Gylfi vill leggja 65 prósent skatt á „sjálftökuliðið“

Forseti ASÍ segir stjórn­völd verða að bregð­ast við auk­inni mis­skipt­ingu

Gylfi vill leggja 65 prósent skatt á „sjálftökuliðið“
Ráðast þarf gegn mis­skipt­ing­unni Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, segir að eng­inn friður verði í sam­fé­lag­inu nema stjórn­völd bregð­ist við auk­inni mis­skipt­ingu. Hann vill að 65 pró­sent hátekju­skattur verði lagður á þá sem hæst hafa launin. Mynd: Hörður Sveinsson

Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, segir að aldrei muni skap­ast sátt í sam­fé­lag­inu á meðan að örlít­ill hluti þjóð­ar­innar hrifsi til sín ver­mæti á kostnað almenn­ings. „Það á bara að setja á 65 pró­sent hátekju­skatt, á þá sem hæstar hafa tekj­urnar,“ segir Gylfi í for­síðu­við­tali Stund­ar­innar sem kom út í dag.

Gylfi segir að verði sívax­andi mis­skipt­ing í þjóð­fé­lag­inu ekki stöðvuð muni það enda með með ósköpum. Stjórn­völd verði að bregð­ast við, krafa Alþýðu­sam­bands­ins í þeim efnum sé skýr. „Ef sitj­andi rík­is­stjórn vill ná ein­hverjum snefli af starfs­friði á þessu kjör­tíma­bili þá verður hún að setja á hátekju­skatt. Ef hún vill  ná til þjóð­ar­innar, verður að hlusta á hana. Það á bara að setja á 65 pró­sent hátekju­skatt, á þá sem hæstar hafa tekj­urnar, ann­ars mun þetta sjálftökulið aldrei hætta að hrifsa til sín ómæld verð­mæti á kostnað almenn­ings.“

Lesa má við­talið í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar. 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár