Yfirlýsing frá Trans Ísland vegna niðurlægjandi umfjöllunar í ósamræmi við veruleikann

„Ekki ein ein­asta trans mann­eskja hefur enn verið hand­tekin fyrir morð á karl­manni vegna kyn­vit­undar hans,“ segir í yfir­lýs­ingu Trans Ísland vegna umfjöll­unar og umræðu um að for­maður og stjórn­ar­með­limur félags­ins vildu karl­menn feiga, en umfjöll­unin byggði á því að kald­hæðin satíra væri raun­veru­legt við­horf þeirra.

Yfirlýsing frá Trans Ísland vegna niðurlægjandi umfjöllunar í ósamræmi við veruleikann
Alda Villi­ljós Formaður félags­ins Trans Ísland er sögð vilja karl­menn feiga í frétt það sem vitnað er í orð hánar án þess að geta sam­hengis. Mynd: Pressphotos

Félagið Trans Ísland hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar um orð for­manns og stjórn­ar­með­lims félags­ins á DV.is í dag, þar sem fjallað var um að þau teldu karl­menn „eiga skilið að deyja“, en ekki greint frá því að orðin féllu í kald­hæðni í hlað­varpi þar sem til­greint var sér­stak­lega að um ádeilu væri að ræða og sér­stak­lega til­greint í upp­hafi að „fárán­leg hug­mynd“ væri að femínistar vildu útrýma karl­mönnum.

Yfir­lýs­ingin er send í nafni stjórnar Trans Ísland, en umræddir stjórn­ar­menn, Alda Villi­ljós og Sæborg Ninja, komu ekki að gerð hennar.

„Okkur finnst það fyrir neðan allar hellur að rit­stjórn DV stilli þessu upp sem hat­urs­orð­ræðu á for­rétt­inda­hóp,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Í þess­ari grein voru til­vitn­anir í hlað­varpið sem teknar voru úr öllu sam­hengi. Þessar til­vís­anir voru settar fram af Öldu og Sæborgu, eins og hlað­varpið allt, sem satíra. Eru karl­menn á Íslandi í dag virki­lega svona hræddir um að trans fólk eigi eftir að rísa upp og fjölda­myrða karl­menn, þegar sagan segir okkur að það séu einmitt hat­urs­fullir og reiðir karl­menn sem eru að drepa hund­ruðir trans fólks á ári,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þá segir Trans Ísland að DV nið­ur­lægi trans fólk til þess að fá smelli á frétt sína.

Kaldhæðni stillt fram sem viðhorfi

Á upp­tök­unni, sem ekki var birt með grein DV, heyr­ast Alda Villi­ljós og Sæborg Ninja hlæja á þeim tíma sem þau láta ummælin falla, auk þess sem þau kynna í upp­hafi þátt­ar­ins að í hlað­varp­inu ætti að taka umræðu út frá þeim for­dómum gegn femínistum að þeir hati karl­menn. „Þessi hug­mynd, að femín­ismi snú­ist um það að við viljum útrýma öllum karl­mönnum, sem er svo fárán­leg hug­mynd, þannig að við erum bara svona að taka þá hug­mynd og bara hlaupa með hana,“ sagði Alda Villi­ljós í upp­hafi hlað­varps­ins.

Í frétt DV er hins vegar gengið út frá því að ummælin end­ur­spegli raun­veru­legar skoð­anir þeirra tveggja og er fyr­ir­sögnin: „Alda og Sæborg segja karl­menn eiga skilið að deyja: „Lítum frekar á þá eins og kakka­lakka““.

Í yfir­lýs­ing­unni er greint frá því að til­hneig­ingin sé að trans fólk verði fyrir ofbeldi karl­manna, en ekki öfugt. „Árið 2017 voru 325 trans mann­eskjur drepnar fyrir að vera trans. Ekki ein ein­asta trans mann­eskja hefur enn verið hand­tekin fyrir morð á karl­manni vegna kyn­vit­undar hans.“ 

Yfirlýsing Trans Íslands

Í dag birti DV.is nafn­lausa grein um fem­inískt hlað­hvarp sem tveir með­limir í stjórn Trans Íslands reka saman. Í þess­ari grein voru til­vitn­anir í hlað­varpið sem teknar voru úr öllu sam­hengi. Þessar til­vís­anir voru settar fram af Öldu og Sæborgu, eins og hlað­varpið allt, sem satíra.

Okkur finnst það fyrir neðan allar hellur að rit­stjórn DV stilli þessu upp sem hat­urs­orð­ræðu á for­rétt­inda­hóp. Þetta hlað­varp er gott dæmi af hug­tak­inu „punching up“, þar sem fólk í jað­ar­settum hópum (konur, trans fólk) gerir grín að vald­haf­andi hóp (karl­menn). Það er allt og sumt. Það er ekki sam­særi og þetta er ekki útkall fyrir því að Trans Ísland vilji drepa alla karl­menn. Þessi grein og við­brögð hennar gera lítið meira en að sanna það sem Alda og Sæborg hafa einmitt sem aðal þema í þessu hlað­varpi: hvað sam­fé­lagið okkar er með­virkt með eitr­aðri karl­mensku.

Eru karl­menn á Íslandi í dag virki­lega svona hræddir um að trans fólk eigi eftir að rísa upp og fjölda­myrða karl­menn, þegar sagan segir okkur að það séu einmitt hat­urs­fullir og reiðir karl­menn sem eru að drepa hund­ruðir trans fólks (í stórum meiri­hluta trans konur) á ári. Það var meira að segja búið til úrræði sem heitir Trans Murder Mon­itor­ing Project til þess að fylgj­ast með þessum hat­urs­glæpum, og fyrir árið 2017 voru 325 trans mann­eskjur drepnar fyrir að vera trans. Ekki ein ein­asta trans mann­eskja hefur enn verið hand­tekin fyrir morð á karl­manni vegna kyn­vit­undar hans. 

„Ekki ein ein­asta trans mann­eskja hefur enn verið hand­tekin fyrir morð á karl­manni vegna kyn­vit­undar hans.“ 

Við viljum ein­ing koma til skilar að efni hlað­varps­ins end­ur­speglar ekki stefnu Trans Íslands, þar sem bar­átta trans fólks er ekki grín, ólíkt efni hlað­varps­ins. Við for­dæmum einnig stans­lausa mis­kynjun á Öldu í gegnum grein­ina, jafn­vel þó for­nafn háns sé tekið fram og teljum það greini­lega mis­kynjun af ásettu ráði í stað ein­faldra mis­taka. En við í stjórn Trans Íslands skiljum að það hlýtur að vera erfitt að þurfa stans­laust að leit­ast eftir fréttum til að halda áhuga á síðuni þegar það er svo mikið af net­fjöl­miðlum sem að kepp­ast um smelli en við stöndum ein­dregið með Öldu og Sæborgu í þess­ari her­ferð hjá DV að kúga og opin­ber­lega nið­ur­lægja trans fólk til að við­halda smellum á síð­una og pen­ingum frá aug­lýsendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár