Útvarpsstjóra sveið framgangan gegn Geir: „Ég leið satt best að segja önn“

Páll Magn­ús­son setti Lands­dóms­málið og til­lögu um afsök­un­ar­beiðni til Geirs H. Haarde í sam­hengi við harð­ræði á vist­heim­ilum og sann­girn­is­bætur rík­is­ins til þolenda.

Útvarpsstjóra sveið framgangan gegn Geir: „Ég leið satt best að segja önn“

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafði veru­legar áhyggjur af Lands­dóms­mál­inu þegar hann starf­aði sem útvarps­stjóri RÚV og fylgd­ist með fram­gangi þess úr fjar­lægð. 

Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi fyrr í vik­unni þegar rætt var um til­lögu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og fleiri þing­manna þess efnis að Alþingi biðji Geir Hilmar Haarde afsök­unar á því að hafa dregið hann fyrir Landsdóm og álykti um að rangt hafi verið að leggja fram þings­á­lyktun um máls­höfðun gegn ráð­herrum.

„Ekki sat ég hér þegar þetta fór fram. Ég var starf­andi í fjöl­miðlum og horfði á þetta utan frá og inn og leið satt best að segja önn fyrir það að horfa upp á það sem fram fór fram hér á Alþingi á þessum tíma,“ sagði Páll.

„Ég held að það sé engin til­viljun að þeir
eru ekki fjöl­mennir hér í þingsalnum úr
þeim flokki sem smán­ar­leg­ast gekk fram
í þess­ari atkvæða­greiðslu“

Hann snupraði þing­flokk Sam­fylk­ing­ar­innar, en oft hefur verið gagn­rýnt að atkvæði þing­manna flokks­ins á sínum tíma réðu því að Geir Hilmar einn var ákærður en ekki tveir ráð­herrar Sam­fylk­ing­ar­innar, Björgvin G. Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra, og Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. „Ég held að það sé engin til­viljun að þeir eru ekki fjöl­mennir hér í þingsalnum úr þeim flokki sem smán­ar­leg­ast gekk fram í þess­ari atkvæða­greiðslu,“ sagði Páll. „Mér liði satt best að segja tölu­vert betur sem Alþing­is­manni hér í þessum sal ef ég fengi tæki­færi til að biðj­ast afsök­unar á þess­ari ósvinnu sem Alþingi vann hér fyrir tæpum ára­tug.“

Í ræðu sinni lýsti Smári McCarthy, þing­maður Pírata, þeirri skoðun að ástæðu­laust væri að Alþingi sem stofnun bæð­ist afsök­unar á mis­beit­ingu valds gegn Geir Hilmari. Ef ein­hverjir þáver­andi þing­manna teldu sig hafa mis­beitt valdi væri það þeirra sjálfra að biðj­ast afsök­unar.

Páll er ósam­mála þessu og setti málið í sam­hengi við afsök­un­ar­beiðni og sann­girn­is­bætur íslenska rík­is­ins til fólks sem þurfti að þola harð­ræði á vist­heim­ilum og upp­töku­heim­ilum.

„Það er verið að tala um Alþingi hér sem stofnun. Það er ekki verið að tala um Alþingi hér í sam­hengi við þá ein­stak­linga sem sátu hér þá. Þess vegna er til dæmis rík­is­valdið að biðj­ast afsök­unar á ýmsum hlutum sem voru unnir hér fyrir ára­tugum, dval­ar­heim­ili, upp­töku­heim­ili, og annað sem unnið var í skjóli rík­is­ins á sínum tíma og ríkið í dag telur sér ekki bara skylt að biðj­ast afsök­unar á því heldur til að bæta það með ein­hverjum hætti, og ég end­ur­tek bara að sjálfum liði mér betur ef Alþingi bætti fyrir þessa ósvinnu með því að biðj­ast afsök­unar á þessu.“

Í grein­ar­gerð sem fylgir þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni um órétt­mæti máls­höfð­unar Alþingis gegn ráð­herrum og afsök­un­ar­beiðni er ýjað að því að dóms­valdi hafi verið mis­beitt í mál­inu. Fram kemur að flutn­ings­menn telji mik­il­vægt að „árétta að dóms­valdi megi aldrei beita í póli­tískum til­gangi“. Þetta er í takt við þungar ásak­anir Geirs Hilmars sjálfs sem sagði – eftir að hann var sak­felldur fyrir að hafa framið stjórn­ar­skrár­brot af stór­kost­legu gáleysi – að það væri „stórfurðu­legt að póli­tíkin í land­inu skuli hafa laumað sér með þessum hætti inn í þennan virðu­lega dóm­stól.“ 

Í hópi þeirra sem fóru með dóms­vald í Lands­dóms­mál­inu eru núver­andi hér­aðs-, lands­réttar- og hæsta­rétt­ar­dóm­arar og dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu í fyrra að ekk­ert benti til þess að dóm­arar við Landsdóm hefðu verið hlut­drægir í störfum sínum, sætt óeðli­legum þrýst­ingi eða haft óeðli­leg tengsl við stjórn­mála­menn. Þá hefði skipun dóm­stóls­ins ekki verið á skjön við kröfur Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um sjálf­stæðan og óvil­hallan dóm­stól. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár