Geir tapar fyrir Mannréttindadómstólnum: Engin mannréttindi brotin í Landsdómsmálinu

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur kom­ist að nið­ur­stöðu í máli Geirs Haarde sendi­herra gegn Íslandi.

Ákvæði Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um rétt­inn til rétt­látrar máls­með­ferðar og enga refs­ingu án laga voru ekki brotin þegar Geir H. Haarde var dreg­inn fyrir Landsdóm og dæmdur fyrir að hafa sýnt stór­kost­legt gáleysi í störfum sínum sem for­sæt­is­ráð­herra í aðdrag­anda banka­hruns­ins 2008.  Þetta er nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem kvað upp dóm í máli Geirs H. Haarde gegn Íslandi rétt í þessu.

Dóm­stóll­inn telur að máls­með­ferð þing­manna­nefndar Alþingis, Alþingis og sak­sókn­ara Alþingis, og þær ákvarð­anir sem teknar voru í tengslum við þá máls­með­ferð, hafi ekki haft þau áhrif á stöðu Geirs að unnt væri að telja máls­með­ferð­ina á síð­ari stigum órétt­láta. Þá telur dóm­stóll­inn ekk­ert hafa komið fram sem bendi til þess að skipan Lands­dóms brjóti gegn kröfum 6. gr. sátt­mál­ans  um sjálf­stæðan og óvil­hallan dóm­stól. Hvorki máls­með­ferðin fyrir Lands­dómi né rök­stuðn­ing­ur­inn í dóm­inum er tal­inn hafa brotið í bága við þær kröfur sem leiða af 6. gr. sátt­mál­ans. 

Loks telur Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu að brotið sem Geir var dæmdur fyrir hafi verið nægi­lega skil­greint í lögum og ekki hafi skort á skýr­leika refsi­heim­ilda. Það hafi þannig verið nægi­lega fyr­ir­sjá­an­legt fyrir Geir að hátt­semi hans gæti varðað hann ref­is­á­byrgð sam­kvæmt stjórn­ar­skrá og lögum um ráð­herra­á­byrgð. 

Alþingi sam­þykkti með 33 atkvæðum gegn 30 árið 2010 að draga Geir H. Haarde fyrir Landsdóm. Lands­dómur sýkn­aði Geir af flestum ákæru­liðum en sak­felldi hann fyrir að hafa látið undir höfuð leggj­ast að halda ráð­herra­fundi um mik­il­væg mál. Þannig var hann tal­inn hafa  brotið gegn 17. gr. stjórn­ar­skrár. 

Lands­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að með aðgerða­leysi sínu hefði Geir ekki aðeins brotið gegn form­reglu heldur bein­línis van­rækt að marka póli­tíska stefnu til að takast á við þann efna­hags­vanda sem honum hlaut að vera ljós strax í febr­úar 2008 og þannig draga úr því tjóni sem síðar varð. 

Geir kærði dóm­inn og fram­göngu íslenska rík­is­ins gagn­vart sér til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu haustið 2012. Hann og lög­maður hans, Andri Árnason, töldu að brotið hafi verið á rétti Geirs til sann­gjarnrar máls­með­ferðar, rétt­inum til að vera tal­inn sak­laus uns sekt er sönnuð, rétt­inum til að vera umsvifa­laust gert kunn­ugt um sak­ar­efni og rétt­inum til að að fá nægan tíma og aðstöðu til að und­ir­búa málsvörn sína.

Þá var sér­stak­lega vísað til þess í kærunni að ákvörð­unin um ákæru á hendur Geir hefði verið tekin af stjórn­mála­mönnum á Alþingi á „póli­tískum for­sendum“, brotala­mir hafi verið í mála­til­bún­að­inum og að Lands­dómur gæti ekki talist óvil­hallur og sjálf­stæður dóm­stóll. Jafn­framt var byggt á því að refsi­heim­ildir hefðu verið óskýrar og laga­á­kvæðin svo óljós að Geir hefði ekki mátt vera ljóst að með hátt­semi sinni sem ráð­herra kynni hann að vera dreg­inn til refsi­á­byrgðar og dæmdur fyrir brot á stjórn­ar­skrá. 

Nú liggur nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir, en þar er íslenska ríkið sýknað af helstu kröfum Geirs og nokkum kæru­liðum vísað frá.

Þannig er ljóst að ásak­anir um að brotið hafi verið á rétt­indum sem tryggð eru í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu áttu sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum að mati dóm­stóls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár