Stjórn Tindastóls segir skömmina gerandans

Stjórnir Tinda­stóls og UMSS sendu frá sér yfir­lýs­ingar til stuðn­ings þolendum eftir umfjöllun Stund­ar­innar. Rætt var við tólf konur sem lýstu afleið­ingum af fram­ferði vin­sæls knatt­spyrnu­manns, sem var í tvígang kærður fyrir nauðgun en boðin þjálf­ara­staða hjá félag­inu. Engin við­brögð feng­ust fyrir útgáfu blaðs­ins.

Stjórn Tindastóls segir skömmina gerandans
Upplifðu sig einar Agnes Bára Ara­dóttir og Elísabet Ásmunds­dóttir sögð­ust hafa fundið fyrir reiði og sárs­auka þegar þær sáu frétt í bæj­ar­blað­inu þess efnis að Tinda­stóll hefði boðið manni sem þær kærðu báðar fyrir nauðgun þjálf­ara­stöðu með það að marki að lyfta vöru­merki knatt­spyrnu­deild­ar­innar upp. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stjórn Tinda­stóls seg­ist standa með þolendum og taka ábyrgð sína alvar­lega í yfir­lýs­ingu sem birt var á heima­síðu íþrótta­fé­lags­ins á sunnu­dag. Á föstu­dag birti Stundin umfjöllun þar sem rætt var við tólf konur sem lýstu afleið­ingum af fram­göngu vin­sæls knatt­spyrnu­manns hjá félag­inu sem var í tvígang kærður fyrir nauðgun. Stúlk­urnar sögð­ust hafa verið dæmdar af sam­fé­lag­inu, en kærum á hendur mann­inum var vísað frá.

For­svars­menn Tinda­stóls urðu ekki við ósk Stund­ar­innar um við­tal fyrir útgáfu blaðs­ins síð­asta föstu­dag, en Bergmann Guð­munds­son, for­maður knatt­spyrnu­deild­ar­innar hafn­aði við­tali með SMS-i. Um leið sagði hann að Tinda­stóll myndi ekki gefa út nein við­brögð fyrr en áætlun frá KSÍ eða ÍSÍ væri komin. Aðal­stjórn félags­ins sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar. 

„Það er okkar von að umræðan um þetta alvar­lega mál hafi þær breyt­ingar í för með sér að þolendur treysti sér frekar til að stíga fram og að þeim sé trúað. Að við sem íþrótta­fé­lag stöndum okkur betur.“

„Það er mik­il­vægt að íþrótta­hreyf­ingin í heild sinni hlusti á þessar raddir þolenda og aðstand­enda þeirra, læri af þeim og bregð­ist við af fullum þunga,“ segir í yfir­lýs­ingu stjórn­ar­innar. „Ábyrgð stjórn­enda, for­manna, for­svars­manna og þjálf­ara er þar mikil. Stjórn­endur Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls vilja því sér­stak­lega taka fram að félagið stendur með þolendum. Við tökum ábyrgð okkar alvar­lega og við tökum mál­stað þolenda alvar­lega. Kyn­ferð­is­legt ofbeldi, kyn­ferð­is­leg áreitni, ein­elti eða annað ofbeldi verður ekki undir neinum kring­um­stæðum liðið í starfi Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls.“

Í yfir­lýs­ing­unni segir að kyn­ferð­is­legt ofbeldi, kyn­ferð­is­leg áreitni, ein­elti eða annað ofbeldi verði ekki undir neinum kring­um­stæðum liðið í starfi Ung­menna­fé­lags­ins Tinda­stóls. „Það er okkar von að umræðan um þetta alvar­lega mál hafi þær breyt­ingar í för með sér að þolendur treysti sér frekar til að stíga fram og að þeim sé trúað. Að við sem íþrótta­fé­lag stöndum okkur betur þegar þessi erf­iðu mál koma upp. Að við sem sam­fé­lag tökum betur á þessum málum. Að þegar við sjáum eitt­hvað, þá segjum við eitt­hvað og styðjum þá sem á þurfa að halda. Þær ungu konur sem stigu fram og sögðu sína sögu eiga skilið þakk­læti fyrir mik­inn styrk. Skömmin er ger­and­ans.“

Stjórn knatt­spyrnu­deildar Tinda­stóls sendi frá sér yfir­lýs­ingu í maí 2017 vegna frétta af því að annar leik­maður félags­ins, Ragnar Þór Gunn­ars­son, hlaut dóm fyrir kyn­ferð­is­brot gegn stúlku sem var undir lög­aldri. Í yfir­lýs­ing­unni sagði meðal ann­ars að hann nyti trausts félags­ins, sem ætl­aði að gera allt til þess að aðstoða hann. Talað var um „mis­tök sem gerð voru“ og að hann hafi verið að stíga sín fyrstu spor sem full­orð­inn ein­stak­lingur, þá 22 ára, og gerst „sekur um dóm­greind­ar­brest“.

Yfirlýsing UMSS tilbúin fyrir útgáfu Stundarinnar

Þá sendi Ung­menna­sam­band Skaga­fjarðar (UMSS) frá sér yfir­lýs­ingu á föstu­dag eftir útgáfu Stund­ar­innar, sem sam­þykkt hafði verið á fundi stjórn­ar­innar tveimur dögum áður. UMSS er sam­band íþrótta­fé­laga í Skaga­firði og er Tind­ar­stóll eitt aðild­ar­fé­laga. Stjórn UMSS ákvað að „lýsa yfir vilja félags­ins, sem eins elsta íþrótta- og ung­menna­sam­bands lands­ins, til að eiga sam­starf við ÍSÍ, UMFÍ og ráðu­neyti íþrótta­mála um að tryggja sem best ofbeld­is­lausa íþrótta­iðkun fyrir alla.“

Í álykt­un­inni segir að aðal­stjórn UMSS fagni þeirri umræðu og við­brögðum sem #MeToo umræðan hefur leitt af sér og dáist af hug­rekki þeirra ein­stak­linga sem stigið hafa fram fyrir skjöldu til að opin­bera svo alvar­leg vanda­mál. Að sama skapi vottar stjórnin öllum þolendum ofbeldis samúð sína.

„Í ljósi þessa verður lagt fyrir 98.Ársþing UMSS til sam­þykktar, siða­reglur, jafn­rétt­is­stefna, fræðslu-og for­varna­stefna og við­brags­á­ætlun vegna aga-eða ofbeld­is­brota, ein­eltis, kyn­ferð­is­legrar og kyn­bund­innar áreitni sem mun ná til allra aðild­ar­fé­laga sam­bands­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Með því mun UMSS og aðild­ar­fé­lög þess ekki ein­ungis marka skýra stefnu gegn kyn­bundnu-og kyn­ferð­is­of­beldi heldur draga skýrar línur í hegð­un­ar­við­miðum sem ná til allra þeirra sem að starf­inu koma, iðk­enda, þjálf­ara, for­eldra, stuðn­ings­manna og stjórn­ar­manna. Stjórn UMSS leggur mikla áherslu á að öllum aðild­ar­fé­lögum verði kynntar þessar reglur, stefnur og áætlun og þeim verði fylgt eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár