Listi Roberts yfir stúlkur er enn til - lögregla hefji aftur rannsókn á kynferðisbrotum hans

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, telur lík­legt að lög­regla hefji aftur rann­sókn á máli Roberts Downey, en hann var á árunum 2008 og 2010 dæmdur fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega á fimm ung­lings­stúlkum.

Listi Roberts yfir stúlkur er enn til - lögregla hefji aftur rannsókn á kynferðisbrotum hans
Telur víst að lög­regla hefji aftur rann­sókn Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir bað um opinn fund alls­herjar- og mennta­mála­nefndar í gær til að ræða varð­veislu sönn­un­ar­gagna í saka­málum. Mynd: Pressphotos

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, telur allar líkur á að lög­regla hefji á ný rann­sókn í máli Roberts Downey í ljósi breytts verk­lags í rann­sóknum kyn­ferð­is­brota hjá emb­ætt­inu. Robert var árin 2008 og 2010 dæmdur fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn fimm ung­lings­stúlkum og í sumar lagði sjötta stúlkan fram kæru gegn honum. Á meðal gagna í mál­inu var minn­is­bók með lista yfir 335 kven­mannsnöfn með ýmist síma­núm­erum eða tölvu­póst­föngum og fyrir aftan nöfnin voru númer sem lög­regla taldi víst að vís­uðu í aldur stúlkn­anna. Þau svör höfðu áður borist frá lög­regl­unni að minn­is­bókin væri glötuð, en nú er komið í ljós að hún er aðgengi­leg á Þjóð­skjala­safni Íslands.

Þór­hildur Sunna segir að á sínum tíma hafi ekki verið reynt að hafa sam­band við stúlk­urnar en á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar í gær kom fram í máli Huldu Elsu Björg­vins­dóttur, yfir­manns ákæru­sviðs lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að kæmi slík minn­is­bók inn á borð lög­reglu í dag yrði leitað allra leiða til að upp­lýsa um nöfnin og rann­saka málið í þaula. 

„Þá finnst mér allar líkur á að það verði farið ofan í kjöl­inn á þessum nöfnum.“

„Það sem mér fannst mik­il­væg­ast að kom út úr þessum fundi er að verk­lagið hefur breyst tals­vert hjá lög­reglu,“ sagði Þór­hildur Sunna í við­tali í Kast­ljósi í gær. „Það sem mér fannst alltaf stærsta vanda­málið við þessa minn­is­bók á þessum tíma var að henni var ekki fylgt eftir, það er að segja þarna ertu að finna nöfn 335 kvenna sem lík­legt þykir að hafi orðið, mögu­lega, fyrir mis­notkun af hálfu Roberts Downey en það var ekk­ert gert til þess að athuga þessi nöfn eða hafa sam­band við þessa ein­stak­linga. Það sem kom út úr þessum fundi var að miðað við breytta afstöðu lög­reglu­yf­ir­valda nú og breytt verk­lag gagn­vart kyn­ferð­is­brota­málum, þá finnst mér allar líkur á að það verði farið ofan í kjöl­inn á þessum nöfnum og hugs­an­lega þessum risa­vaxna fjölda kvenna sem gætu hafa orðið fyrir barð­inu á honum Robert Downey.“

Ekki öll sönnunargögn varðveitt

Anna Katrín Snorra­dóttirLagði fram kæru gegn Roberti Downey síð­asta sumar. Hún er sjötta stúlkan til að kæra hann, en hann hlaut upp­reist æru.

Robert Downey, sá þá hét Róbert Árni Hreið­ars­son, var árið 2008 dæmdur í Hæsta­rétti í þriggja ára fang­elsi fyrir brot gegn fjórum ung­lings­stúlkum og árið 2010 var hann dæmdur fyrir brot gegn fimmtu stúlkunni, en ekki gerð refs­ing í því máli. Anna Katrín Snorra­dóttir er sjötta stúlkan til þess að kæra Robert fyrir kyn­ferð­is­brot, en hún lagði fram kæru síð­asta sumar og treysti á að lög­regla hefði enn aðgang að gögnum sem gerð voru upp­tæk í hús­leit hjá Róberti í sept­em­ber 2005. 

Á meðal þess sem fannst voru tveir far­símar, fjögur sím­kort, yfir tvö hund­ruð ljós­myndir sem lög­reglan flokk­aði sem barnaklám og fimm mynd­bands­spólur sem sýndu börn á kyn­ferð­is­legan máta. Það sem vakið hefur hvað mestan óhug í mál­inu var minn­is­bók Roberts með lista yfir stúlkur. Á bak­hlið minn­is­bók­ar­innar voru síðan skráð þrjú nöfn, Rikki, Árni og Robbi, dul­nefnin sem Robert not­aði í sam­skiptum við stúlk­urnar, og fyrir aftan hvert nafn var síma­númer. Anna Katrín telur nokkuð víst að upp­lýs­ingar um hana sé að finna í þessum gögnum. 

Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari sagði á fund­inum að lögin gerðu ekki ráð fyrir að sönn­un­ar­gögn í saka­máli, sem ekki flytj­ast áfram til dóm­stóla, séu varð­veitt áfram ef ske kynni að vera að fleiri brota­þolar leggi síðar fram kæru. Þessum sönn­un­ar­gögnum sé annað hvort eytt eða skilað. Í máli Roberts hafn­aði dóm­ur­inn til að mynda upp­töku á tölvum sem voru hald­lagðar í mál­inu og eru þær því ekki lengur aðgengi­legar. Þau gögn sem voru lögð fram fyrir dóm­stólum í saka­mál­inu sem leiddi til sak­fell­ingar árið 2008, þar á meðal minn­is­bókin fræga, eru hins vegar aðgengi­leg í Þjóð­skjala­safni Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár