Sögulegur fjöldi byggingakrana til marks um þenslu

Fjöldi bygg­inga­krana á öðrum árs­fjórð­ungi hefur aldrei mælst meiri. Hag­fræð­ingur sem spáði fyrir um hrunið vorið 2008 sagði að mæla mætti þenslu í hag­kerf­inu eftir fjölda krana.

Sögulegur fjöldi byggingakrana til marks um þenslu
Bygg­inga­kranar Kranar eru taldir merki um þenslu í hag­kerf­inu. Mynd: Davíð Þór

Aldrei hafa fleiri bygg­inga­kranar verið uppi á 2. árs­fjórð­ungi en nú í ár. Hundrað kranar voru skoð­aðir á fjórð­ungnum, en þar að auki 71 á fyrsta árs­fjórð­ungi. Ef þró­unin heldur áfram verður lík­lega mesti fjöldi bygg­inga­krana skoð­aður síðan árið 2007. Í fyrra voru skoð­aðir sam­tals 303 kranar miðað við 310 krana árið 2008.

Bragi Fannar Sig­urð­ar­son heldur úti vefnum Vísitala.is þar sem gögnum frá Vinnu­eft­ir­lit­inu um fjölda bygg­inga­krana er safnað saman og þau sett mynd­rænt fram. Vísar Bragi í orð hag­fræð­ings­ins Robert Z. Aliber, sem kom til Íslands fyrir hrun og sá að hag­kerfið stefndi í nið­ur­sveiflu. „Það þarf aðeins að telja bygg­inga­kran­ana,“ var haft eftir Aliber, en hann telur fjölda krana vera til merkis um þenslu í efna­hags­líf­inu.

Í maí­byrjun 2008 kom Aliber til Íslands og flutti fyr­ir­lestur um stöðu efna­hags­mála. Hann hitti einnig Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í þeim til­gangi að kynna honum sýn sína á þróun efna­hags­mála og mik­il­vægi þess að grípa til aðgerða gagn­vart banka­kerf­inu. Athygli vekur að sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sýndi Geir mál­flutn­ingnum og ráð­legg­ingum pró­fess­ors­ins lít­inn áhuga. „Hann var ekk­ert að tala þetta allt niður eins og hann gerði svo í ræðu sinni, hann var bara huggu­legur, gam­all kall sem var að koma þarna,“ var haft eftir Geir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár