Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar Tindastóls segja af sér

Formaður og vara­for­maður knatt­spyrnu­deildar Tind­ar­stóls hafa sagt sig frá störfum fyrir félagið í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar um mál knatt­spyrnu­manns hjá félag­inu sem var í tvígang kærður fyrir nauðgun. Deildin við­ur­kennir mis­tök í mál­inu og máli Ragnars Þórs Gunn­ars­sonar, leik­manns sem hlaut dóm fyrir kyn­ferð­is­brot gegn stúlku undir lög­aldri.

Formaður og varaformaður knattspyrnudeildar Tindastóls segja af sér
Upplifðu sig einar Agnes Bára Ara­dóttir og Elísabet Ásmunds­dóttir sögð­ust hafa fundið fyrir reiði og sárs­auka þegar þær sáu frétt í bæj­ar­blað­inu þess efnis að Tinda­stóll hefði boðið manni sem þær kærðu báðar fyrir nauðgun þjálf­ara­stöðu með það að marki að lyfta vöru­merki knatt­spyrnu­deild­ar­innar upp. Mynd: Heiða Helgadóttir

Formaður og vara­for­maður knatt­spyrnu­deildar Tind­ar­stóls hafa sagt sig frá störfum fyrir félagið í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar um mál vin­sæls knatt­spyrnu­manns hjá félag­inu sem var í tvígang kærður fyrir nauðgun. „Það er okkar von að með þess­ari yfir­lýs­ingu skap­ist friður um störf knatt­spyrnu­deildar Tinda­stóls og félags­ins alls,“ segir í yfir­lýs­ingu sem knatt­spyrnu­deild Tinda­stóls sendi frá sér í gær­kvöldi.

Í yfir­lýs­ing­unni við­ur­kennir knatt­spyrnu­deildin mis­tök í mál­inu og segj­ast for­maður og vara­for­maður taka ábyrgð með afsögn sinni. Á föstu­dag birti Stundin umfjöllun þar sem rætt var við tólf konur sem lýstu afleið­ingum af fram­göngu knatt­spyrnu­manns­ins í þeirra garð. Tvær þeirra kærðu hann fyrir nauðgun, en mál­unum var vísað frá. Stúlk­urnar sögð­ust hafa verið dæmdar af sam­fé­lag­inu.

Maðurinn var engu að síður ráð­inn til trún­að­ar­starfa fyrir knatt­spyrnu­deild Tinda­stóls. Í kjöl­farið kom hann í við­tal við bæj­ar­blaðið á Sauð­ár­króki undir fyr­ir­sögn­inni: Vilja laga vöru­merkið „Knatt­spyrnu­deild Tinda­stóls“. Greinin fjall­aði um að ráðn­ing hans og tveggja ann­arra væri liður í breyt­ingu á starfi yngri flokka félags­ins, „félag­inu til heilla“. Í síð­asta mán­uði hætti mað­ur­inn hins vegar skyndi­lega störfum. Í til­kynn­ingu til for­eldra sagði hann þá ákvörðun tekna í sam­ráði við stjórn knatt­spyrnu­deild­ar­innar og að hún væri „nauð­syn­leg og öllum til góða“

Viðurkenna mistök í fyrra

„Í kjöl­far fréttar fjöl­mið­ils­ins, Stund­ar­innar er varða mál fyrrum starfs­manns deild­ar­innar og mjög alvar­legra ásak­ana í hans garð er ljóst að deild­inni hafa orðið á mikil mis­tök,“ segir í yfir­lýs­ingu knatt­spyrnu­deild­ar­innar. „Mistök sem senni­lega verður aldrei hægt að bæta fyrir.“

Undir yfir­lýs­ing­una skrifa Bergmann Guð­munds­son, for­maður knatt­spyrnu­deild­ar­innar, og Guðjón Örn Jóhanns­son vara­for­maður. Þeir við­ur­kenna einnig stór mis­tök í máli Ragnars Þórs Gunn­ars­sonar, leik­manns Tinda­stóls í maí 2017, sem dæmdur var fyrir kyn­ferð­is­brot gegn stúlku sem var undir lög­aldri. Í yfir­lýs­ingu deild­ar­innar í kjöl­far dóms­ins sagði meðal ann­ars að hann nyti trausts félags­ins, sem ætl­aði að gera allt til þess að aðstoða hann. Talað var um „mis­tök sem gerð voru“ og að hann hafi verið að stíga sín fyrstu spor sem full­orð­inn ein­stak­lingur, þá 22 ára, og gerst „sekur um dóm­greind­ar­brest“.

„Sú yfir­lýs­ing átti ekki rétt á sér og þykir okkur leitt að hafa ekki staðið með okkar fólki, hafa valdið því von­brigðum og þolendum óþarfa sárs­auka,“ segir í yfir­lýs­ingu gær­kvölds­ins. For­svars­menn Tinda­stóls urðu ekki við ósk Stund­ar­innar um við­tal fyrir útgáfu blaðs­ins síð­asta föstu­dag, en Bergmann hafn­aði við­tali með smá­skila­boðum. Um leið sagði hann að Tinda­stóll myndi ekki gefa út nein við­brögð fyrr en áætlun frá KSÍ eða ÍSÍ væri komin.

„Því miður getum við ekki breytt því sem liðið er eða hvað þá tekið til baka þær ákvarð­anir sem hafa verið teknar í for­tíð­inni,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „En við vonum að við getum á ein­hvern hátt sýnt sárs­auka þolenda virð­ingu með því að biðj­ast afsök­unar á ákvörð­unum okkar og reyna að leggja okkar af mörkum til þess að félagið verði vel í stakk búið til taka RÉTT á málum í fram­tíð­inni.“

Hér er yfir­lýs­ingin í heild sinni.

Yfirlýsing frá knattspyrnudeild Tindastóls

Í kjöl­far fréttar fjöl­mið­ils­ins, Stund­ar­innar er varða mál fyrrum starfs­manns deild­ar­innar og mjög alvar­legra ásak­ana í hans garð er ljóst að deild­inni hafa orðið á mikil mis­tök. Mistök sem senni­lega verður aldrei hægt að bæta fyrir.

Við viljum byrja á að taka heils hugar undir orð Aðal­stjórnar Ung­menna­fé­lags Tinda­stóls sem sagði m.a. í yfir­lýs­ingu sinni frá því í 25. febr­úar 2018, orð­rétt: „...Kemur þessi frétt í kjöl­far #MeToo umræð­unnar þar sem konur í fjöl­mörgum greinum stigu fram og sögðu frá sinni reynslu af kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­ferð­is­legu ofbeldi, þöggun og lít­ils­virð­ingu. Konur í íþróttum voru þar á meðal og áttu sumar af þeim sögum sem nístu hjartað hvað mest. Þessar frá­sagnir kvenn­anna í Stund­inni gerðu það einnig.

Það er mik­il­vægt að íþrótta­hreyf­ingin í heild sinni hlusti á þessar raddir þolenda og aðstand­enda þeirra, læri af þeim og bregð­ist við af fullum þunga. Ábyrgð stjórn­enda, for­manna, for­svars­manna og þjálf­ara er þar mikil. Stjórn­endur Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls vilja því sér­stak­lega taka fram að félagið stendur með þolendum. Við tökum ábyrgð okkar alvar­lega og við tökum mál­stað þolenda alvar­lega. Kyn­ferð­is­legt ofbeldi, kyn­ferð­is­leg áreitni, ein­elti eða annað ofbeldi verður ekki undir neinum kring­um­stæðum liðið í starfi Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls...“

„Við þetta viljum við bæta og lýsa því hér með form­lega yfir að deild­inni urðu á stór mis­tök“

Við þetta viljum við bæta og lýsa því hér með form­lega yfir að deild­inni urðu á stór mis­tök í maí á síð­asta ári með stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu sinni við Ragnar Þór Gunn­ars­son, þáver­andi leik­mann liðs­ins, sem dæmdur var fyrir kyn­ferð­is­brot. Sú yfir­lýs­ing átti ekki rétt á sér og þykir okkur leitt að hafa ekki staðið með okkar fólki, hafa valdið því von­brigðum og þolendum óþarfa sárs­auka.

Hvað varðar mál fyrrum starfs­manns okkar sem fjallað er um í Stund­inni síð­ast­liðna helgi, en þar koma fram 12 stúlkur og segja sína sögu um sam­skipti við mann­inn, er ljóst að deild­inni urðu á óaf­sak­an­leg mis­tök við ráðn­ingu hans í barna- og ung­linga­starf félags­ins. 
Maðurinn er ekki dæmdur fyrir nein brot, en slíkt afsakar ekki í þessu til­viki að við gerðum okkur ekki á neinn hátt grein fyrir því hversu miklum von­brigðum við vorum að valda félags­mönnum okkar og þeim þolendum sem hafa nú stigið fram og sagt sögu sína.

Því miður getum við ekki breytt því sem liðið er eða hvað þá tekið til baka þær ákvarð­anir sem hafa verið teknar í for­tíð­inni. En við vonum að við getum á ein­hvern hátt sýnt sárs­auka þolenda virð­ingu með því að biðj­ast afsök­unar á ákvörð­unum okkar og reyna að leggja okkar af mörkum til þess að félagið verði vel í stakk búið til taka RÉTT á málum í fram­tíð­inni. Málum eins og hafa komið upp í umræð­una í kjöl­far #MeToo bylt­ing­ar­innar sem og öðrum málum sem ekki eiga heima í heimi íþrótt­anna, frekar en ann­ars­staðar. Eins og fram kemur í yfir­lýs­ingum Ung­menna­sam­bands Skaga­fjarðar (UMSS) og Aðal­stjórnar Ung­menna­fé­lags Tinda­stóls hefur vinna staðið yfir í vetur við að skrifa siða­reglur fyrir félagið og er það vel. Til að taka ábyrgð á mis­tökum okkar segjum við okkur frá störfum okkar fyrir félagið. Það er okkar von að með þess­ari yfir­lýs­ingu skap­ist friður um störf knatt­spyrnu­deildar Tinda­stóls og félags­ins alls. Áfram Tinda­stóll 

Virð­ing­ar­fyllst, Bergmann Guð­munds­son og Guðjón Örn Jóhanns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár