Vefsíða nauðgunarsinna sett í hlé

Tekju­mögu­leikar vef­síð­unnar eru tak­mark­aðir eftir að aug­lýsendur fjar­lægja sig frá síð­unni sökum efnis sem hvetur til nauð­gana. Eigandi síð­unnar sjálfur við­ur­kennt nauðgun og skrifar ráð sem ein­kenn­ast af því að „hella konur fullar og ein­angra þær.“

Vefsíða nauðgunarsinna sett í hlé
Roosh V Gaf meðal ann­ars út bækur þar sem hann leið­beinir karl­mönnum að tál­draga konur í mis­mun­andi löndum, eins og Litháen, Íslandi, Argent­ínu og Póllandi. Mynd:

Nauðg­un­ar­sinn­inn Roosh Valizadeh til­kynnti í byrjun mán­aðar að vef­síðan hans, Return of Kings, væri að fara í ótíma­bundið hlé. Síðan er fyrir „alvöru karl­menn“ sam­kvæmt lýs­ing­unni og inni­heldur skrif frá honum sjálfum og öðrum karl­mönnum. Roosh er einnig þekktur sem Roosh V og hefur geng­ist undir nafn­inu Roosh Vorek. 

Vefsíðan hefur verið í gangi í meira en sex ár, en helsta þema hennar er að hjálpa karl­mönnum að stunda kyn­líf með konum. Roosh V hefur skrifað margar bækur þess efnis, meðal ann­ars leið­bein­ingar um hvernig á að sofa hjá konum í mis­mun­andi löndum. Árið 2011 gaf hann út bók slíka bók um Ísland. Önnur lönd sem Roosh hefur fjallað um eru Pólland, Litháen og Argent­ína. Hann hefur gefið út tvær bækur þar sem hann mælir gegn því að menn fari til þess að stunda kyn­líf, en það eru Lettland og Danmörk.

Leið­bein­ingar Roosh ein­kenn­ast af því að ná valdi yfir konum og ekki að leyfa þeim að fá tæki­færi til þess að segja nei. Hann hefur við­ur­kennt að hafa nauðgað konu á meðan Íslands­ferð hans stóð, en hann skrifar að hún hafi verið of full til þess að gefa sam­þykki. Svipaða sögu er að segja um bók hans um Pólland, en þar lýsir hann því að hafa haldið konu niðri og nauðgað henni. 

Ástæður hlés­ins eru helst að aug­lýsendur hafa í auknum mæli dregið til baka stuðn­ing sinn við síð­una vegna þess efnis sem þar birt­ist. Síðan braut reglur PayPal um hat­urs­orð­ræðu, sem þýddi að PayPal lok­aði á greiðslu­þjón­ustu í gegnum síð­una. Eru því litlar sem engar tekjur að ber­ast inn og umferð um síð­una einnig tak­mörkuð.

Roosh var mikið til umfjöll­unar í íslenskum fjöl­miðlum árið 2016 þegar hann til­kynnti um fund sem hann ætl­aði að halda fyrir stuðn­ings­menn sína við styttu Leifs Eiríks­sonar. Eftir frétta­flutn­ing og mikil mót­mæli hætti hann við komu sína. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár