendir í vandræðum, en félagið tók tæpan milljarð í lán vegna viðskiptanna.

Ekki náðist í Sturlu við vinnslu fréttarinnar. Að sögn Sveins Eylands Garðars­sonar, fasteigna­sala hjá Landmark, sem sér um söluna, eru samskipti Landmarks við kaupendur góð og stefnt að afhendingu snemma í desember.

Stundin hefur áður fjallað um viðskipti Sturlu, en fjöldi fasteigna í eigu félaga hans hefur verið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár