Athugasemdakerfi uppfull af hatursorðræðu vegna frétta af morðmáli

Fram­kvæmda­stýra Mann­rétt­inda­skrif­stofu segir fulla ástæðu til að loka athuga­semda­kerfum þegar fluttar eru fréttir af jað­ar­settum hópum. Verði ekki spornað gegn hat­urs­orð­ræðu gæti það orsakað sam­fé­lags­rof.

Athugasemdakerfi uppfull af hatursorðræðu vegna frétta af morðmáli
Morðmál vekur upp ras­isma Frétta­flutn­ingur af aðal­með­ferð í Haga­mels­mál­inu svo­kall­aða hefur orðið til þess að fjöl­margir hafa tjáð sig á athuga­semda­kerfum fjöl­miðla með rasískum hætti og lýst andúð á íslams­trú. Mynd: Af Facebook-síðu lögreglunnar

Fjöl­miðlar ættu að loka fyrir athuga­semda­kerfi við ákveðnar fréttir þar sem umfjöll­un­ar­efnið er tengd hópum sem eru jað­ar­settir í sam­fé­lag­inu. Þetta segir fram­kvæmda­stýra Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands í sam­tali við Stundina.

Tilefni umæl­anna eru athuga­semdir sem birtar hafa verið við fréttir net­miðla um aðal­með­ferð í svoköll­uðu Haga­mels­máli sem nú stendur yfir. Sak­born­ing­ur­inn í mál­inu er frá Jemen og hafa fjöl­margar athuga­semdir ein­kennst af andúð á íslam og kyn­þátta­for­dómum.

Í mál­inu er Khaled Cairo, 39 ára gam­all maður frá Jemen, ákærður fyrir að hafa orðið Sanitu Brauna, 44 ára gam­alli konu frá Lett­landi, að bana á heim­ili hennar að Hagamel í Reykja­vík að kvöldi 21. sept­em­ber á síð­asta ári. Aðal­með­ferð í mál­inu hófst í dag fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og hafa verið fluttar fréttir þaðan á net­miðlum, margar hverjar með óhuggu­legum lýs­ingum.

Andúð á íslam áberandi

Í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla hafa birst gróf ummæli, bæði við fréttir af aðal­með­ferð­inni en einnig við aðrar og eldri fréttir af mál­inu. Þannig segir í einni athuga­semd á Vísi: „Madurinn er fra yemen.ofga­muslimar eru thar I meiri­hluta.hann getur ekki falid sig a bak vid gedrask­anir nema hann se ad vid­ur­kenna islam.sem ged­veiki“. Í annarri athuga­semd segir: „Hann kemur úr íslömskum menn­ing­ar­heimi þar sem konur eru eign. Þær skulu vera heima, fela sig og hvað þá að að dirfast að senda öðrum mönnum skila­boð, dauða­da­umur eða sýru­árás til að "heið­ur­inn haldi sér " . Menn­ingin sem vinstrill­ingar vilja flytja inn, þvi miður.“ [Mál­far­svillur eru þeirra sem athuga­semd­irnar skrifa].

 „Vernd tján­ing­ar­frels­ins var ekki hugsuð til þess að ein­stak­lingar gætu úthúðað öðrum ein­stak­lingum á grund­velli húð­litar þeirra, trú­ar­bragða eða upp­runa“

Loka eða vakta athugsemdakerfi

Margrét Stein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stýra Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands, telur eðli­legt að fjömiðlar loki fyrir athuga­semdr þegar ákveðnar fréttir eru birtar. „Þegar um er að ræða umfjall­anir og frétta­flutn­ing af hópum sem eru jað­ar­settir í sam­fé­lag­inu þá tel ég það þurfi að skoða gaum­gæfi­lega. Ef það er ekki gert þá er í mínum huga alveg ljóst að fjöl­miðlar verða að vakta athuga­semda­kerfin og fjar­lægja hverja þá athuga­semd sem á ein­hvern hátt er ósæmi­leg eða æru­meið­andi, að ég tali ekki um ef þær inni­bera hat­urs­orð­ræðu.“

Tjáningarfrelsið ekki ótakmarkað

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Íslands hefur hvatt fjöl­miðla til að setja sér siða­reglur, bæði varð­andi frétta­flutn­ing en einnig hvað varðar athuga­semda­kerfi. Margrét segir það í sínum huga eiga að vera hluta af siða­reglum fjöl­miðla að loka á athuga­semda­kerfi þegar fjallað er um mál sem gætu vakið for­dóma eða hat­urs­orð­ræðu í garð ákveð­inna hópa.

„Þá gæti ein­hver nefnt að slíkt væri til þess fallið að hefta tján­ing­ar­frelsi en í því sam­hengi verðum við að muna að tján­ing­ar­frelsið er ekki ótak­markað. Réttur eins endar bara þar sem réttur næsta byrjar. Hat­urs­orð­ræða er vax­andi vanda­mál í heim­inum og ef ekk­ert er gert til að sporna gegn henni getum við hrein­lega setið uppi með sam­fé­lags­rof, líkt og gerð­ist í Þýska­landi nas­ism­ans eða í fyrrum Júgóslavíu. Það þarf því að vega og meta þessa hluti,“ segir hún. 

„Í grunn­inn er tján­ing­ar­frelsið auð­vitað einn af horn­steinum sam­fé­lags­ins en við megum ekki gleyma að hugs­unin með því að vernda tján­ing­ar­frelsið var ekki síst til að tryggja að ein­stak­lingar byggju ekki við ofríki stjórn­valda, hefðu rétt­inn til að mót­mæla og svo fram­vegis. Vernd tján­ing­ar­frels­ins var ekki hugsuð til þess að ein­stak­lingar gætu úthúðað öðrum ein­stak­lingum á grund­velli húð­litar þeirra, trú­ar­bragða eða upp­runa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár