Hundrað grindhvalir drepnir í dag

Um hundrað grind­hvalir voru drepnir í Hvanna­sundi í Færeyjum í dag. Á sama tíma er keppst við að bjarga tveimur andar­nefjum sem strandaðar eru í Engey úti fyrir Reykjavík.

Grindhvaladráp í Færeyjum
Grind­hvala­dráp í Færeyjum Um hund­rað grind­hvalir voru drepnir í Hvanna­sundi í dag. Mynd: Shutterstock

Það tók einungis tíu mínútur að slátra hundrað grind­hvölum í Hvanna­sundi í Færeyjum fyrr í dag, eftir því sem færeyskir fjölmiðar greina frá.

Færeyingar eru þekktir fyrir hval­veiðar sínar, en þær fara þannig fram að hvölunum er smalað upp í flæðar­málið og þeir síðan skornir með sérhönnuðum hnífum sem stöðva blóðflæði til heilans. Þá er krókum jafnframt beitt og er þeim krækt í blástursop hvalanna til að koma þeim í land. Íbúar taka gjarnan þátt í veiðunum og hópast full­orðnir og börn saman í blóðrauðu flæða­málinu. Hval­veiðar þessar eiga stað á hvaða árstíma sem er en fara yfirleitt fram á sumrin. Hátt í þúsund dýr eru drepin árlega.

Á sama tíma og fréttir berast af hvala­drápum í Færeyjum er öllum brögðum beitt til að halda lífi í tveimur andar­nefjum sem fastar eru í fjörunni í Engey. Þá önduðu menn léttar í Kolgrafa­firði á dögunum þegar vaða af grind­hvölum yfirgaf fjörðinn, en óttast var að hvalirnir myndu stranda.  

Hval­veiðar eru gríðar­lega umdeildar á heimsvísu og er þessi hefð Færeyinga engin undan­tekning. Hafa meðal annars dýra­verndunar­samtökin Sea Shepherd gagnrýnt veiðarnar harðlega og barist gegn þeim en samtökin settu meðal annars inn myndband á Youtube fyrr í dag af veiðunum í Hvanna­sundi.  Það er þó ekki einungis af dýraverndurarsjónarmiðum sem veiðar á grindhval hafa verið gagn­rýndar en vísinda­menn hafa varað við neyslu hans þar sem kjötið innihaldi meðal annars kvika­silfur og PCB. Gefin hafa verið út neyslu­viðmið þar sem mælt er með að fólk borði ekki meira en eina máltíð sem innihaldi grindhval í mánuði. Séu konur barns­hafandi, með börn á brjósti eða að reyna að eignast börn er þeim mælt frá því að borða grindhval.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár