Varasamt að feta í fótspor Svía

Kostn­aður á hvert stöðu­gildi læknis var hæstur hjá einka­rek­inni heilsu­gæslu­stöð hér­lendis árið 2012. Pró­fessor, aðjúnkt og tveir læknar hafa efa­semdir um að einka­rekstur heilsu­gæslu bæti með­ferð opin­bers fjár eða auki gæði þjón­ust­unnar.

Varasamt að feta í fótspor Svía
Einka­rekstur ekki töfra­lausn Fjölgun einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva um tvær árið 2017 hefur ekki haft afger­andi áhrif á nýliðun heim­il­is­lækna. Mynd: Shutterstock

Ekki er hægt að full­yrða að einka­rekstur í heilsu­gæslu bæti með­ferð opin­bers fjár eða auki gæði þjón­ust­unnar.

Tvær af sautján heilsu­gæslu­stöðvum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru einka­reknar árið 2012. Önnur þeirra var í fimmta sæti yfir þær stöðvar sem voru með lægstan kostnað á hvern skráðan ein­stak­ling en hin í níunda sæti.

Kostn­aður á hvert stöðu­gildi læknis var hæstur hjá annarri einka­reknu stöð­inni en eng­inn mark­tækur munur var á ánægju þjón­ustu­þega eftir rekstr­ar­formi.

Þetta kemur fram í rann­sókn­ar­grein eftir aðjúnkt, pró­fessor og tvo lækna sem birt­ist í nýút­komnu tíma­riti Stjórn­mála og stjórn­sýslu.

Úr grein Héðins Sig­urðs­sonar, Sunnu Gests­dóttur, Sigríðar Hall­dórs­dóttur og Krist­jáns G. Guð­munds­sonar.

Und­an­farin ár hafa íslensk stjórn­völd horft sér­stak­lega til Svía hvað varðar auk­inn einka­rekstur á sviði heilsu­gæslu­þjón­ustu.

„Deila má um ágæti þeirrar fyr­ir­myndar þar sem Svíar eiga einnig við vanda­mál að etja hvað varðar mönnun þjón­ust­unnar, gæði hennar og áhrif þeirra fjár­hags­legu hvata sem heil­brigð­is­starfs­fólki þar í landi er ætlað að taka mið af í störfum sínum,“ segir í rann­sókn­inni.

Þá er bent á að munur á þjón­ustu og aðgengi þjóð­fé­lags­hópa í Svíþjóð hafi auk­ist með vexti einka­rek­innar heilsu­gæslu, and­stætt því sem upp­haf­lega var stefnt að.

„Ein­stak­lingar, sem eru betur settir og við betri heilsu, virð­ast fá meiri þjón­ustu og koma oftar til læknis en fyrir skipu­lags­breyt­ing­una. Þeir sem búa við lang­vinnan heilsu­brest, eru illa settir félags­lega eða búa í dreif­býli, fá minni þjón­ustu. Mögu­leikar á gæða­eft­ir­liti eru auk þess færri,“ segja höf­undar og vitna í skýrslu sænsku rík­is­end­ur­skoð­un­ar­innar þessu til stuðn­ings.

Ekki haft afgerandi áhrif á nýliðun

„Hávær­ustu rökin sem notuð eru fyrir víð­tæk­ari einka­rekstri í heilsu­gæslu eru bætt nýliðun. […] Fjölgun einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva um tvær árið 2017 hefur þó ekki haft afger­andi áhrif á nýliðun heim­il­is­lækna, en lang­flestir lækna nýju einka­stöðv­anna komu af rík­is­reknum stöðvum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir jafn­framt í grein­inni.

Fram kemur að mis­munur á kostn­aði af heilsu­gæslu einka­rek­inna og rík­is­rek­inna starfs­stöðva á Íslandi sé ekki afger­andi og við­horfskann­anir greini ekki mun á ánægju þjón­ustu­þega eftir rekstr­ar­formi. Gæta verði sér­stak­lega að því að aukið vægi einka­rekstrar leiði ekki til lak­ari þjón­ustu gagn­vart þeim sem höllustum fæti standa. 

Hér má lesa fræði­grein­ina í heild, en höf­undar hennar eru Héðinn Sig­urðs­son, læknir á Heilsu­gæsl­unni Glæsibæ, Sunna Gests­dóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands, Sigríður Hall­dórs­dóttir, pró­fessor við Háskól­ann á Akureyri og Kristján G. Guð­munds­son, læknir á Reykja­lundi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár