Alþingi hefur ekki yfirlit yfir ábendingar úr rannsóknarskýrslum

Forseti Alþingis segir það ekki hlutverk embættisins eða skrif­stofu þingsins að taka saman ábendingar úr rann­sóknar­skýrslum Alþingis sem snúi að þinginu sjálfu.

Ekki hlutverk Steingríms
Ekki hlut­verk Stein­gríms Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, segir það ekki hlut­verk for­seta að taka saman ábend­ingar úr rann­sókn­ar­skýrslum Alþingis sem beint sé að þing­inu sjálfu. Mynd: Pressphotos

Forseti Alþingis eða skrif­stofa þingsins búa ekki yfir yfirliti yfir þær ábendingar í rann­sóknar­skýrslum Alþingis sem sérstak­lega er beint að Alþingi sjálfu. Þær hafa ekki verið teknar saman og lítur forseti þingsins ekki svo á að það sé hans hlutverk, eða stjórn­sýslu Alþingis, að gera slíkt né heldur að tryggja að brugðist sé við ábendingum sem beint er til þingsins. Það sé löggjafar­valdsins, þingmanna sjálfra, að gera það í samræmi við megin­regluna um sjálf­stæði Alþingis.

Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfús­sonar, forseta Alþingis, við fyrir­spurn Björns Leví Gunnars­sonar, þingmanns Pírata. Björn spurði meðal annars um hvort forseti hefði tekið saman yfirlit yfir ábendingarnar, hvernig tryggt hefði verið að þeim hefði verið fylgt eftir og hver bæri ábyrgð á að svo hefði verið gert.

Ekki hlutverk forseta

Í svarinu kemur fram að slíkt yfirlit hafi ekki verið tekið saman af hálfu forseta Alþingis eða skrif­stofu þingsins. Umræddar skýrslur varði ekki stjórn­sýslu á vegum Alþingis eða stjórn­sýslu sem þinginu hafi verið sérstak­lega falin samkvæmt lögum og því sé það ekki hlutverk forseta Alþingis að hlutast til um viðbrögð við umræddum ábendingum, þó þær snúi að þinginu sjálfu. Alþingi sjálft, löggjafar­samkoman, hafi fjallað um störf rann­sóknar­nefndanna sem um ræðir og beint tilmælum til stjórn­valda þegar við hefur átt. Þannig hafi nefnd níu þingmanna fjallað um ábendingar og tillögur í skýrslu rann­sóknar­nefndar á falli falli íslensku bankanna. Sú nefnd hafi skilað þings­ályktunar­tillögu árið 2010 um afgreiðslu skýrslunnar frá Alþingi og var sú tillaga samþykkt.

Í svari forseta segir enn fremur: „Í samræmi við 8. mgr. 45. gr. laga um þingsköp Alþingis hefur forsætis­ráðherra gert grein fyrir því í skýrslum sínum um meðferð og framkvæmd ályktana Alþingis hvernig brugðist hefur verið við ábendingum og tillögum rann­sóknar­nefndar Alþingis.“

Björn Leví spurði einnig hver hefði verið tilnefndur ábyrgðar­aðili umræddra mála. Í svari Steingríms kemur fram að það falli ekki undir stjórn­sýslu þingsins að tilnefna slíkan aðila heldur leiði það af megin­reglunni um sjálf­stæði Alþingis að þingið sjálft ákveði með hvaða hætti það vilji fram­fylgja ályktunum sínum eða þeim rann­sóknum sem farið hafi fram á þess vegum. Það sé ekki hlutverk forseta.

 




Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár