Samráð við almenning um stjórnarskrá „skoðað“

Aldrei áður hafa nið­ur­stöður ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, sem Alþingi boð­aði til, verið huns­aðar. Katrín Jak­obs­dóttir boðar að „skoðað verði“ hvort efnt verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ein­staka hluta stjórn­ar­skrár­innar, annað hvort ráð­gef­andi eða bind­andi.

Samráð við almenning um stjórnarskrá „skoðað“
Katrín Jak­obs­dóttir For­sæt­is­ráð­herra heldur opnu í minn­is­blaði sínu að boða til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ákveðin atriði stjórn­ar­skrár­innar. Nið­ur­stöðum atkvæða­greiðslu frá 2012 hefur ekki verið fylgt. Mynd: Pressphotos

Í aðeins eitt skipti hefur nið­ur­stöðum ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem Alþingi hefur stofnað til ekki verið fylgt. 

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boð­aði í síð­asta mán­uði að í skoðun yrði hvort almenn­ingur fengi aðkomu að breyt­ingum að stjórn­ar­skrá íslenska lýð­veld­is­ins árið 2020. Það verði hugs­an­lega gert í kjöl­far þess að stjórn­mála­flokk­arnir hafa mótað afstöðu til breyt­inga á stjórn­ar­skránni.

„Allir flokkar sem sæti eiga á Alþingi vinni sam­eig­in­lega að því að fara skipu­lega og heild­stætt yfir stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins og til­lögur sem fram hafa komið á und­an­förnum árum með það fyrir augum að vinna að breyt­ing­ar­til­lögum sem lagðar yrðu fyrir Alþingi hverju sinni í breiðri sátt að und­an­gengnu víð­tæku sam­ráði,“ segir í minn­is­blaði Katrínar til for­manna flokk­anna á Alþingi.

Samþykkt var í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 20. októ­ber 2012 að frum­varp stjórn­laga­ráðs til nýrrar stjórn­ar­skrár yrði grunnur nýrrar stjórn­ar­skrár. 66,9% kjós­enda í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni svör­uðu spurn­ing­unni ját­andi: „Vilt þú að til­lögur stjórn­laga­ráðs verði lagðar til grund­vallar frum­varpi að nýrri stjórn­ar­skrá?“ 

Það var fjórða ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan í Íslands­sög­unni að frum­kvæði Alþingis. Áður hafði Alþingi heim­ilað þjóð­inni að taka afstöðu til inn­flutn­ings­banns á áfengi árið 1908, til þegn­skyldu­vinnu karl­manna árið 1916 og til afnáms áfeng­is­banns árið 1933. Í öllum þeim til­vikum var farið eftir nið­ur­stöðum þjóð­ar­at­kvæða­greiðslna. Kosn­inga­þátt­takan 2012 var sam­bæri­leg við árið 1916, nokkuð minni en árið 1908, en meiri en 1933.

Af minn­is­blaði for­sæt­is­ráð­herra virð­ist óljóst með aðkomu almenn­ings og hversu mikið til­lit verði tekið til þeirra draga að stjórn­ar­skrá sem almenn­ingur sam­þykkti í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu að yrði til grund­vallar: „Hliðsjón verður höfð af þeirri miklu vinnu sem lögð hefur verið í end­ur­skoðun á und­an­förnum árum, sbr. t.d. þjóð­fund, stjórn­laga­nefnd og stjórn­laga­ráð auk starfa stjórn­ar­skrár­nefnda 2005–2007 og 2013–2016, þeirri miklu sam­fé­lags­legu umræðu sem átt hefur sér stað, umræðu og nefnda­vinnu á Alþingi auk afstöðu kjós­enda að því marki sem hún hefur þegar komið fram,“ sagði í minn­is­blað­inu. „Eftir eðli máls­ins hverju sinni verður skoðað hvort efnt verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ein­stök frum­vörp, ann­að­hvort í formi ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sam­hliða alþing­is­kosn­ingum eða í formi bind­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í lok ferlis.“  

Í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í októ­ber 2012 sam­þykktu kjós­endur meðal ann­ars að öll atkvæði á land­inu ættu að vega jafnt (66,5%), að per­sónu­kjör í þing­kosn­ingum yrði heim­ilað í auknum mæli (78,4%), að almenn­ingur gæti knúið fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu (73,3%) og að nátt­úru­auð­lindir, sem ekki eru í einka­eigu, yrðu lýstar þjóð­ar­eign (82,9%). Skiptar skoð­anir eru meðal flokk­anna um þessi atriði, sér­stak­lega þegar við kemur jöfnu vægi atkvæða og per­sónu­kjöri, enda hafa þau áhrif á hags­muni til­tek­inna stjórn­mála­flokka.

Fyrri stjórnarskrárnefnd

Árið 2005 var skipuð stjórn­ar­skrár­nefnd á Alþingi undir for­ystu Jóns Krist­jáns­sonar, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra úr Fram­sókn­ar­flokknum, í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

Í áfanga­skýrslu nefnd­ar­innar var meðal ann­ars gagn­rýnt að ekki hafi verið haft sam­ráð við alla flokka áður en skip­un­ar­bréf var sent út. Þá stóð til að „kynna“ nið­ur­stöður nefnd­ar­innar fyrir almenn­ingi til að ýta undir umræðu almenn­ings um hug­myndir nefnd­ar­innar. „For­mað­ur­inn minnti á að nefndin ætti að hafa það að leið­ar­ljósi að starfa fyrir opnum tjöldum og gefa almenn­ingi kost á að leggja orð í belg. Til stæði að opna heima­síðu og óskaði hann eftir frek­ari hug­myndum frá nefnd­ar­mönnum um það hvernig best væri að standa að kynn­ing­ar­málum. Nefnd­ar­menn tóku undir að nauð­syn­legt væri að stuðla að víð­tækri og upp­lýstri umræðu í þjóð­fé­lag­inu um stjórn­ar­skrána og end­ur­skoðun hennar. Rætt var um að efna á ein­hverju stigi til funda víðs vegar um land til að kynna hug­myndir nefnd­ar­innar. Þá kom fram sú hug­mynd að efna á ein­hverju stigi til stjórn­laga­þings,“ sagði í fund­ar­gerð fyrsta fundar þeirrar nefndar. 

Hug­myndir höfðu verið uppi um stjórn­laga­þing allt frá sam­þykkt núver­andi stjórn­ar­skrár árið 1944. Haldinn var þjóð­fundur árið 2010 og voru síðar almennar kosn­ingar til stjórn­laga­þings árið 2010. Fram­kvæmd kosn­ing­ar­innar var dæmd ólög­leg af Hæsta­rétti, og í kjöl­farið valdi Alþingi hina kjörnu með­limi í stjórn­laga­ráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að viðkvæmum málum“
FréttirStjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að við­kvæmum málum“

Þor­steinn Pálm­ars­son, eig­andi Allt-af ehf, fyr­ir­tæk­is­ins sem fjar­lægði vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ seg­ist oft upp­lifa sig á milli steins og sleggju í deilu­málum milli þeirra sem mála á veggi og þeirra sem biðja um að verkin verði fjar­lægð. Hann vann við að hreinsa til eftir mót­mæli í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár