Forsætisráðherra svarar opnu bréfi vina Hauks - Mælir gegn því að vinir hans fari til Sýrlands

Segir ekk­ert hafa komið fram sem geti varpað ljósi á hvarf Hauks. Áfram verði unnið að því að finna hann. Tyrkir neiti því að hafa Hauk í haldi.

Forsætisráðherra svarar opnu bréfi vina Hauks - Mælir gegn því að vinir hans fari til Sýrlands
Katrín svarar vinum Hauks Segir ekk­ert hafa komið fram um hvarf Hauks en áfram verði unnið að mál­inu. Ræður vinum hans frá því að ferð­ast til Sýrlands í leit að Hauki. Mynd: Pressphotos

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur birt svar við opnu bréfi vegna máls Hauks Hilm­ars­sonar á Facebook-síðu sinni. 400 manns birtu í gær opið bréf til Katrínar þar sem lýst var áhyggjum af afdrifum Hauks, sem týndur er í Sýrlandi, og lýstu þeirri skoðun að íslensk stjórn­völd hefðu sýnt af sér van­rækslu með aðgerð­ar­leysi sínu við leit­ina að Hauki.

Í bréf­inu, sem und­ir­ritað var af fjölda þjóð­þekktra ein­stak­lingra og ann­arra, var skorað á Katrínu að beita sér taf­ar­laust í máli Hauks með því að reyna með öllum til­tækum leiðum að kom­ast að því hvaðan Tyrk­neskir fjöl­miðlar hefðu fengið þær upp­lýs­ingar að senda ætti lík Hauks heim til Íslands, sem og hvaðan þær upp­lýs­ingar væru komnar að lík Hauks væri í höndum Tyrk­lands­hers. Leita ætti til óháðra aðila til að kom­ast að því hvort þær upp­lýs­ingar ættu við rök að styðj­ast. Þá var skorað á Katrínu að beita fullum þunga við að fá Hauk, lífs eða lið­inn, heim til Íslands væri hann í höndum Tyrkja. Þess var einnig kraf­ist að aðstand­endur Hauks fengju full­nægj­andi aðgang að gögnum um rann­sókn yfir­valda á hvarfi Hauks og að íslensk stjórn­völd sæktu form­lega um leyfi frá tyrk­neskum stjórn­völdum til að hópur úr röðum aðstand­enda Hauks fengju að ferð­ast óáreittir til Afrin að leita hans þar.

Haukur Hilm­ars­sonEkkert hefur spurst til Hauks í tvo mán­uði en hann hvarf eftir bar­daga í Afrin-hér­aði í Sýrlandi seint í mars.

Katrín svarar á Facebook-síðu sinni og fer yfir þær aðgerðir sem íslensk stjórn­völd hafi ráð­ist í til að grennsl­ast fyrir um hvarf Hauks. Leitað hafi verið eftir upp­lýs­ingum hjá tyrk­neskum stjórn­völdum og öðrum til þess bærum yfir­völdum þar í landi, auk mann­úð­ar­sam­taka á svæð­inu. Tyrknesk yfir­völd hafi gerið þær upp­lýs­ingar að Tyrkir hafi Hauk ekki í haldi og að hans verði leitað meðal fall­inna og særðra á svæð­inu.
Þá hafi verið leitað til vina­þjóða Íslands með beiðni um að afla upp­lýs­inga um málið, og íslensk lög­reglu­yf­ir­völd hafi í sam­starfi við nor­ræna og evr­ópska kollega sína kannað það einnig.

Enn hafi hins vegar ekk­ert komið fram sem varpað geti ljósi á hvað orðið hafi um Hauk en áfram verði unnið að mál­inu. Ekki sé unnt að afhenda öll gögn sökum þess að um þau ríki trún­aður um milli­ríkja­sam­skipti.

Þá segir einnig að íslensk stjórn­völd geti ekki mælt með því að íslenskir rík­is­borg­arar ferð­ist til svæð­is­ins þar sem þeim geti stafað mikil hætta af þeim átökum sem þar geisi. 

Svar Katrínar er svohljóð­andi:

Vegna opins bréfs um mál Hauks Hilm­ars­sonar

Mál Hauks Hilm­ars­sonar hefur verið í algjörum for­gangi hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu frá því það kom upp. Borg­ara­þjón­usta utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur leitað allra leiða til að kom­ast að afdrifum Hauks og lögð hefur verið áhersla á að vinna náið með fjöl­skyldu Hauks.

Um leið og fregnir bár­ust af því að Tyrkir kynnu að hafa Hauk í haldi var haft sam­band við Tyrki.

Í fyrsta lagi var það gert í gegnum sendi­herra Tyrk­lands í Osló sem er æðsti full­trúi tyrk­neskra stjórn­valda gagn­vart Íslandi.

Í öðru lagi hafa íslensk og tyrk­nesk stjórn­völd, þ.m.t. her­mála­yf­ir­völd, verið í stöð­ugu sam­bandi eftir ýmsum leiðum frá þeim degi.

Í þriðja lagi hefur mál Hauks hefur verið tekið upp við utan­rík­is­ráð­herra, varn­ar­mála­ráð­herra og fjöl­skyldu­mála­ráð­herra Tyrk­lands. Þær upp­lýs­ingar hafa feng­ist á því að Tyrkir hafi Hauk ekki í haldi og að hans verði leitað meðal lát­inna og særðra á svæð­inu.

Í fjórða lagi hefur verið leitað eftir upp­lýs­ingum í gegnum óform­legri sam­skipti, s.s. við mann­úð­ar­sam­tök sem hafa aðgang að svæð­inu.

Í fimmta lagi hafa lög­reglu­yf­ir­völd, sem fara með rann­sókn manns­hvarfa, rann­sakað málið, m.a. í gegnum nor­rænt og evr­ópskt sam­starf lög­reglu­yf­ir­valda.

Í sjötta lagi hefur verið haft sam­band við sjö vina­þjóðir til að afla upp­lýs­inga um hvernig staðið sé að svip­uðum borg­ara­þjón­ustu­málum. Þessi ríki hafa öll áréttað að staðan sé ein­stak­lega flókin, og erfitt sé að afla upp­lýs­inga og enn erf­ið­ara að veita aðstoð. Aðrar upp­lýs­ingar liggja því miður ekki fyrir að svo stöddu.

Í sjö­unda lagi ræddi ég málið við Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands og bað um aðstoð við að afla upp­lýs­inga um afdrif Hauks. Í kjöl­farið áttu íslenskir emb­ætt­is­menn sam­skipti við þýska emb­ætt­is­menn.

Því miður hefur enn ekk­ert komið fram sem varpað getur ljósi á hvað orðið hefur um Hauk. Áfram er unnið að mál­inu af alúð og heil­indum innan borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins með þeim úrræðum sem til staðar eru af fullum þunga.

Ekki er unnt að afhenda öll gögn sem til eru um fram­gang og nið­ur­stöður íslenskra stjórn­valda á hvarfi Hauks. Ástæður þess eru að trún­aður ríkir um milli­ríkja­sam­skipti. Einnig er það þannig að sum gögn sem tengj­ast máli Hauks inni­halda upp­lýs­ingar um ein­stak­linga sem geti ógnað öryggi þeirra. Aðstand­endur hans hafa hins vegar verið upp­lýstir um efni og nið­ur­stöðu þeirra sam­skipta eftir því sem kostur hefur verið.

Íslensk stjórn­völd geta ekki mælt með því að íslenskir rík­is­borg­arar ferð­ist til svæð­is­ins, þar sem þeim getur stafað mikil hætta af þeim átökum sem geisa á svæð­inu.

Her­mála­yf­ir­völd, mann­úð­ar­sam­tök og borg­ara­þjón­ustur sam­starfs­ríkja hafa sagt ástandið á svæð­inu mjög óör­uggt og hafa raunar ekki haft aðgang að því um nokk­urra vikna skeið.

Öll ríkin ráða borg­urum sínum frá ferða­lögum til Sýrlands almennt enda er geta þeirra til að veita borg­ara­þjón­ustu mjög tak­mörkuð. Ferða­við­var­anir, þar sem varað er við öllum ferðum til Sýrlands vegna ríkj­andi ástands, eru því í fullu gildi.

Katrín Jak­obs­dóttir.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár