Fjöldauppsagnir hjá Odda: 86 starfsmönnum sagt upp

Fram kemur í yfir­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu að sterkt gengi íslensku krón­unnar og launa­hækk­anir langt umfram það sem þekk­ist í sam­keppn­is­löndum hafi veikt mjög sam­keppn­is­stöðu inn­lendrar fram­leiðslu.

Fjöldauppsagnir hjá Odda: 86 starfsmönnum sagt upp

Fjölda­upp­sagnir standa yfir hjá prent­smiðj­unni Odda þessa dag­ana vegna ákvörð­unar um að hætta fram­leiðslu í verk­smiðj­unum Plast­prenti og Kassa­gerð­inni.

Að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá Odda munu 86 störf leggj­ast af vegna breyt­ing­anna. „Við lögun starf­sem­innar að breyttum aðstæðum leggj­ast af 83 störf við fram­leiðslu og afleidd störf og fækkað verður um þrjá í fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn og stjórn­endum Odda þykir leitt að sjá á eftir því góða og reynslu­mikla starfs­fólki sem nú skilur við fyr­ir­tækið vegna þess og lögð verður áhersla á að veita því stuðn­ing og aðstoð við næstu skref með virð­ingu fyrir hverjum ein­stak­lingi í huga,“ segir í til­kynn­ing­unni sem fjöl­miðlum barst áðan.

Fram kemur að nei­kvæða þróun á starfs­um­hverfi íslenskra fram­leiðslu­fyr­ir­tækja á borð við Odda megi rekja til þess að sterkt gengi íslensku krón­unnar og launa­hækk­anir langt umfram það sem þekk­ist í sam­keppn­is­löndum hafi veikt mjög sam­keppn­is­stöðu inn­lendrar fram­leiðslu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár