Stjórnarliðar lögðust gegn skýrslubeiðni um viðbrögð við rannsóknarskýrslum

Þingmenn stjórn­ar­meiri­hlut­ans gerðu sig lík­lega til að greiða atkvæði gegn því að skýrslu­beiðni frá þing­mönnum nær allra flokka til Bjarna Bene­dikts­sonar yrði leyfð. Töldu hana ekki bein­ast að réttum aðila.

Stjórnarliðar lögðust gegn skýrslubeiðni um viðbrögð við rannsóknarskýrslum

Þingmenn stjórn­ar­meiri­hlut­ans á Alþingi gerðu sig lík­lega til að greiða atkvæði gegn því að skýrslu­beiðni til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, frá þing­mönnum allra flokka nema Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins, yrði leyfð. Eftir nokk­urt þóf fóru flutn­ings­menn fram á að atkvæða­greiðsl­unni yrði frestað.

Beiðnin var lögð fram að frum­kvæði Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, ásamt þeim Hönnu Katrínu Frið­riks­son, Halldóru Mogensen, Helga Hrafni Gunn­ars­syni, Ingu Sæland, Jóni Stein­dóri Valdi­mars­syni, Kolbeini Ótt­ars­syni Proppé, Oddnýju G. Harð­ar­dóttur, Smára McCarthy og Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur. Var hún unnin í sam­ráði við lög­fræð­inga á nefnda­sviði Alþingis..

Óskað var eftir því að ráð­herra flytti Alþingi skýrslu um ábend­ingar er varða stjórn­sýsl­una og við­brögð við þeim sem fram koma í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 ann­ars vegar og í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um aðdrag­anda og orsakir erf­ið­leika og falls spari­sjóð­anna hins vegar. 

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis og Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögð­ust gegn skýrslu­beiðn­inni, einkum á þeim grund­velli að skýrsl­unni væri ekki beint til rétts aðila og að ekki hefði farið fram kostn­að­ar­mat á því að svara þeim spurn­ingum sem fram koma. Þá væri það  ekki fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins að taka saman efni á borð við það sem beðið er um í skýrslu­beiðn­inni.

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, tók undir þetta. Andrés Ingi Jónsson, þing­maður sama flokks, sagði hins vegar und­ar­legt og fáheyrt að komin væri upp sú staða að hugs­an­lega yrði skýrslu­beiðni þing­manna til ráð­herra ekki leyfð. Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, var sama sinnis og sagð­ist ekki muna eftir öðru eins á sínum þing­ferli. 

Óli Björn, Bjarkey og Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hvöttu til þess að þing­heimur reyndi að sam­ein­ast um aðferð til að ná fram sömu mark­miðum og þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni væri ætlað. Með þetta fyrir augum var ákveðið að láta fresta atkvæða­greiðsl­unni.

Uppfært kl. 16:45:

Björn Leví Gunn­ars­son deilir frétt Stund­ar­innar á Facebook og skrifar um málið: 

„Þetta var allt hið und­ar­leg­asta mál. Það kom allt í einu í ljós að ein­hverjir væru á móti skýrslu­beiðni ... sem ger­ist bara ekki.

Það var sagt að þetta væri beint að vit­lausum ráð­herra, það er ekki rétt. Sér­stak­lega af því að það var verið að beina fyr­ir­spurn­inni að tveimur og for­seta þings. Það var búið að fara vel yfir þetta með fag­að­ilum.

Það var sagt að þetta væri ekki kostn­að­ar­metið og skýrsl­urnar sem ætti að skoða hefðu verið svo dýrar. Já, þær voru dýrar og eitt af mark­miðum þess­ara skýrslu­beiðna er að passa að sá pen­ingur hafi ekki farið í súg­inn.

Málið er ekki búið, atkvæða­greiðslu var bara frestað. Sjáum til hvaða til­lögur ber­ast um breyt­ingar. Þegar allt kemur til alls er mér sama hvernig er spurt. Bara að svarið komi. And­staðan við þetta mál vekur for­vitni og styður að það sé þörf á að þessar upp­lýs­ingar komi fram. Mig grunar nefni­lega að lítið hafi verið gert, sem er ástæða beiðn­innar.“

Hér má sjá skýrslubeiðnina í heild:

Með vísan til 54. gr. stjórn­ar­skrár­innar og 54. gr. laga um þing­sköp Alþingis er þess óskað að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra flytji Alþingi skýrslu um ábend­ingar sem varða stjórn­sýsl­una og við­brögð við þeim sem fram koma í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 ann­ars vegar og í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um aðdrag­anda og orsakir erf­ið­leika og falls spari­sjóð­anna hins vegar. 

Í skýrsl­unni verði sam­an­tekt á ábend­ingum þeim til stjórn­sýsl­unnar sem settar eru fram í skýrsl­unum og fjallað verði m.a. um: 

     1.      hversu margar ábend­ingar koma fram sem beint er til stjórn­sýsl­unnar,      
     2.      hverjar þær ábend­ingar eru, 
     3.      hvernig brugð­ist hefur verið við þeim og 
     4.      hvaða ábend­ingum hefur ekki enn verið brugð­ist við. 

Í þeim til­vikum sem brugð­ist hefur verið við ábend­ingum er óskað eftir að upp­lýst verði: 

     1.      hvernig tryggt hafi verið að þeim hafi verið og verði fylgt eftir, 
     2.      hver hafi verið til­nefndur ábyrgð­ar­að­ili og 
     3.      hvernig ráð­herra hygg­ist fylgja eftir ábend­ingum þar sem ekki hefur verið til­nefndur ábyrgð­ar­að­ili. 

Óskað er eftir tæm­andi lista yfir þær ábend­ingar sem ráð­herra hyggst ekki bregð­ast við ásamt ástæðum þess og mati ráð­herra á þeim árangri sem eft­ir­fylgni hefur haft í för með sér og hvernig sá árangur er mældur. 

Að lokum er farið fram á að ráð­herra geri grein fyrir þeim breyt­ingum sem hafa orðið á starf­semi banka og spari­sjóða í kjöl­far ábend­inga úr rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár