Fæðingin er alltaf dálítil óvissuferð

Ljós­mæðurnar Ella Björg Rögnvalds­dóttir og Ragna Þóra Samúels­dóttir hafa stofnað fyrir­tækið Bumbu­spjall sem býður upp á námskeið um meðgöngu, fæðingu og sængur­legu. Námskeiðin eru haldin í heima­húsum og þótt þátt­takendur fái fræðslu­efni er lögð áhersla á að svara þeim spurningum sem brenna á verðandi foreldrum. Áherslurnar eru þrjár – meðganga, fæðing og sængur­lega.

Gott að geta fylgst að
Gott að geta fylgst að Ljós­mæð­urnar Ella Björg Rögn­valds­dóttir og Ragna Þóra Sam­ú­els­dóttir standa fyrir bumbu­spjalli þar sem konur geta fylgst að á með­göngu og sæng­ur­leg­unni. Í slíku umhverfi geta mynd­ast dýr­mæt tengsl. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ella Björg Rögnvalds­dóttir og Ragna Þóra Samúels­dóttir útskrifuðust sem ljósmæður í fyrra og segir Ella að hugmyndin að námskeiðunum hafi komið upp seint í náminu.

„Ég skoðaði fyrirbæri sem heitir „hópmeðgöngu­vernd“ í loka­verkefninu mínu sem byggir á því að hópur kvenna á svipuðum stað í meðgöngunni hittist í meðgöngu­vernd og ræðir saman um það sem þeim liggur á hjarta. Þetta hefur verið prófað hér á landi og gengið vel og hafa konur verið ánægðar með þetta form en það er enn sem komið er ekki búið að innleiða þetta.

Án þess að það hafi endilega verið meðvitað þá getur vel verið að þessi hugmynd að námskeiðunum okkar Rögnu hafi sprottið upp svolítið út af því að ég var búin að sökkva mér ofan í að skoða hvað það gerir fyrir konur að vera saman í hóp á meðgöngu, fá fræðslu í hóp og halda alltaf sama hópinn. Þessar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár