Gísli hætti vegna skoðanamunar um kostnaðarsama útrás GAMMA

GAMMA opnaði aldrei skrif­stofuna í Sviss sem var auglýst. Forstjórinn og stofn­andinn vildi umdeilda útrás.

Fylgismaður útrásar
Fylg­is­maður útrásar Gísli Hauksson, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri GAMMA, stóð á bak við útrás fyr­ir­tæk­is­ins sem var dýr en virð­ist ekki hafa skilað árangri. Hann hætti hjá GAMMA meðal ann­ars út af skoð­ana­mun um þessa útrás. Mynd: GAMMA.is

Ein af ástæðunum fyrir því að Gísli Hauksson, fyrr­verandi forstjóri og stjórnar­formaður sjóðs­stýringar­fyrir­tækisins GAMMA, hætti hjá fyrir­tækinu í byrjun mars var kostnaðarsöm útrás fyrir­tækisins til þriggja landa, Sviss, Banda­ríkjanna og Bretlands.

Forstjóri GAMMA, Valdimar Ármann, hefur ekki viljað svara þeirri spurningu Stundarinnar hreint út af hverju Gísli hætti hjá fyrir­tækinu en hann er annar af stofn­endum þess og annar af stærstu hlut­höfunum. Heimildir Stundarinnar herma hins vegar að útrás fyrir­tækisins og kostnaðurinn við hana hafi verið ásteytingar­steinn innan fyrir­tækisins þar sem Gísli var sá sem hvað helst stóð á bak við erlenda útrás fyrir­tækisins.

GAMMA er sjóðs­stýringar­fyrirtæki með um 130 milljarða króna í stýringu í gegnum marga sjóði fyrir fjölda fjárfesta, stofnana- og fagfjárfesta, og hefur rekstur fyrir­tækisins vakið mikla athygli á Íslandi á liðnum árum vegna stækkunar þess og vaxtar. GAMMA er einungis tíu ára gamalt fyrirtæki. Ekki liggur fyrir hverjir það eru sem eru á bak við einstaka sjóði hjá fyrir­tækinu þar sem eigendur hlutdeildar­skírteina í hinum ýmsu sjóðum þess eru ekki opinberir.

„Það var fyrir­hugað að opna í Sviss en ákveðið að fara ekki lengra með það.“

Engin frekari útrás

Valdimar segir aðspurður að GAMMA ætli sér ekki í frekari útrás til annarra landa og að hætt hafi verið við að opna skrif­stofuna í Sviss, nánar tiltekið í Zürich, eins og til stóð. Greint var frá opnun skrif­stofunnar í Sviss á seinni helmingi síðasta átt og átti Helgi Bergs, fyrr­verandi starfs­maður Kaupþings, að leiða starfsemi GAMMA í landinu. Heimilis­fang GAMMA í Sviss stóð um tíma á heimasíðu GAMMA en ekki lengur. „Það var fyrir­hugað að opna í Sviss en ákveðið að fara ekki lengra með það – eins og staðan er núna er ekki stefnt á opnun í öðrum löndum heldur er stefnan að byggja á skrif­stofum okkar í London og New York,“ segir Valdimar í tölvu­pósti.

GAMMA mun því hægja á útþenslu sinni og hætta við hluta hennar. Á sama tíma hættir Gísli Hauksson hjá GAMMA.

Svara ekki um útrásina

Valdimar kaus að svara ekki þeirri spurningu Stundarinnar hvort stjórn­endur GAMMA, hluthafar og sjóðs­félagar væru ánægðir með útrás GAMMA til annarra landa. „GAMMA er með skrif­stofur í London og New York. Hvernig hefur sá rekstur gengið og er almenn ánægja með reksturinn hjá stjórn­endum fyrir­tækisins og hluthöfum?,“ spurði blaðið en fékk ekki svar.

Í nýlegu viðtali við Viðskipta­blaðið sagði Valdimar hins vegar: „Það kostar sitt að vera með skrif­stofur erlendis. Það er alveg ljóst.“ Valdimar sagði jafnframt að innlend starfsemi GAMMA hefði gengið mjög vel.

Stjórnar­formaður GAMMA, Hlíf Sturlu­dóttir, vildi heldur ekki svara spurningunni þegar eftir því var leitað: „Ég treysti mér bara ekki til að ræða það við þig núna.“ Nokkuð ljóst má telja að útrás GAMMA til annarra landa hefur ekki gengið sem skyldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

GAMMA

FréttirGAMMA

Ásgeir mælir gegn opinberu eignar­haldi leigu­félaga: „Hef ekki komið nálægt GAMMA síðan 2014“

Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, hélt fyrir­lestur um leigu­félög og húsnæðis­markaðinn fyrir stærsta leigu­félag landsins fyrr í dag. Hann var áður efnahags­ráðgjafi GAMMA sem á eitt stærsta leigu­félag landsins. Ásgeir segist ekki hafa komið nálægt GAMMA frá 2014 og að hann vinni ekki fast fyrir neina hags­munaðila á leigu­markaðnum í dag.
ÚttektGAMMA

Stóra plan GAMMA: Ætla að græða á einka­væðingu og innviðum á Íslandi

Sjóð­stýringar­fyrirtækið GAMMA hefur stækkað ört síðastliðin ár og teygir starfsemi sína nú til fjögurra landa. Starfsemin er farin að líkjast starfi banka um margt þar sem fyrir­tækið sækir inn á lána­markaðinn. GAMMA er með sterk tengsl við Sjálfstæðis­flokkinn og talar fyrir aukinni einka­væðingu og minnkandi ríkis­afskiptum við uppbyggingu innviða samfélagsins.

29 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár