Jón Steinar kallar Evu Joly lævísa áróðurskonu

Jón Stein­ar Gunn­laugg­son seg­ir Evu Joly hafa skipu­lagt ráða­brugg með sér­stök­um sak­sókn­ara til að vinna al­menn­ing og dóm­stóla á band embætt­is­ins þeg­ar kom að hrun­mál­um. Hann dreg­ur einnig heil­indi frétta­stofu RÚV í efa.

Jón Steinar kallar Evu Joly lævísa áróðurskonu
Segir Joly vera áróðurskonu Jón Steinar segir Evu Joly, sem fengin var til ráðgjafar íslenskum stjórnvöldum eftir hrun, ekki hafa haft áhuga á því að réttvísin næði fram að ganga heldur hafi hún reynt að nýta sér stöðu sína til að koma höggi á kapítalismann.

Tilgangur baráttukonunnar Evu Joly, þegar hún hvatti Íslendinga til dáða við rannsóknir hrunmála, var ekki sá að hvetja til þess að dæmt yrði fyrir refsiverða háttsemi heldur að ráðast gegn hinu kapítalíska kerfi. Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, heldur þessu fram í grein í Morgunblaðinu í dag. Þar lýsir hann því einnig að uppi séu sögusagnir um að Joly hafi skipulagt fjölmiðlaframkomu og spuna með sérstökum saksóknara. Þá dregur Jón Steinar heilindi fréttastofu Ríkissútvarpsins í efa í sömu skrifum.

Tilefni skrifa Jóns Steinars eru fréttir Ríkisútvarpsins í sjónvarpi um liðna helgi þar sem voru fluttar langar „og svolítið kostulegar frásagnir af embætti sérstaks saksóknara og svonefndu Al Thani-máli.“ Svo lýsir Jón Steinar fréttaflutningum sem hann segir að hafi verið lofgjörð um embætti sérstaks saksóknari.

Heldur því fram að Joly sé ekki lögfræðimenntuð

Jón Steinar vindur sér síðan í lýsingar af komu Evu Joly hingað til lands. Jón Steinar tiltekur að Joly hafi ekki verið lögfræðingur og hafi ekki byggt málflutning sinn á því hvort refislög hafi verið brotin í aðdraganda hrunsins. Joly er þó lögfræðimenntuð frá Frakklandi, sérhæfð í fjármálaglæpum, og hóf störf þegar árið 1990 sem rannsóknardómari við stærsta dómstól Frakklands, Tribunal de grande instance de Paris, þar sem hún barðist af hörku gegn spillingu í stjórnmálum og efnahagslífi. Joly var árið 2002 fengin til að starfa af hálfu norska dómsmálaráðherrans sem sérstakur ráðgjafi í baráttu Noregs gegn spillingu, hvítflibbaglæpum og skipulagðri glæpastarfsemi, og starfaði hún í þrjú ár fyrir norsk yfirvöld. Joly var síðan ráðin í mars 2009 sem sérstakur ráðgjafi íslensku ríkisstjórnarinnar í kjölfar hrunsins  og veitti hún íslenskum stjórnvöldum ráðgjöf í eitt og hálft ár.

Jón Steinar er hins vegar þeirrar skoðunar að Joly hafi nýtt sér þá stöðu til að reyna að koma höggi á hið kapítalíska kerfi með áróðursstarfsemi. „Þessi lævísa kona virtist vefja þjóðinni um fingur sér, þannig að kjörnir fyrirsvarsmenn fengu engu um ráðið,“ skrifar Jón Steinar.

Þá ber Jón Steinar á borð að sögusagnir hafi verið um að Joly hafi átt fundi með saksóknurum þar sem lagt hafi verið á ráðin um hvernig vinna ætti almenning og dómstóla á sitt band, án þess að þekking á lagareglum þvældist þar fyrir. Hafi Joly þar kynnt saksóknara hvernig best yrði unnið í fréttamiðlum með því að ná persónulegu sambandi við einstaka fréttamenn og fóðra þá á upplýsingum sem þeir gætu unnið fréttir úr, fyrstir fjölmiðlamanna. Raunar setur Jón Steinar orðið upplýsingar í gæsalappir í grein sinni. „Um leið yrði skapaður grundvöllur fyrir framgangi krafna á hendur sökuðum mönnum fyrir dómstólum sem væru veikburða og afar hallir undir almenningsálitið.“

Telur að verið sé að nota Ríkisútvarpið

Eftir að hafa rakið þessar sögusagnir snýr Jón Steinar sér að því sem virðist vera kveikjan að skrifum hans, fyrrnefndum fréttaflutningi Ríkisútvarpsins, sem hann telur að þjóni öðrum tilgangi en vera ber. Veltir Jón Steinar því fyrir sér hvort ástæða þess að fréttirnar voru fluttar séu þær að verið sé að undirbúa jarðveginn fyrir komandi dómsmál. „Þegar ég hlustaði á hinar einhliða lofrullur fréttastofu RÚV tvo daga í röð um þetta embætti og verk þess, datt mér í hug að nú hlyti að standa fyrir dyrum meðferð dómsmála þar sem beita yrði aðferðum Joly fremur en lögfræðinnar til að ná fram sakfellingum. Ég veit svo sem ekki hvort það er rétt en fróðlegt verður að fylgjast með þessu næstu daga. Allavega er ljóst að þessir pistlar í RÚV eiga fátt skylt við hlutlausa fréttamennsku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

Orð Geithner á skjön við hrunskýrslu Hannesar
FréttirHrunið

Orð Geit­hner á skjön við hrun­skýrslu Hann­es­ar

Timot­hy Geit­hner, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, seg­ir ut­an­rík­is­stefnu Ís­lands aldrei hafa ver­ið rædda þeg­ar hug­mynd­um um gjald­eyr­is­skipta­samn­ing í hrun­inu 2008 var hafn­að. Í skýrslu Hann­es­ar Hólm­steins Giss­ur­ar­son­ar sagði hann ástæð­una vera að Ís­land hefði ekki leng­ur ver­ið hern­að­ar­lega mik­il­vægt í aug­um Banda­ríkj­anna.
Timothy Geithner um hrunið á Íslandi: „Skakkt númer, hringdu í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn“
FréttirHrunið

Timot­hy Geit­hner um hrun­ið á Ís­landi: „Skakkt núm­er, hringdu í Al­þjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn“

Timot­hy Geit­hner, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, seg­ist ekki minn­ast um­ræðu um ut­an­rík­is­stefnu Ís­lands vegna um­sókn­ar um gjald­eyr­is­skipta­samn­ing í hrun­inu 2008. Ís­land var ekki kerf­is­lega mik­il­vægt sam­kvæmt við­töl­um í bók Svein Har­ald Øygard, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra.

Mest lesið

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
6
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár