900 tonn af eldislaxi í súginn hjá Arnarlaxi

Tæplega 1/5 hluti alls eld­is­lax Arnarlax í Tálkna­firði drapst á um það bil mán­uði. Fram­kvæmda­stjóri Arnarlax, Víkingur Gunn­ars­son, segir óþarft að örvænta vegna þessa því lax­eldi sé á réttri leið á Íslandi.

900 tonn af eldislaxi í súginn hjá Arnarlaxi
Dæla upp dauðum laxi Þjón­ustu­bátar Arnarlax hafa unnið að því í nokkrar vikur að dæla dauðum laxi upp úr eld­iskví­unum í Tálkna­firði. Myndin er af einum slíkum og er tekin í Tálkna­fjarð­ar­höfn nú í mars.

Tjón lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax vegna skemmda á eld­is­kví í Tálkna­firði, flutn­ings laxs­ins í kvínni yfir í aðra, nýrna­veiki og mik­ills sjáv­ar­kulda nemur um 900 tonnum af eld­is­laxi. Þetta er tæp­lega 1/5 hluti heild­ar­fram­leiðslu Arnarlax í ár í Tálkna­firði en í firð­inum rekur eld­is­fyr­ir­tækið tólf sjó­kvíar. Þetta kemur fram í máli Víkings Gunn­ars­sonar, fram­kvæmda­stjóra Arnarlax, í svörum hans við spurn­ingum Stund­ar­innar. „Afföllin í Tálkna­firði vegna flutn­inga á fiski og vetr­ar­sára liggur fyrir, sam­tals 900 tonn. Það breytir því ekki að megnið af fiski sem slátrað var í Tálkna­firði var hágæða fiskur. Þrátt fyrir mikil afföll úr kví 8 vegna vetr­ar­sára var megnið af fiski sem slátrað var úr kvínni heil­brigður og fal­legur fiskur, hágæða afurðir,“ segir Víkingur í svari við spurn­ingum Stund­ar­innar í tölvu­pósti. 

Ítrekuð skakkaföll leiða til laxadauða

Stundin greindi frá því í febr­úar að eld­is­kví Arnarlax í Tálkna­firði hefði sokkið í sæ að hluta eftir að skemmdir urðu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár