Telur Sjálfstæðisflokknum ekki vera alvara með ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur í stjórnarskrá

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn varar við heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar, en ályktar að ákvæði um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu verði inn­leitt í núgild­andi stjórn­ar­skrá. Katrín Odds­dóttir, for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, segir hins vegar að sagan sýni að flokk­ur­inn virði ekki þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur.

Telur Sjálfstæðisflokknum ekki vera alvara með ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur í stjórnarskrá
Vilja ekki umbylta stjórn­ar­skrá Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geldur var­hug við umfangs­miklum breyt­ingum á stjórn­ar­skrá. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins ályktaði um liðna helgi að fara skuli var­lega í breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, að heild­ar­end­ur­skoðun hennar gæti illa sam­ræmst sjón­ar­miðum um réttar­ör­yggi og fyr­ir­sjá­an­leika og að sú leið sem valin hafi verið við end­ur­skoðun á stjórn­ar­skrá nú sé lík­leg­ust til að skapa sátt um þær breyt­ingar sem mest séu aðkallandi. Lík­leg­ast er þar verið að vísa í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem sagt er að skipa eigi nefnd um málið, sem hefja muni störf í upp­hafi þings. Sú nefnd hefur hins vegar ekki enn verið skipuð. Formaður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins segir að ályktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins sýni að hann hafi engan raun­veru­legan áhuga á að breyta stjórn­ar­skránni og að það væri við­eig­andi fyrir hann að skipta um nafn, hann sé aug­ljós­lega ekki flokkur sem berst fyrir sjálf­stæði Íslend­inga.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Sjálf­stæð­is­flokks­ins sam­þykkti á lands­fundi flokks­ins ályktun þar sem fjallað er meðal ann­ars um stjórn­ar­skránna. Þar segir að hyggja þurfi vel „að breyt­ingum á stjórn­ar­skránni og ráð­rúm þarf að gef­ast, bæði innan þings og utan, til að gaum­gæfa til­lögur að breyt­ingum á henni. Með tím­anum mót­ast inn­tak ákvæða hennar, sem skýr­ast svo í fram­kvæmd með túlkun dóm­stóla. Í þessu ljósi telur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að fara skuli var­lega í breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. Heild­ar­end­ur­skoðun sem umturnar öllum ákvæðum stjórn­ar­skrár­innar sam­ræm­ist illa sjón­ar­miðum um réttar­ör­yggi og fyr­ir­sjá­an­leika.“

Segir Sjálfstæðisflokkinn standa í vegi fyrir sjálfstæði

Katrín Odds­dóttir, lög­fræð­ingur og for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, segir aug­ljóst að þessi ályktun sé bara fyr­ir­sláttur, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi engan áhuga á að breyta stjórn­ar­skránni, hvað þá end­ur­skoða hana í heild.

„Flokk­ur­inn vill bara ekki að hér verði tekin upp ný stjórn­ar­skrá“

„Þessi flokkur hefur verið við völd meira og minna síð­ustu ára­tug­ina þannig að ef það væri ein­hver raun­veru­legur áhuga á því að við Íslend­ingar eign­uð­umst okkar eigin stjórn­ar­skrá þá væri Sjálf­stæðs­flokk­ur­inn að sjálf­sögðu búinn að hrinda því í fram­kvæmd. Það að til­taka á hátíð­is­dögum ein­hver vin­sæl orð eins, og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, eða að svara grát­bænum for­seta lýð­veld­is­ins um að hann fengi eðli­lega starfs­lýs­ingu, það er bara fyr­ir­sláttur að mínu mati. Flokk­ur­inn vill bara ekki að hér verði tekin upp ný stjórn­ar­skrá, ef svo væri þá væri hún löngu komin. Ég myndi halda að það væri við­eig­andi, í ljósi þess­arar álykt­unar og þeirrar veg­ferðar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er á í stjórn­ar­skrár­málum, að end­ur­skoða nafn flokks­ins. Þetta er ekki flokkur sem berst fyrir sjálf­stæði þjóð­ar­innar, það er ekki rétt, og hann getur ekki lengur byggt nafn sitt á sjálf­stæð­is­bar­átt­unni því hann stendur hrein­lega í vegi fyrir loka­hnykknum á því að við náum sjálf­stæði, sem er okkar eigin stjórn­ar­skrá. Kannski ætti hann bara að taka upp nafnið Aft­ur­halds­flokk­ur­inn eða eitt­hvað í þá átt.“

Hunsi niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslna

Í ályktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að í stjórn­ar­skrá ætti að vera ákvæði um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, „þannig að til­tekið hlut­fall atkvæð­is­bærra manna geti knúið fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ein­stök laga­frum­vörp.“ Þetta þykir Katrínu kúnstugt í ljósi sög­unnar.

„Flokk­ur­inn hefur farið fremstur í því að hunsa nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar sem fram fór árið 2012, um nýja stjórn­ar­skrá“

Katrín Odds­dóttirFormaður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins segir kynd­ugt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilji inn­leiða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, flokk­ur­inn hafi verið fremstur í flokki þeirra sem hafi hunsað slíkar nið­ur­stöður.

„Það er nokkuð kynd­ugt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vilji inn­leiða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur í því ljósi að flokk­ur­inn hefur farið fremstur í því að hunsa nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar sem fram fór árið 2012, um nýja stjórn­ar­skrá. Í henni kom meðal ann­ars fram að 83 pró­sent kjós­enda vildu að nátt­úru­auð­lindir sem ekki eru nú þegar í einka­eigu yrðu þjóð­ar­eign. Á það er ekki minnst í álykt­unum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fram­hjá þess­ari mjög svo afger­andi nið­ur­stöðu vill flokk­ur­inn aug­ljós­lega líta. Hann hefur engan áhuga á að virða nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna og ég veit ekki hvers vegna í ósköp­unum flokk­ur­inn er á þeirri blað­síðu núna að inn­leiða þær í stjórn­ar­skrá. Það verður þá bara ennþá vand­ræða­legra í fram­tíð­inni þegar nið­ur­stöður sem flokk­ur­inn telur sér ekki boð­legar verða huns­aðar, enn á ný. Ég held í raun að hið mik­il­væga lýð­ræð­is­lega úrræði, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, sé ónýtt á Íslandi þar til eitt­hvað ger­ist varð­andi stjórna­skrár­málið, eitt­hvað í átt við það sem ákveðið var í þeirri atkvæða­greiðslu,“ segir Katrín.

Núgildandi stjórnarskrá tifandi tímasprengja

Katrín gefur lítið fyrir fyr­ir­vara og ótta um að heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar muni umturna öllu og því skuli fara var­lega í breyt­ingar. „Fólk sem hefur rýnt í text­ann í drögum að nýrri stjórn­ar­skrá sér að núgild­andi stjórn­ar­skrá heldur sér að miklu leyti, um 80 pró­sentum. Það bæt­ast hins vegar við ákvæði sem er nauð­syn­legt að komi þarna inn, ákvæði um nátt­úru­vernd, um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur, um fram­sal rík­is­valds og annað. Ég held að það sé hægt að segja að allir stjórn­skip­un­ar­fræð­ingar hér á landi, og víðar, eru sam­mála um að við þurfum á slíkum við­bótum að halda. Það þarf til að mynda að setja inn í stjórn­ar­skrána ákvæði um þing­ræð­is­reglur því núgild­andi stjórn­ar­skrá er bara tif­andi tíma­sprengja. Það að segja að stjórn­ar­skráin hafi til að mynda ekk­ert haft með hrunið að gera er bara til­raun til að afvega­leiða umræð­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár