Banka­­maður og sýslu­­manns­full­­trúi fengu ör­yrkja til að semja frá sér réttindi á fjarstæðukenndum forsendum

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heim­ilar ekki for­eldrum að hafa lög­menn við­stadda í sátta­með­ferð nema báðir aðilar sam­þykki slíkt. Lög­manna­fé­lagið ákvað að kalla eftir skýr­ingum frá sýslu­manni vegna þessa verk­lags.

Banka­­maður og sýslu­­manns­full­­trúi fengu ör­yrkja til að semja frá sér réttindi á fjarstæðukenndum forsendum
Andlit emb­ætt­is­ins Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­maður hefur lýst því hvernig máls­með­ferð í fjöl­skyldu­málum er afrakstur sam­vinnu starfs­manna og sagst hreyk­inn af sínu starfs­fólki og bera fullt traust til þess. Mynd: Skjáskot af RÚV

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heim­ilar ekki for­eldrum að hafa lög­menn við­stadda í lög­bund­inni sátta­með­ferð hjá emb­ætt­inu nema báðir aðilar sam­þykki slíkt. Dæmi eru um að sýslu­manns­full­trúi vísi lög­manni á dyr ef slíkt sam­þykki fæst ekki hjá hinu for­eldr­inu. 

Lög­manna­fé­lag Íslands ákvað nýlega að óska eftir skýr­ingum frá sýslu­manns­emb­ætt­inu á þessu verk­lagi. Tilefnið er erindi sem barst frá lög­manni þann 16. maí síð­ast­lið­inn, en þar er greint frá því hvernig lög­mað­ur­inn hefur í störfum sínum orðið vitni að því að verk­lagið leiði til alvar­legs rétt­inda­missis fyrir skjól­stæð­inga sína; þeir hafi hrein­lega samið frá sér mik­il­væg rétt­indi á sátta­fundum hjá sýslu­manni án þess að átta sig á því og án þess að þeim væri gerð skýr grein fyrir því. 

Öryrki án lögmanns samdi frá sér réttindi

Hún tekur dæmi af starfs­manni í banka sem er sagður hafa fengið sínu fram­gengt gagn­vart barns­móður í veikri stöðu. Konan hafi und­ir­geng­ist samn­ing um lög­heim­il­is­breyt­ingu á sér­kenni­legum for­sendum á fundi með mann­inum og sýslu­manns­full­trúa. Atburða­rásinni er lýst með eft­ir­far­andi hætti í erind­inu til Lög­manna­fé­lags­ins:

Nýlegt dæmi um þetta var sátta­fundur milli for­eldra sem lauk með því að skjól­stæð­ingur minn, í þessu til­viki móðir, und­ir­rit­aði samn­ing um breyt­ingu á lög­heim­ili barns þar sem lög­heim­ili var fært til föður. Á sama tíma stóðu aðilar í umgengn­is­deilu þar sem skjól­stæð­ingur minn hafði ekki fengið að hitta dóttur sína svo mán­uðum skipti, en hún hafði flutt til föður. Sýslu­manns­full­trú­inn ásamt föður beitti móður þrýst­ingi til að sam­þykkja lög­heim­il­is­breyt­ingu, með þeim for­tölum að það myndi auka lík­urnar á að móðir fengi að hitta dóttur sína á ný. 

Í samn­ingnum kemur fram sú meg­in­for­senda móður fyrir samn­inga­gerð­inni að faðir myndi ekki inn­heimta með­lag á hendur móður. Með miklum sem­ingi og ein­göngu í þeim til­gangi að auka líkur á að fá að hitta dóttur sína und­ir­rit­aði umbj. minn samn­ing­inn. Skemmst er frá því að segja að á þessum tíma var móðir öryrki með u.þ.b. 200.000 kr. mán­að­ar­tekjur á meðan faður var í góðri stöðu hjá banka með 1.200.000 kr. mán­að­ar­laun. 

Viku eftir að samn­ingur þessi var gerður hjá sýslu­manni fór faðir til Trygg­inga­stofn­unar og inn­heimti með­lag úr hendi móður. Enda eru greiðslur með­lags lög­bundnar og ekki hægt að semja sig frá slíku. Móðir, sem áður hafði notið réttar til tvö­falds með­lags með dóttur sinni úr hendi föður, missti með­lagið, missti barna­bætur og önnur rétt­indi sem eru bundin við lög­heim­il­is­for­eldri. Þá hafði samn­ing­ur­inn engin áhrif á þær umgengni­stálm­anir sem voru fyrir hendi. 

Þarna var skjól­stæð­ingur minn beittur órétti og gerður samn­ingur sem var ólög­mætur að efni til. Að hugs­uðu máli tel ég mér skylt að gera lög­manna­fé­lag­inu við­vart því þetta virð­ist ekki vera ein­stakur atburður.

Sýslumaður telur sig óbundinn
af stjórnsýslulögum í sáttameðferð

Eins og Stundin greindi frá þann 12. júní síð­ast­lið­inn telur sýslu­maður sig ekki bund­inn af stjórn­sýslu­lögum við fram­kvæmd sátta­með­ferðar í fjöl­skyldu­málum. Þetta er afstaða emb­ætt­is­ins þrátt fyrir að slík sátta­með­ferð sé lög­bundið ferli og skyldu­bundið hlut­verk sýslu­manns sam­kvæmt barna­lögum. 

Í 71. gr. barna­laga, í kafla um með­ferð og úrlausn stjórn­valda á málum sam­kvæmt lög­unum, segir orð­rétt: Að því leyti sem ekki er kveðið á um annað í lögum þessum fer um með­ferð máls sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum. Þótt ekki sé tekið fram í 33. gr. um sátta­með­ferð að slík mál séu und­an­þegin gild­is­sviði stjórn­sýslu­laga telur sýslu­maður að svo sé.

Umboðs­maður Alþingis sendi dóms­mála­ráð­herra nýlega fyr­ir­spurn­ar­bréf vegna máls­ins og spurði hvort ráðu­neytið ætl­aði að „grípa til ein­hverra við­bragða gagn­vart sýslu­manni“. Var Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra beðin um að svara bréf­inu eigi síðar en 20. júní en hún óskaði eftir fresti til 16. ágúst. 

Vísaði lögmanni á dyr með vísan til óskráðra reglna

Í áður­nefndu erindi lög­manns til Lög­manna­fé­lags­ins er einnig vísað til ann­ars máls en því sem nefnt var í upp­hafi. Fram kemur að þann 16. maí síð­ast­lið­inn hafi lög­mað­ur­inn mætt á sátta­fund ásamt skjól­stæð­ingi sem var hald­inn vegna beiðni um breyt­ingu á for­sjá.

Þegar gagn­að­ili sam­þykkti ekki að und­ir­rituð væri við­stödd reyndi full­trúi sýslu­manns að vísa mér út af fund­inum. Vegna fyrri reynslu neit­aði ég að víkja af fund­inum og óskaði eftir rök­stuðn­ingi sýslu­manns fyrir því, að hann teldi sér heim­ilt að svipta umbj. minn rétti til að njóta lið­sinnis lög­manns við umræddar samn­inga­við­ræður. 

Svör sýslu­manns­ins, eftir að yfir­maður fjöl­skyldu­deildar var kall­aður til, voru þau að um ,,vinnu­reglur“ væri að ræða hjá emb­ætt­inu. Þegar und­ir­rituð óskaði eftir því að fá afrit af umræddum ,,vinnu­reglum“ og rök­stuðn­ing fyrir því á hvaða laga­grund­velli slíkar reglur væru settar, var því svarað með hroka og skæt­ingi. Reglur um þetta eru hvorki að finna í lögum né í reglum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um ráð­gjöf og sátta­með­ferð skv. 33. gr. a., frá 14. febr­úar 2013. Afleið­ing þessa varð sú að eng­inn sátta­fundur fór fram.

Lög­mað­ur­inn kallar eftir því að Lög­manna­fé­lagið beiti sér og tryggi að rétt­ar­spjöll af þessu tagi eigi sér ekki stað og fólk fái að njóta lög­manns­að­stoðar í sátta­með­ferð hjá sýslu­manni. Hún telur ótækt að opin­bert emb­ætti, sem fer með opin­bert vald til að taka ákvarð­anir sem varða rétt­indi og skyldur manna, leyfi sér að svipta aðila máls rétti til að njóta aðstoðar lög­manns. „Kemur slíkt hrein­lega í veg fyrir að lög­menn fái að rækta laga­legar, sið­ferð­is­legar og fag­legar skyldur sínar gagn­vart skjól­stæð­ingum, sbr. 1. og 8. gr. siða­reglna lög­manna.“ Erindið var tekið fyrir á stjórn­ar­fundi Lög­manna­fé­lags­ins sem ákvað að óska eftir skýr­ingum frá sýslu­manni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár