Davíð Oddsson fær rúmar 1,6 milljónir á mánuði í eftirlaun

Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra fær 80% af launum núver­andi for­sæt­is­ráð­herra í eft­ir­laun, sam­kvæmt lögum sem hann stóð að sjálfur. Hann þiggur einnig eft­ir­laun frá Seðla­banka Íslands, til við­bótar við laun sín sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.

Davíð Oddsson fær rúmar 1,6 milljónir á mánuði í eftirlaun
Davíð Oddsson Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins var með 5,7 millj­ónir króna í launa­tekjur á mán­uði árið 2017, sam­kvæmt tekju­blaði Frjálsrar versl­unar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fær rúmar 1,6 millj­ónir króna á mán­uði í eft­ir­laun frá íslenska rík­inu sam­kvæmt eft­ir­launa­lög­unum sem hann stóð að sjálfur. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá líf­eyr­is­sjóðnum LSR á fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sem setið hefur jafn lengi og Davíð rétt á 80% af launum for­sæt­is­ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi, sam­tals 1.617.460 kr. Laun Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra eru 2.021.825 kr. sam­kvæmt ákvörðun kjara­ráðs. LSR neit­aði að gefa upp­lýs­ingar um ein­staka líf­eyr­is­þega.

Í tekju­blaði Frjálsrar versl­unar kemur fram að launa­tekjur Davíðs, sem starfar nú sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, séu um 5,7 millj­ónir á mán­uði. Nema eft­ir­launa­greiðslur hans vegna setu sem ráð­herra því rúmum fjórð­ungi af þeirri upp­hæð. Davíð á einnig rétt á eft­ir­launum frá tíma sínum sem seðla­banka­stjóri á árunum 2005 til 2009.

247 manns fá 70 milljónir samkvæmt eldri lögum

Eft­ir­launa­lögin svoköll­uðu voru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár