Átak í friðlýsingu náttúru til að skapa fjárhagsleg og samfélagsleg tækifæri

Efna­hags­legt mik­il­vægi nátt­úr­un­vernd­ar­svæða verður sett í for­grunn við átak umhverf­is­ráð­herra í frið­lýs­ingu svæða. Framlag til verk­efn­is­ins er 36 millj­ónir króna.

Átak í friðlýsingu náttúru til að skapa fjárhagsleg og samfélagsleg tækifæri
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son Umhverf­is­ráð­herra kynnti rík­is­stjórn­inni áform um aukna frið­lýs­ingu í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, und­ir­býr átak í frið­lýs­ingum á nátt­úru­vernd­ar­svæðum. Hann kynnti áformin í dag fyrir rík­is­stjórn­inni.

Rík­is­stjórnin hefur ráð­stafað 36 millj­ónum króna til átaks­ins árlega næstu tvö árin, og svo 12 millj­ónum króna á ári til und­ir­bún­ings stofn­unar mið­há­lend­is­þjóð­garðs.

Guð­mundur Ingi er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna Land­verndar og vakti því nokkra athygli þegar hann var gerður umhverf­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Haft er eftir honum í frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins að leitað verði eftir sam­starfi við land­eig­endur um nátt­úru­vernd og efna­hags­leg áhrif hennar greind.

„Við viljum til dæmis skoða þau tæki­færi sem fel­ast í efna­hags­legu mik­il­vægi nátt­úru­vernd­ar­svæða“

„Við nálg­umst nátt­úru­vernd­ina á nýjan hátt og meira út frá sjálf­bærri þróun. Við viljum til dæmis skoða þau tæki­færi sem fel­ast í efna­hags­legu mik­il­vægi nátt­úru­vernd­ar­svæða og auk­inni sam­vinnu við land­eig­endur. Friðlýst svæði geta haft mikil efna­hags­leg áhrif og mik­il­vægt er að þekkja þau,“ segir Guð­mundur Ingi.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins er fjallað um að frið­lýs­ing geti skapað fjár­hags­leg og sam­fé­lags­leg tæki­færi fyrir byggðir lands­ins:

„Í umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu eru í und­ir­bún­ingi verk­efni með ýmsum sam­starfs­að­ilum til að styðja betur við fram­gang frið­unar og frið­lýs­inga, svo sem með því að meta for­sendur fyrir sam­starfi við bændur og aðra land­eig­endur um nátt­úru­vernd, enda mörg svæði sem skipta miklu fyrir nátt­úru­vernd í land­inu í einka­eigu. Hagræn áhrif frið­lýstra svæða verða einnig metin og framundan er skipu­lögð mæl­ing á slíkum áhrifum á ell­efu nátt­úru­vernd­ar­svæðum hér á landi ... Frið­lýs­ing svæða getur falið í sér ýmis tæki­færi fyrir dreifðar byggðir. Frið­lýs­ingar og frið­anir geta verið mis­mun­andi og með ólíkum áherslum eftir aðstæðum og tæki­færum á hverju svæði, svo sem fjár­hags­legum og sam­fé­lags­legum tæki­færum í jað­ar­byggðum. Umhverf­is­ráðu­neytið hyggst láta vinna sviðs­mynda­grein­ingu fyrir nokkur til­tekin svæði sem hafa verið til umfjöll­unar vegna nátt­úru­verndar, þar með talið stór víð­ern­is­svæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár