Ungi hælisleitandinn þurfti að mæta fyrir dóm tveimur dögum eftir að hafa orðið fyrir hrottalegri líkamsárás

Fyrrum hæl­is­leit­anda sem varð fyrir grófri árás á lík­ams­árás á Litla-Hrauni á þriðju­dag var gert að mæta í aðal­með­ferð í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun. Áhöld eru um hvort mað­ur­inn hafi verið yfir lög­aldri þegar hann fór í fang­elsi.

Ungi hælisleitandinn þurfti að mæta fyrir dóm tveimur dögum eftir að hafa orðið fyrir hrottalegri líkamsárás

Unga mann­inum sem varð fyrir hrotta­legri lík­ams­árás á Litla-Hrauni á þriðju­dag og missti með­vit­und var synjað um frestun á dóms­máli sínu af sak­sókn­ara, að sögn lög­manns. Honum var gert að mæta til aðal­með­ferðar fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun og fór sak­sókn­ari fram á fimm til sex mán­aða fang­elsi.

Pilt­ur­inn, sem er frá Marokkó, var hæl­is­leit­andi hér á landi, en var synjað um dval­ar­leyfi. Síðan þá hefur hann reynt að forð­ast brott­vísun til heima­lands síns með því að fara um borð í gáma­skip á leið úr landi. Hann hlaut skil­orðs­bund­inn dóm fyrir fjögur til­vik þar sem hann fór um borð í skip og sætir nú ákæru fyrir annað til­vik þar sem hann reyndi hann að kom­ast um borð í gáma­skip Eimskipa á leið til Kanada. „Þessi drengur vill vera á Íslandi en það er búið að synja honum um leyfi,“ segir Lilja Margrét Olsen, lög­maður manns­ins.

Að sögn Lilju fannst mað­ur­inn í yfir­gefnum bíl á Aust­ur­landi haustið 2016, ásamt öðrum hæl­is­leit­anda. Fjarð­ar­byggð tók við þeim og til stóð að þeir færu til fóst­ur­fjöl­skyldu í Reykja­vík. Við tann­grein­ingu var aldur þess síð­ar­nefnda met­inn undir 18 ára, en sá fyrr­nefndi var tal­inn yfir 18 ára miðað við efri vik­mörk grein­ing­ar­innar og honum synjað um dval­ar­leyfi.

Ylfa Mist Helga­dóttir, fóst­ur­móðir hins hæl­is­leit­and­ans, telur að hann hafi verið undir 18 ára þegar hann kom til lands­ins og hafi lík­lega verið enn þegar hann var settur í gæslu­varð­hald á Hólms­heiði. „Það sem hann hefur til saka unnið er ekki nauðgun, ekki ofbeldi, ekki morð,“ skrifar hún í Facebook-færslu um málið. „Hann hefur reynt að bjarga fram­tíð sinni og horfum með því að kom­ast úr land­inu sem hefur hafnað honum.“

Gat ekki lýst áverkum þar sem túlk vantaði

Að beiðni Lilju var mað­ur­inn fluttur á Litla-Hraun, þar sem þau töldu tæki­færi til náms og vinnu vera betri þar innan veggja en á Hólms­heiði. Skömmu eftir að hann kom á Litla-Hraun varð hann fyrir kyn­þátta­for­dómum og óskaði Lilja eftir því að hann yrði fluttur, en beiðnin var ekki komin til afgreiðslu að hennar vit­und. „Á milli jóla og nýárs varð hann fyrir árás, ekki jafn alvar­legri, en hún var vegna kyn­þátta­for­dóma,“ segir Lilja. „Þessi seinni árás var til­efn­is­laus og þessir atburðir tengj­ast ekki.“

Á þriðju­dag réðst hópur fanga á mann­inn í útvist­ar­tíma og var hann í kjöl­farið fluttur á sjúkra­hús með brotnar tennur og aðra áverka. Í árásinni missti hann með­vit­und eftir höf­uð­högg, en gat ekki lýst áverkum sínum þar sem ekki fékkst túlkur.

Hann bíður nú brott­vís­unar frá Íslandi, en ekki fyrr en nið­ur­staða fæst í dóms­mál hans og afplánun lýkur, verði hann fund­inn sekur.  „Ég full­yrði að íslensk ung­menni mundu ekki sæta þess­ari með­ferð,“ segir Lilja.

Ylfu Mist þykir með­ferðin á pilt­inum og umræðan um hann harð­neskju­leg. „Það hafa verið sagðar fréttir af flótta­til­raun­unum. Þar hefur hann verið útmál­aður sem „karl­maður, hæl­is­leit­andi“ -sem hann vissu­lega er. En hann er bara ofboðs­lega ungur hæl­is­leit­andi. Hann er sam­kvæmt okkar skil­grein­ingu barn. Tals­maður Eimskipa sagði í frétt: það á bara að senda „þessa menn“ til síns heima, þeir vilja greini­lega ekk­ert vera hérna og þá á bara ekk­ert að vera að púkka upp á þá. Fréttin var ekki betur unnin en svo að það var ekki minnst á að þessi drengur væri í örvænt­ingu sinni að reyna að kom­ast til Kanada af þvi að íslensk stjórn­völd hafa synjað honum um dval­ar­leyfi. Í stað­inn er hann settur í fang­elsi,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár