Forstjóri stærsta hagsmunaaðilans í íslensku laxeldi hættur

Trond Williksen, for­stjóri stærsta hlut­hafa Arnarlax, hættir hjá Salmar út af per­sónu­legum ástæðum. Laxeldi á Íslandi er fjár­fest­ing til fram­tíðar segir Trond.

Hættur hjá Salmar
Hættur hjá Salmar Trond Williksen, for­stjóri Salmar A/S, stærsta hlut­hafa Arnarlax, er hættur hjá fyr­ir­tæk­inu. Mynd: Laxeldi

For­stjóri norska lax­eld­is­ris­ans Salmar A/S, stærsta ein­staka hags­muna­að­il­ans í íslensku lax­eldi, er hættur hjá fyr­ir­tæk­inu vegna per­sónu­legra ástæðna. Salmar er stærsti hlut­hafi stærsta íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins, Arnarlax á Bíldudal. Sagt var frá starfs­lokum for­stjór­ans, Trond Williksen, í til­kynn­ingum frá Salmar A/S sem fjöl­miðlum bár­ust í vik­unni en fyr­ir­tæk­inu er skylt að greina frá starfs­lokum hans sökum þess að Salmar er skráð á norska hluta­bréfa­mark­að­inn. 

Einbeitir sér að sjálfum sér

Í til­kynn­ingu frá Salmar er haft eftir Trond, sem tók við starf­inu árið 2016, að hann hafi upp­lifað erf­iða tíma síð­ast­liðin ár, án þess að hann útskýri við hvað sé átt. „Salmar hefur skilað met­rekstr­ar­nið­ur­stöðum síð­ustu miss­erin og við höfum skapað veru­leg verð­mæti fyrir hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins. Ég hef átt frá­bæran tíma hjá fyr­ir­tæk­inu. Að stýra Salmar er bæði spenn­andi og krefj­andi. Þeir sem þekkja mig vita að ég hef upp­lifað erf­iða tíma síð­ast­liðin ár og ég vil ein­beita mér meira að sjálfum mér um hríð,“ sagði Trond Williksen í til­kynn­ing­unni. Við starfi Tronds tekur Olav-Andreas Ervik, sem verið hefur vinnslu­stjóri Salmar. 

Tals­verðar deilur og styr hafa staðið um lax­eldi á Íslandi síð­ast­liðin ár. Takast þar á ólík sjón­ar­mið eins og byggða- og efna­hags­sjón­ar­mið á Vest­fjörðum og Aust­fjörðum ann­ars vegar og svo nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­mið og hags­munir veiði­rétt­ar­hafa og land­eig­enda hins vegar. Salmar A/S hefur eðli­lega dreg­ist inn í þessa umræðu vegna mik­illar fjár­fest­ingar fyr­ir­tæk­is­ins í íslensku lax­eldi í sjó­kvíum við strendur lands­ins en á sama tíma hefur fyr­ir­tækið unnið að því að þróa umhverf­is­vænni lausnir í lax­eldi meðal ann­ars aflandseldi – fisk­eldi í sjó­kvíum sem eru stað­settar lengst á hafi úti. 

Sjókvíaeldi líka framtíðin

Stundin hefur meðal ann­ars tekið við­tal við Trond Williksen út af fjár­fest­ingum fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi sam­hliða þróun Salmar A/S á aflandseldi. Í sept­em­ber í fyrra sagði Trond við Stundina: „Þróunin á úthaf­seldi á fiski er við­bót við sjálf­bært lax­eldi við strendur landa og í fjörðum. Mögu­leik­inn á stækkun á strand­svæðum er tak­mark­aður og ef lax­eldi á að þró­ast frekar sem atvinnu­grein verður ein­hver að taka næsta skref og hefja fisk­eldi úti á sjó til að fram­leiða sjálf­bæran mat. Salmar er fyrsta fyr­ir­tækið til að taka þetta skref.“ Hann sagði jafn­framt að þrátt fyrir úthaf­seldið þá muni strand­eldið í „allra nán­ustu fram­tíð verða aðal­fram­leiðslu­að­ferðin á laxi í heim­inum“. Sjó­kvía­eldi Salmar við strendur Íslands er því fjár­fest­ing til fram­tíðar, miðað við þessi svör Tronds. ingi@stundin.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

6
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár