Orri Páll Dýrason hættir í Sigur Rós vegna ásakana

Trommari Sigur Rósar hættir í hljóm­sveit­inni vegna ásak­ana um nauðgun. Hann hafnar þessum ásök­unum og biður fólk um að beina reiði sinn í réttan far­veg og draga fjöl­skyldu sína ekki frekar inn í málið.

Orri Páll Dýrason hættir í Sigur Rós vegna ásakana

Orri Páll Dýrason, trommu­leik­ari í hljóm­sveit­inni Sigur Rós, hefur ákveðið að hætta í hljóm­sveit­inni vegna ásak­ana um nauðgun.

Tíma­ritið Paste Magazine greindi frá þessum ásök­unum um helg­ina, en hafði ekki náð tali af Orra þegar fréttin birt­ist. Stundin hefur óskað eftir við­brögðum vegna máls­ins en án árang­urs.

Konan sem sakar hann um að hafa brotið gegn sér hefur hins vegar birt tölvu­póst­sam­skipti á milli þeirra þar sem hann kveðst ekki skilja af hverju hún saki hann um að hafa gert eitt­hvað sem hann gerði ekki. 

Meagan Boyd, lista­kona í Los Angeles, birti færslu á Instagram á þriðju­dag, þar sem hún sagði Orra hafa nauðgað sér í jan­úar 2013. Hún seg­ist hafa verið mik­ill aðdá­andi hans og að þau hafi hist á næt­ur­klúbbi. Þau hafi í kjöl­farið gist í sama rúmi og segir hún hann hafa nauðgað sér tvisvar á meðan hún svaf.

Í færsl­unni seg­ist Meagan ekki hafa greint frá reynslu sinni í tengslum við #MeToo bylt­ing­una vegna kvíða, en í kjöl­far yfir­heyrsl­unnar yfir Dr. Christine Blasey Ford vegna ásak­ana á hendur Brett Kavan­augh, sem til­nefndur er sem hæsta­rétt­ar­dóm­ari í Banda­ríkj­unum, hafi hún fundið sig knúna til þess að stíga fram. 

Orri seg­ist ætla að hætta í Sigur Rós, þar sem hann geti ekki látið þessar alvar­legu ásak­anir hafa áhrif á hljóm­sveit­ina. Þá biður um að fjöl­skylda sín og kona verði ekki dregin frekar inn í þetta mál. Hann muni gera allt sem í valdi sínu stendur til að losa sig „úr þess­ari martröð“ en af virð­ingu við „raun­veru­lega þolendur ofbeldis“ muni hann þó ekki taka þann slag opin­ber­lega.

Yfirlýsing Orra

Ég vil byrja á því að þakka vinum og vanda­mönnum sýndan stuðn­ing. Það er gott að finna fyrir trausti ykkar þrátt fyrir þær alvar­legu ásak­anir sem komið hafa fram á hendur mér.

Málið hefur óneit­an­lega tekið á mig síð­ustu daga. Rétt­læt­an­legt, segja ef til vill ein­hverjir og hyggst ég ekki deila við það fólk. Hins­vegar bið ég ein­læg­lega um að sama fólk beini reiði sinni í réttan far­veg og að fjöl­skylda mín og þá sér­stak­lega konan mín verði ekki dregin frekar inn í þetta mál eðaum­fjöllun þess. Að sama skapi vil ég biðja fólk að halda ró sinni og skip­ast ekki í tvær stríð­andi fylk­ingar, þetta eru ekki rétt­ar­höld, bara orð Meagan gegn mínum, á inter­net­inu. 
Engum er greiði gerður með upp­hróp­unum og gíf­ur­yrðum. 
-Hvorki mér, né henni.

Vegna umfangs þessa máls hef ég ákveðið að hætta í Sigur Rós. Sú ákvörðun er mér þung­bær, en ég get ekki látið þessar alvar­legu ásak­anir hafa áhrif á hljóm­sveit­ina og það mik­il­væga og fal­lega starf sem þar hefur verið unnið síð­ustu ár. Starf sem er mér svo kært. 

Fram skal tekið að ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að losa mig úr þess­ari martröð en af virð­ingu við raun­veru­lega þolendur ofbeldis mun ég þó ekki taka þann slag opin­ber­lega.

Ást

Orri

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár