Þarf að hækka leiguna hjá stærsta leigufélagi Íslands?: Vaxtagjöldin 330 milljónum hærri en rekstrarhagnaðurinn

Heima­vellir skiluðu 2,7 milljarða króna hagnaði í fyrra en sá hagnaður er tilkominn af bókfærðri hækkun á um 2000 íbúðum fyrir­tækisins en ekki af sterkum rekstri. Framkvæmda­stjórinn segir vaxta­kostnaðinn vera háan og að markmiðið með skráningu Heima­valla á markað sé að lækka vaxta­kostnaðinn.

Hagnaður stærsta leigufélagsins byggir á fasteignabólunni
Hagnaður stærsta leigu­fé­lags­ins byggir á fast­eigna­bólunni Bók­færður hagn­aður stærsta leigu­fé­lags Íslands byggir á bók­færðri hækkun fast­eigna­verð en ekki á sterkum kjarna­rekstri. Munurinn á vaxta­gjöldum og rekstr­ar­hagn­aði Heima­valla er rúm­lega 300 millj­ónir áður en mats­breyt­ing fast­eigna kemur til sög­unnar. Mynd: Shutterstock

Fjármagns­kostnaður leigu­félagsins Heima­valla var rúmlega 300 milljónum krónum hærri en hagnaðurinn af rekstri félagsins áður en bókfærð verð­hækkun á fasteignum fyrir­tækisins er tekin með í reikninginn. Þetta þýðir að það kostaði 337 milljónunum krónum meira, 1959 milljónir króna, að greiða af lánum Heima­valla en fyrir­tækið fékk í kassann fyrir leigu fasteigna sinna eftir að búið var að greiða allan rekstrar­kostnað þeirra, 1622 milljónir króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Heima­valla fyrir árið 2017 sem gerður var opinber í dag. 

Í frétta­tilkynningu frá Heima­völlum kemur fram að hagnaður fyrir­tækisins hafi numið 2,7 milljörðum króna árið 2017. Þennan hagnað má rekja til „mats­breytinga á fjár­festingar­eignum“, það er að segja til hækkandi verðmats á íbúðum fyrir­tækisins sem voru um 2000 talsins í lok síðasta árs. Heima­vellir munu taka við rúmlega 300 nýjum íbúðum á þessum ári sem bætast við þessa 2000.

Ekki má rugla þess konar hagnaði af hækkun fjár­festingar­eigna saman …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár