ESA stefnir norskum stjórnvöldum vegna brota á réttindum feðra

Réttindi mæðra til töku laun­aðs fæð­ing­ar­or­lofs umtals­vert meiri en feðra. Réttindi feðra ráð­ast af atvinnu­þátt­töku barns­mæðra þeirra. Norska ríkið neitar að um brot á til­skip­unum sé að ræða.

ESA stefnir norskum stjórnvöldum vegna brota á réttindum feðra
ESA stefnir Noregi Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, hefur stefnt Noregi fyrir að brjóta gegn jöfnum rétti karla og kvenna til töku fæð­ing­ar­or­lofs. Mynd: Shutterstock

Eft­ilits­stofnun EFTA, ESA, hyggst stefna norska rík­inu fyrir EFTA-dóm­stól­inn vegna brota á jafn­ræði norskra for­eldra þegar kemur að töku fæð­ing­ar­or­lofs. Í Noregi eru í gildi ákveðnar hömlur á því að feður geti tekið launað fæð­ing­ar­or­lof, sem byggja á því að feður eiga aðeins heimt­ingu á slíku orlofi séu barns­mæður þeirra með atvinnu eða í námi. Engar slíkar hömlur eru hins vegar á fæð­ing­ar­or­lofstöku mæðra. Þetta telur ESA að feli í sér mis­munum milli kynja, sem sé brot á EES-samn­ingnum, og hyggst því fara með málið fyrir dóm­stóla.

Norskir for­eldrar eiga rétt á 10 vikna laun­uðu fæð­ing­ar­or­lofi, að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. Þá eiga for­eldrar einnig rétt á 26 vikna laun­uðu fæð­ing­ar­or­lofi sem þeim er heim­ilt að skipta á milli sín eftir eigin óskum. Fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið norska er þannig ekki ósvipað því íslenska utan þess að nema að því leyti að fæð­ing­ar­or­lofið þar er nokkru lengra en tíðkast hér heima. Hér á landi á hvort for­eldri fyrir sig rétt á 3 mán­aða orlofi og geta síðan skipt á milli sína 3 mán­uðum þar á ofan.

Hömlur á réttindi feðra

Norsku regl­urnar um fæð­ing­ar­or­lof segja hins vegar að feður eigi ein­ungis rétt á að taka launað fæð­ing­ar­or­lof séu barns­mæður þeirra annað hvort með atvinnu eða í námi. Engar slíkar hömlur eru á rétti mæðr­anna. Auk þess eru greiðslur til feðra, þegar kemur að sam­eig­in­lega hluta orlofs­ins, reikn­aðar út frá atvinnu­þátt­töku mæðr­anna en það á hins vegar ekki við þegar dæm­inu er snúið við. Norskar mæður hafa því umtals­vert meiri rétt­indi þegar kemur að töku laun­aðs fæð­ing­ar­or­lofs.

ESA hefur lýst þeirri afstöðu sinni við norsk stjórn­völd að þessi háttur sem hafður er á brjóti gegn EES-samn­ingnum enda sé hér um að ræða beina mis­munum á grunni kyn­ferðis. Norska rík­is­stjórnin hefur hins vegar hafnað afstöðu ESA og haldið því fram að til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, sem ESA leggur til grund­vallar afstöðu sinni, eigi ekki við um norskar reglur um fæð­ing­ar­or­lof. Norsk stjórn­völd slá einnig þann varnagla að ef til­skip­unin hafi þrátt fyrir allt gildi þegar kemur að norskum ákvæðum um fæð­ing­ar­or­lof, þá hljóti norska leiðin að telj­ast „jákvæð aðgerð“ í ljósi þess að hún hvetji til atvinnu­þátt­töku kvenna. Þessu hafnar ESA.

Málið hófst fyrst í októ­ber 2015 þegar ESA hóf frum­kvæð­is­at­hugun á því hvort hinar norsku reglur brytu gegn EES-samn­ingnum. ESA vakti athygli norskra stjórn­valda á mál­inu í júlí 2016 en sem fyrr segir hafnar norska rík­is­stjórnin því að um brot sé að ræða. ESA hefur því tekið ákvörðun um það í dag að fara með málið fyrir EFTA-dóm­stól­inn.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár