Kröfum Glitnis synjað: Lögbann á umfjöllun um viðskipti valdhafa á skjön við lýðræðishefðir og grunngildi tjáningarfrelsis

Dómur var kveð­inn upp í máli Glitnis HoldCo gegn Stund­inni og Reykja­vík Media í dag. Öllum kröfum Glitnis var synjað, enda telur Hér­aðs­dómur ekki rétt­læt­an­legt að stöðva frétta­flutn­ing af fjár­hags­mál­efnum for­sæt­is­ráð­herra í lýð­ræð­is­ríki.

Kröfum Glitnis synjað: Lögbann á umfjöllun um viðskipti valdhafa á skjön við lýðræðishefðir og grunngildi tjáningarfrelsis
Frá aðal­með­ferð Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, rit­stjóri Reykja­vík Media, ásamt lög­mönnum fjöl­miðl­anna við aðal­með­ferð máls­ins í jan­úar. Í bak­sýn eru Jón Trausti Reyn­is­son og Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjórar Stund­ar­innar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur synj­aði í dag öllum kröfum Glitnis HoldCo í lög­banns­máli gegn Stund­inni og Reykja­vík Media. Glitnir krafð­ist þess að lög­bann sem Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu setti á frétta­flutn­ing fjöl­miðl­anna í októ­ber yrði stað­fest með dómi og að fjöl­miðl­unum yrði gert að að afhenda Glitni gögn sem þeir hafa undir höndum eða afrit af þeim. 

Lög­bannið stendur hins vegar í þrjár vikur í við­bót, hið minnsta, en það er frest­ur­inn sem Glitnir HoldCo hefur til þess að áfrýja mál­inu. Verði mál­inu áfrýjað getur lög­bannið svo varað í allt að ár til við­bótar. 

Málið varðar umfjöllun sem birt­ist á vef og blaði Stund­ar­innar dag­ana 6. til 16. októ­ber síð­ast­lið­inn og unnin var í sam­starfi við breska dag­blaðið The Guardian og Reykja­vik Media. Í dómi hér­aðs­dóms segir meðal ann­ars: „Óumdeilt er að þunga­miðja þeirrar umfjöll­unar voru þátt­taka þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra í ýmsum við­skiptum sem og ein­stak­linga og lög­að­ila sem tengd­ust honum. Lutu upp­lýs­ing­arnar sem greint var frá í umfjöll­un­inni fyrst og fremst að fjár­hags­mál­efnum þeirra og inn­byrðis sam­skiptum sem og sam­skiptum við bank­ann, Glitni hf.“

Fram kemur að þegar tekin sé afstaða ti þess hvort sjón­ar­mið um frið­helgi einka­lífs geti rétt­lætt lög­bannið verði ekki litið fram hjá því að umfjöll­unin beind­ist í öllum aðal­at­riðum að við­skipta­legum umsvifum þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, það er ein­stak­lings sem hefur sem stjórn­mála­maður sjálfur gefið kost á sér til opin­berra trún­að­ar­starfa. Stjórn­mála­menn geti ekki vænst þess að njóta sömu verndar og aðrir ein­stak­lingar gagn­vart opin­berri umfjöllun. „Þvert á móti verður að telja að almenn­ingur eigi við ákveðnar aðstæður til­kall til þess að fá upp­lýs­ingar um stjórn­mála­menn sem að öllu jöfnu myndu telj­ast til einka­mál­efna, einkum þegar upp­lýs­ing­arnar sem um ræðir tengj­ast því hvernig þeir hafi rækt hlut­verk sitt sem stjórn­mála­menn.“

Hvað varðar umfjöllun Stund­ar­innar um mál­efni ann­arra ein­stak­linga en þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son, segir í dómnum að umræddir ein­stak­lingar séu ýmist tengdir þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra fjöl­skyldu­böndum eða gegnum viðksipti, auk þess sem þeir höfðu á þeim tíma sem umfjöll­unin tók til tengsl við Glitni hf. „Er það mat dóms­ins að umfjöllun um mál­efni þeirra hafi verið svo sam­ofin frétta­efn­inu í heild að ekki verði greint á milli.“ Þá verði ekki dregnar þær álykt­anir af umfjöllun Stund­ar­innar að ætl­unin sé að fjalla um mál­efni handa­hófs­kenndra ein­stak­linga sem ekki eigi erindi til almenn­ings. 

Vísuðu til þess að gögnin væru undirorpin bankaleynd

Það var föstu­dag­inn 13. októ­ber síð­ast­lið­inn sem þrotabú Glitnis, Glitnir HoldCo ehf., fór fram á það við sýslu­mann­sebættið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að lög­bann yrði lagt á umfjöllun Stund­ar­innar, Reykja­vík Media og The Guardian sem byggja á eða eru unnar úr gögnum um fyrr­ver­andi við­skipta­vini Glitnis. Þrota­búið taldi umfjöll­un­ina byggja á gögnum sem séu bundnar banka­leynd. Síðdegis mánu­dag­inn 16. októ­ber mættu full­trúar Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á skrif­stofu Stund­ar­innar, ásamt lög­manni Glitnis, þar sem lög­bannið var sam­þykkt. Glitnir fór einnig fram á að Stundin afhenti gögn sem mið­ill­inn hafði byggt umfjöllun sína á og eyddi öllum fréttum sem birtar höfðu verið á vef­svæði Stund­ar­innar um við­skiptin, en þeim kröfum var hafnað. 

Umfjöllun fjöl­miðl­anna hófst 6. októ­ber 2017 með ítar­legum frétta­skýr­ingum um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og fjöl­skyldu hans í kringum banka­hrunið 2008. Kom meðal ann­ars fram að Bjarni Bene­dikts­son hefði selt allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dag­ana 2. til 6. októ­ber 2008 og að faðir hans hefði verið leystur undan sjálf­skuld­ar­á­byrgð hjá bank­anum skömmu fyrir hrun.

Stundin fjall­aði svo ítar­lega um kaup Eng­ey­inga á Olíu­fé­lag­inu árið 2006 og hvernig yfir­takan var að miklu leyti fjár­mögnuð með kúlu­lánum. Fram kom að Bjarni hefði verið los­aður undan 50 millj­óna kúlu­láni sem hann hafði tekið per­sónu­lega hjá Glitni og skuldin færð yfir á eign­ar­halds­fé­lag föður hans, Haf­silfur ehf. 

Stundin kom á fram­færi and­mælum vegna ákvörðun sýslu­manns um lög­bann á umfjöllun um við­skipti for­sæt­is­ráð­herra og sagði að um væri að ræða gríð­ar­legt inn­grip í opin­bera umræðu í lýð­ræð­is­ríki. Hún væri einnig órétt­læt­an­leg vald­beit­ing gegn stjórn­ar­skrár­bundnu tján­ing­ar­frelsi. „Fordæmi eru fyrir því að umfjöllun byggð á gögnum úr banka­kerf­inu, svoköll­uðum Panama-skjölum, hafi haft afger­andi áhrif á stjórn­mála­um­ræðu í land­inu. Upp­lýs­ingar um við­skipti kjör­inna full­trúa sam­hliða trún­að­ar­störfum þeirra fyrir almenn­ing eiga erindi til almenn­ings. Hags­munir almenn­ings og opin­berrar umræðu eru rík­ari en hags­munir fjár­mála­fyr­ir­tækja af því að halda leynd yfir við­skiptum í aðdrag­anda hruns banka­kerf­is­ins á Íslandi,“ sagði meðal ann­ars í and­mæla­bréfi Stund­ar­innar. 

ÖSE fordæmdi lögbannið

Lög­bann­inu var víða mót­mælt. Tíma­setn­ing lög­banns­ins var einnig gagn­rýnd en Alþing­is­kosn­ingar fóru fram fáeinum dögum eftir að það var sam­þykkt. Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, for­dæmdi lög­bannið harð­lega og sagði sýslu­mann ekki eiga neitt erindi inn á fjöl­miðla á Íslandi. Stjórn Gagnsæis sendi einnig frá sér yfir­lýs­ingu þar sem lög­bannið var for­dæmt. „Það er ekki aðeins réttur almenn­ings að upp­lýst sé um við­skipta­hags­muni stjórn­mála­manna, það er einnig mik­il­vægt til að ná stöð­ug­leika í íslensku sam­fé­lagi eftir erfið og róstu­söm ár, að traust skap­ist gagn­vart Alþingi og stjórn­mála­mönnum. Slíkt traust mynd­ast ekki sé komið í veg fyrir að fjöl­miðlar geti sinnt því hlut­verki sínu að gæta hags­muna almenn­ings,“ sagði meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu Gagnsæis. 

Lög­bannið hefur einnig vakið athygli út fyrir land­stein­ana. Fulltrúi Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu, ÖSE, hvatti íslensk yfir­völd strax til að aflétta lög­bann­inu og sagði það grafa undan frelsi fjöl­miðla og rétt­indum almenn­ings til upp­lýs­inga. 

Þá kom stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis saman til opins fundar um lög­banns­málið þann 19. októ­ber síð­ast­lið­inn þar sem málið var rætt í þaula. Að lokum má þess geta að Píratar hafa, vegna máls­ins, lagt fram frum­varp þar sem lagt er til að ekki verði unnt að leggja lög­bann á upp­lýs­inga­vinnslu og umfjöllun fjöl­miðla án dóms­úr­skurðar. Sýslu­manna­fé­lagið hefur hins vegar lagst gegn breyt­ing­unum. 

Lögbannið gæti varað í ár til viðbótar

Sem fyrr segir gæti lög­bannið varað í allt að ár til við­bótar. Í 2. mgr. 39. gr. lög­bannslag­anna (nr. 31/1990) segir: „Þótt synjað sé um stað­fest­ingu gerðar í hér­aðs­dómi stendur hún í þrjár vikur frá dóms­upp­sögu. Að loknum þeim fresti fellur gerðin niður, nema gerð­ar­beið­andi fái áður gefna út stefnu til æðra dóms til að fá hér­aðs­dómi hrundið. Ef æðri dómur stað­festir ákvæði hér­aðs­dóms um synjun um stað­fest­ingu gerðar fellur hún úr gildi frá dóms­upp­sögu þar.“

Það er óljóst hversu langan tíma tæki að fá málið fyrir Hæsta­rétt, fyrst færi það fyrir Lands­rétt, og engin reynsla er komin á máls­með­ferð­ar­tíma þar. Gera má ráð fyrir því að lög­bannið vari í ár til við­bótar ef málið fer alla leið fyrir Hæsta­rétt með áfrýjun Glitnis HoldCo.

Ekki gengið nær einkalífi fólks en óhjákvæmilegt var

Hér að neðan má lesa brot úr dóm­inum þar sem Hér­aðs­dómur Reykja­víkur leggur mat á hvort sjón­ar­mið um frið­helgi einka­lífs hafi getað rétt­lætt lög­bannið og þá skerð­ingu tján­ing­ar­frelsis sem í því fólst. Nið­ur­staðan er að svo sé ekki og lög­bannið hafi því ekki upp­fyllt áskilnað um brot gegn lög­vörðum rétti fólks sem fram kemur í 24. gr. laga nr. 31/1990, um kyrr­setn­ingu og lög­bann:

Við mat á því hvort lög­bannið sem hér um ræðir hafi verið í eðli­legu sam­ræmi við þá hags­muni sem stefn­andi hefur vísað til verður ekki litið fram hjá því að umfjöll­unin um umsvif þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og aðila sem tengd­ust honum lutu að við­skipta­sam­bandi þeirra við einn hinna föllnu banka, Glitni hf., á sama tíma og hann var þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem þá sat í rík­is­stjórn. Umfjöll­unin tengd­ist þannig við­skipta­háttum í einum stóru við­skipta­bank­anna fyrir fall þeirra 2008 en eins og fram kemur í dómi Hæsta­réttar Íslands frá 24. nóv­em­ber 2011 í máli nr. 100/2011 hafði hrunið sem varð í íslensku efna­hags­lífi við fall við­skipta­bank­anna þriggja haustið 2008 mikil og almenn áhrif á alla starf­semi í land­inu og kjör almenn­ings. Opinber umræða og umfjöllun fjöl­miðla hafi frá þeim tíma snú­ist mikið um að greina aðdrag­anda og orsakir þess hvernig fór og hafi umfjöllun um fjár­hags­leg mál­efni ein­stakra manna oft verið nær­göngul.

Ljóst er að umfjöllun um við­skipta­leg umsvif þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og ann­arra, þar sem meðal ann­ars var vikið að áhættu­sömum fjár­fest­ingum sem ekki skil­uðu til­ætl­uðum árangri eru þáttur í umfjöllun fjöl­miðla um afleið­ingar útlána­stefnu íslenskra við­skipta­banka og áhættu­sækni íslenskra fjár­festa, sem kann að hafa átt þátt í því hvernig fór. Eins og vikið er að í fyrr­nefndum dómi Hæsta­réttar getur skerð­ing á frelsi fjöl­miðla til að fjalla um slík mál­efni ekki talist nauð­syn­leg í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi. Gildir þá einu þótt umfjöll­unin byggi á gögnum sem und­ir­orpin eru trún­aði og að birtar hafi verið upp­lýs­ingar sem gangi nærri frið­helgi einka­lífs til­greindra ein­stak­linga.

Hvað varðar umfjöllun stefnda, Útgáfu­fé­lags Stund­ar­innar ehf., um mál­efni ann­arra ein­stak­linga en þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þá eru umræddir ein­stak­lingar ýmist tengdir þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra fjöl­skyldu­böndum eða gegnum við­skipti, auk þess sem þeir höfðu á þeim tíma sem umfjöll­unin tók til tengsl við Glitni hf. Er það mat dóms­ins að umfjöllun um mál­efni þeirra hafi verið svo sam­ofin frétta­efn­inu í held að ekki verði greint á milli, sjá hér til hlið­sjónar dóm Hæsta­réttar frá 1. júní 2006 í máli nr. 541/2005. Þá verða ekki dregnar þær álykt­anir af umfjöllun stefnda, Útgáfu­fé­lags Stund­ar­innar ehf., að ætl­unin sé að fjalla um mál­efni handa­hófs­kenndra ein­stak­linga sem ekki eigi erindi til almenn­ings.

Að öllu fram­an­greindu virtu er það nið­ur­staða dóms­ins að umfjöllun stefnda, Útgáfu­fé­lags Stund­ar­innar ehf., hafi ekki gengið nær einka­lífi þeirra ein­stak­linga sem um ræði en óhjá­kvæmi­legt hafi verið í opin­berri umræðu í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi um mál­efni sem varðar almenn­ing og að nægar ástæður hafi þar af leið­andi verið fyrir hendi sem rétt­lættu birt­ingu þess­ara skrifa. Breytir það ekki fram­an­greindri nið­ur­stöðu hvernig umþrætt gögn komust í hendur stefndu né heldur að í þeim séu upp­lýs­ingar sem und­ir­orpnar séu banka­leynd sam­kvæmt 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Samkvæmt þessu er það nið­ur­staða dóms­ins að ekki sé full­nægt áskiln­aði 24. gr. laga nr. 31/1990, um kyrr­setn­ingu, lög­bann o.fl., að stefn­andi hafi sannað eða gert senni­legt að athöfn, byrjuð eða yfir­vof­andi, hafi brotið eða muni brjóta gegn lög­vörðum rétti hans. Ber því að synja kröfu stefn­anda á hendur stefndu um að stað­fest verði lög­bann það sem sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík lagði 16. októ­ber 2017 við því að stefndu birti fréttir eða aðra umfjöllun, sem byggð er á eða unnin upp úr gögnum eða kerfum stefn­anda, sem und­ir­opin eru trún­aði sam­kvæmt 58. gr. laga nr. 161/2002, um fjár­mála­fyr­ir­tæki.

__________________________________________

Fyr­ir­vari: Fjöl­mið­ill­inn Stundin er aðili að mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár