Pönksafnið minnti Chris á gamla tíma með Iggy Pop

Chris Erring nýtti milli­lend­ingu í að upp­fylla drauma­ferð sína til Íslands.

Var ekki búið að finna upp orð yfir pönkið Chris stýrði tónleikaferðalagi Iggy Pop á árunum 1974 til 1975.

Fólkið hérna er alveg ynd­is­legt. Vin­gjarn­legt, opið og skemmti­legt. Fólkið frá mínum slóðum á Nýja-Englandi, það getur alveg verið vin­gjarn­legt en það er ekki opið og hlýtt eins og hérna. Þetta er búið að vera frá­bært, allir sem við höfum hitt búnir að vera hjálp­samir og góðir við okkur. 

Mér fannst mjög áhuga­vert að sjá pönk­safn ofar í göt­unni, ég hef ekki séð svona áður. Ég er ekki enn búinn að kíkja þangað en það væri gaman að sjá hvernig þetta lítur út. Það minnti mig á þegar ég var með Iggy Pop í gamla daga.

Ég stýrði tón­leika­ferða­lagi þeirra fyrir Raw Power-plöt­una frá 1973–1974, sem var frekar goð­sagna­kenndur túr. Á þeim tíma vissum við ekk­ert að við værum að spila pönk, það var ekk­ert búið að finna upp orðið „pönk“. Iggy sjálfur sagði það seinna meir að honum hafi verið illa við hug­takið „pönk“. En það skiptir kannski ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár