Ungi hælisleitandinn sem var barinn á Litla-Hrauni skyndilega sendur úr landi

Houssin Bsraoi, ungur hæl­is­leit­andi frá Marokkó, hefur verið fluttur úr landi. Hann varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás á Litla-Hrauni í jan­úar.

Ungi hælisleitandinn sem var barinn á Litla-Hrauni skyndilega sendur úr landi
Houssin Bsraoi Mynd: Facebook

Houssin Bsraoi, ungi hæl­is­leit­and­inn sem varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás á Litla-Hrauni fyrr á árinu, var fluttur úr landi í gær. RÚV greinir frá. Houssin kom hingað til lands sum­arið 2016 ásamt öðrum ungum pilti, Yassine, en þeir földu sig um borð í Norrænu til þess að kom­ast í landið. Báðir sóttu þeir um alþjóð­lega vernd og sögð­ust þeir vera undir 18 ára aldri. Þeir voru því sendir í tann­rann­sókn til þess að skera úr um aldur þeirra og var Yassine met­inn undir 18 ára aldri, en Houssin var met­inn eldri en 18 ára. Yassine fékk vernd og býr nú hjá fóst­ur­fjöl­skyldu sinni í Bol­ung­ar­vík og sækir nám við Mennta­skól­ann á Ísafirði. Houssin var hins vegar synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi, þrátt fyrir að vera met­inn í við­kvæmri stöðu. Hann var síðar úrskurð­aður í gæslu­varð­hald fyrir að hafa gert ítrek­aðar til­raunir til að kom­ast á skip á leið til Kanada og vistaður með full­orðnum föngum á Litla-Hrauni. Þar varð hann fyrir alvar­legri lík­ams­árás og voru tenn­urnar hans meðal ann­ars brotnar. 

Í frétt RÚV er rætt við Guðríði Láru Þrast­ar­dóttur, tals­mann hæl­is­leit­enda hjá Rauða krossi Íslands, en hún hefur sótt um end­ur­upp­töku á máli Houssin og verður þeirri beiðni haldið til streitu. „Þetta mál er auð­vitað allt mjög sorg­legt og íslensk stjórn­völd hefðu frá upp­hafi átt að fara með þetta mál á allt annan hátt. Það er mín skoðun,“ segir Guðrún Lára meðal ann­ars. 

Vinir og vel­unn­arar Houssins vissu ekki af brott­flutn­ingnum fyr­ir­fram, og ekki heldur Rauði kross­inn. 

Uppfært: Í upp­haf­legri útgáfu frétt­ar­innar sagði að Houssin hafi fengið ólíka máls­með­ferð en Yassine vegna ald­urs­grein­ing­ar­innar. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Útlend­inga­stofnun er þetta rangt, það sé ekki skil­yrði fyrir því að hljóta alþjóð­lega vernd að vera yngri en 18 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár