Læddist meðfram veggjum í menntaskóla

Arna Stein­ars­dóttir segir að það hafi verið mikið gleði­efni að kom­ast að því að bestu ár ævinnar eru ekki endi­lega mennta­skóla­árin, ólíkt því sem margir halda fram.

Arna og sonur hennar Kári Segist mögulega ekki hafa passað inn í MH í íþróttagallanum sínum.

Mennta­skól­inn. Ég lædd­ist með­fram veggjum í íþrótta­gall­anum mínum með sell­óið á bak­inu. Ég nennti ekki að láta bera á mér. Leið kannski ekk­ert sér­stak­lega vel.

Það tala alltaf allir um að það þurfi allir að vera eins, samt var ég í MH, þar sem allir eiga að geta verið þeir sjálfir. Kannski fitt­aði ég ekki alveg þar inn í íþrótta­gall­anum, þú veist, átti maður ekki bara að vera í lopa­peys­unni þar eða eitt­hvað? Ég veit það ekki.

Það tala allir um að mennta­skól­inn eigi að vera bestu ár lífs þíns, en það var það ekki fyrir mér, komp­lexaðan ung­ling í mennta­skóla. Það er samt pínu gott að vita að besti tím­inn minn er eftir. Það er gott að vita að besti tím­inn er ekki búinn þegar maður verður tví­tugur. Já, ég held það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár