Svandís boðar breytingu frá stefnu Bjarna: Grænmetið verði ódýrara en gosdrykkir dýrari

Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra boðar endurkomu sykur­skatts í breyttri mynd. Hærri skattar á sykur­vörur verði nýttir til að ívilna grænmeti. Sykur­neysla er mest á Íslandi af öllum Norður­löndunum.

Svandís Svavarsdóttir
Svandís Svav­ars­dóttir Mynd: Pressphotos

Tæpum fjórum árum eftir að Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra aflagði sykur­skattinn svokallaða sem leiddi af sér verulega verð­lækkun á sykruðum matvælum boðar Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra að innleiða beri hærri skatt á gosdrykki og lækka skatta á grænmeti. 

Svandís kynnti í dag fyrir ríkis­stjórninni tillögur Land­læknis­embættisins um breytingar á sköttum á matvæli til að styðja við lýðheilsu. Þar kom fram að „sykur­neysla sé mjög mikil hér á landi, hún sé yfir ráðlagðri hámarks­neyslu meðal ungs fólks og barna og í saman­burði við hinar Norður­landa­þjóðirnar sé neysla á sykruðum gosdrykkjum og sykur­ríkum vörum mest hér á landi.“ 

„Fjármunir sem koma inn séu nýttir til að lækka álögur á grænmeti og ávexti.“

Leiðin sem Svandís og Land­læknis­embættið leggja til er að færa gosdrykki úr 11 prósent skatt­þrepi virðis­aukaskatts í 24 prósent, eins og almenn skatt­heimta á við um. Þá er lagt til að vörugjöld á gosdrykki verði endur­reist.

Ríkis­stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hækkaði skatta á sykur­vörur 1. mars 2013, en ríkis­stjórn undir forystu Bjarna Benedikts­sonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar aftur­kallaði breytingarnar. 

Á sama tíma voru skattar á grænmeti og önnur matvæli hækkaðir um 4 prósentu­stig, úr 7 prósentum í 11 prósent. Svandís, ásamt embætti land­læknis sem er stutt af Alþjóða­heilbrigðis­stofnuninni WHO, leggur til öfuga þróun, að ríkið stuðli að því að verð á grænmeti lækki en verð á sykur­vörum hækki.

Bjarni og Sig­mundurVirð­is­auka­skattur á mat­væli var hækk­aður í tíð Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, en verð lækkað á sykruðum mat­vælum með aflétt­ingu vöru­gjalda á þau.

„Fjármunir sem koma inn séu nýttir til að lækka álögur á grænmeti og ávexti. Eyrna­merkja ætti hluta af álögunum fyrir starf á sviði heilsu­eflingar eins og gert er með gjöld á tóbak og áfengi. Þannig geta stjórn­völd skapað aðstæður sem hvetja til heilbrigðari lifnaðar­hátta og aukið jöfnuð til heilsu,“ segir í kynningu á tillögunum.

Í tilkynningu á vef heilbrigðis­ráðuneytisins segir Svandís „mikilvægt að stjórn­völd fjalli um tillögur Embættis land­læknis“ og vísar til stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks.

„Þetta var einfald­lega enn einn skatturinn á íslensk heimili sem er tímabært að afnema.“

Afnám sykur­skattsins á sínum tíma var rökstutt af fjármála­ráðuneyti Bjarna Benedikts­sonar með því að skatturinn hefði lítil sem engin áhrif á neyslu og að þörf væri á því að einfalda virðis­aukaskatts­kerfið.

„Rétt er að taka fram að með afnámi sykur­skattsins er ekki verið að taka neina afstöðu með sykur­neyslu, síður en svo. Staðreyndin er sú að þetta gjald leggst einfald­lega með þriggja milljarða þunga á íslensk heimili. Þetta gjald, sem komið var á undir formerkjum neyslu­stýringar eða í búningi lýðheilsu­markmiða, hefur engan veginn náð þeim tilgangi og var aldrei líklegt til þess. Þetta var einfald­lega enn einn skatturinn á íslensk heimili sem er tímabært að afnema. Það munum við gera með þeim tillögum sem liggja fyrir þinginu til hagsbóta fyrir heimilin í landinu,“ sagði Bjarni í umræðu um stefnu­ræðu forsætis­ráðherra árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár