Segja frá kynferðislegri áreitni innan kirkjunnar: „Reif mig lausa og þaut út“

Íslenskar konur sem starfa innan þjóð­kirkj­unnar hafa verið áreittar af prestum, sókn­ar­nefnd­ar­mönnum og í sál­gæslu. Ein lenti í því að maður fór á eftir henni á sal­ernið og hafði á orði hvernig hún gæti blessað söfn­uð­inn á túr.

Segja frá kynferðislegri áreitni innan kirkjunnar: „Reif mig lausa og þaut út“
Prestar segja frá Frá­sagn­irnar eru allar nafn­lausar og ekki til­greint hvar atvikin áttu sér stað, heldur er bent á vanda sem þrífst innan íslensku þjóð­kirkj­unnar eins og ann­ars staðar. Mynd: Shutterstock

Konur sem starfa innan kirkj­unnar segja frá kyn­ferð­is­legri áreitni og kyn­bund­inni mis­munun sem þær mæta á vett­vangi starfs­ins. Frá­sagn­irnar voru birtar á vef kirkj­unnar í dag. Samhliða því skora kon­urnar á því að biskup, kirkju­ráð, kirkju­þing, prestar og sókn­ar­nefndir beiti sér fyrir sið­bót hvað varðar vinnu­um­hverfi kvenna, prest­vígðra og ann­arra í kirkj­unni, því frá­sagnir þeirra sýni svart á hvítu að breyt­inga sé þörf. 

Segja kon­urnar meðal ann­ars frá óum­beiðnum kossum, fóta­nuddi og presti sem sleikti tærnar á öðrum presti þegar hann mætti í sand­ölum á sum­ar­degi. Þá hafa prestar einnig lent í því að skjól­stæð­ingar kirkj­unnar sýni af sér óvið­eig­andi fram­komu, lýsi kyn­lífi sínu með eig­in­kon­unni í smá­at­riðum í sál­gæslu, eins og einn gerði.

Sömu­leiðis lenda þær í því að fólk hefur fyr­ir­vara á þjón­ust­unni sem þær veita, vegna kyn­ferðis þeirra. Ein lenti í því að maður fór á kló­settið í kirkj­unni á eftir henni og hafði á orði hvernig hún gæti blessað söfn­uð­inn á túr. Önnur var kölluð „þetta“. 

Hér að neðan má lesa sög­urnar allar: 

  • Eitt sinn var ég að vinna stórt verk­efni með öðru kirkju­fólki. Yfir­maður okkar kom þar að og fylgd­ist með stör­f­unum en ég stjórn­aði hópa­starf­inu. Þá hrós­aði hann okkur fyrir vinn­una enda væri ekki annað hægt þar sem ég væri með svo góða brjósta­skoru. 
  • Áður en ég hlaut vígslu vann ég á stað þar sem mörg vígð áttu erindi. Flest þeirra þekkti ég vel og einn þeirra hafði verið sókn­ar­prest­ur­inn minn til margra ára og ég unnið ýmis störf í kirkj­unni okkar. Eitt sinn þegar hann kemur til að vinna emb­ætt­is­verk á vinnu­stað mínum víkur hann sér að mér, tekur fast utan um mig og kyssir mig beint á munn­inn. Ég ýtti honum frá mér og sagði honum að þetta skildi hann láta vera, ég kærði mig ekki um slíkt. Ég hafði aldrei verið „vöruð“ við þessum manni eins og margar í okkar stétt höfðu verið. Ég kom alveg af fjöllum og taldi að um ein­angrað til­vik hefði verið að ræða. 
  • Eitt um reynsl­una að koma inn í presta­stétt. Margir, alls ekki allir, en margir karl­prest­anna láta sem við kon­urnar séum að koma inn í þeirra klúbb og séum þar á þeirra for­sendum. Þeim leyf­ist enda­laust að segja okkur til um fram­komu og klæðnað jafn­vel og hvernig við ættum nú frekar að tala og ekki vera svona „alþýð­leg“ eins og einn karl­kollegi sagði við mig. 
  • Karl­maður skrif­aði yfir­manni mínum og allri sókn­ar­nefnd­inni bréf þar sem hann kvart­aði yfir því að áður aug­lýstur prestur (karl­maður nefndur með fullu nafni og titli) hefði ekki messað til­tek­inn dag heldur hefði kven­prestur gengið inn kirkj­una. Kven­prest­ur­inn fór ekki í predik­un­ar­stól þegar hún predik­aði heldur not­aði apparat sem lýsti upp ofan­verða hemp­una og svo tal­aði hún um jafn­rétti. Þegar hann nefndi mig í bréf­inu þá var það ávallt sem kven­prestur og svo for­nafnið mitt en þegar karl­prest­ur­inn, sem aug­lýstur hafði verið, var nefndur var það ávallt með fullu nafni og titli. 
  • Hrút­skýr­ingar öðl­uð­ust nýja merk­ingu fyrir mér þegar ég byrj­aði að starfa fyrir kirkj­una. Við konur erum jú vanar að eldri karl­menn finni hjá sér þörf að leið­rétta okkur og kenna, en í starfi mínu fyrir kirkj­una eru það ungu menn­irnir sem sjá sig sífellt knúna til að aðstoða mig, leið­rétta og kenna, alger­lega óum­beðnir. Menn sem vígð­ust á eftir mér og hafa ekki sömu starfs­reynslu. Í fyrstu fannst mér það bara pirr­andi en nú æ oftar nið­ur­lægj­andi. Enda gjarnan gert fyrir framan sam­starfs­fólk á fundum. Aldrei nokkurn tím­ann gera þeir þetta við aðra karl­menn sem eru eldri eða reynslu­meiri en þeir. 
  • Ég var nýlega tekin við sem prestur þegar mér er til­kynnt um and­lát á öldruðum manni. Ég hafði þá jarð­sungið fjóra aðra áður.  Aðstand­endur hringdu fyrst í kirkju­vörð­inn áður en þau hringdu í mig prest­inn, því þau vildu spyrja hann hvort ég treysti mér í að jarð­syngja við­kom­andi og hvort þetta væri í fyrsta sinn sem ég væri að jarð­syngja því þau vissu að ég væri nývígð og að ég væri ung kona. Kirkju­vörð­ur­inn sem er karl­maður hváði. Hann var svo hissa á þessum spurn­ingum og svar­aði svo reiði­lega að hann gæti sko sann­ar­lega sagt það að nýi prest­ur­inn væri búin að jarð­syngja marga og hún væri ekki í þessu starfi ef hún treysti sér ekki til að jarð­syngja. Hann sagði mér síðan frá þessu seinna að útför lok­inni. 
  • Þar sem við sátum saman í kaff­inu spurði kollegi mig hvort hann ætti ekki að nudda á mér fæt­urna. Ég væri eitt­hvað svo þreytu­leg og hann taldi að það gæti gert mér gott. Ég hélt að hann væri að grín­ast og sagði bara nei takk en þá tók hann um annan fót­legg minn, lyfti honum upp í kjöltu sína, færði mig úr skónum og nudd­aði á mér tær og fót. Ég bara fraus. 
  • Í störfum mínum innan Þjóð­kirkj­unnar hef ég oftar en einu sinni upp­lifað að talað sé niður til mín vegna kyn­ferðis. Það er jafn­vel tekið fram að við­kom­andi eigi erfitt með að þiggja þjón­ustu prests­ins vegna þess að ég er kona.  Í trún­að­ar­störfum innan kirkj­unnar hef ég upp­lifað að kollegar taka minna mark á konum, vilja síður hlusta á þær eða afgreiða skoð­anir þeirra sem eina og hina sömu.  Á meðan ég starf­aði sem æsku­lýðs­leið­togi fékk ég iðu­lega eftir sunnu­daga­skól­ann faðm­lag og koss frá sókn­ar­presti sem kom til mín sveittur efir mess­una, hann þakk­aði mér fyrir góða þjón­ustu og tók fram hversu vel ég hefði staðið mig en koss­inn var óvel­komin og faðm­lagið stóð allt of lengi.  Ég hef upp­lifað það að faðm­lag frá kollega af gagn­stæðu kyni hefur staðið of lengi og ekki hætt fyrr en ég hef ýtt við­kom­andi frá eða þurft að labba tölu­vert frá. 
  • Eitt sinn var ég að fara úr heim­sókn hjá sókn­ar­nefnd­ar­for­mann­inum og stóð við úti­dyrnar. Örsnöggt fann ég að hönd hans fór inn fyrir jakk­ann minn og strauk niður eftir mér hlið­ina frá brjóst­stað og niður fyrir rass. Þetta gerð­ist eldsnöggt og ég fraus á staðnum. Svo varð þögn og ég flýtti mér út og hugs­aði: Hvert er ég eig­in­lega komin? Þegar ég kvart­aði undan þessu við yfir­mann sagði hann eitt­hvað á þá leið að það vissu nú allir í bænum hvernig þessi karl væri og kon­urnar pössuðu sig bara á honum.
  • Ég var að kveðja hóp eldri borg­ara fyrir sum­ar­frí.  Einn mað­ur­inn í hópnum greip tæki­færið þegar ég hall­aði mér að honum til þess að faðma hann, kyssti mig beint á munn­inn blautum kossi sem hætti ekki fyrr en ég beitti öllu mínu valdi til að ýta honum frá mér. Þá glotti hann. Engin í hópnum virt­ist taka eftir þessu og ég sagði ekk­ert. 
  • Ég sótti um emb­ætti en fékk ekki en aug­ljóst var að jafn­rétt­islög voru brotin við ráðn­ing­una. Ég var mjög tví­stíg­andi hvort að ég ætti að kæra ráðn­ing­una til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála eða ekki, enda ótt­að­ist ég að það hefði áhrif á mögu­leika mína til að fá vinnu. Þá hringir í mig karl úr yfir­stjórn kirkj­unnar og segir mér að ef að ég sé til í að kæra ekki, því að hann viti vel að lögin hafi verið brotin með ráðn­ing­unni, þá muni hann beita sér fyrir því að ég fái ákveðið starf hjá kirkj­unni sem hann hafði yfir að segja og bað mig um að senda sér fer­ils­skrána mína.  Því er skemmst frá að segja að þetta hjálp­aði mjög til við að taka ákvörðun, ég kærði ráðn­ing­una og fékk niðu­stöðu mér í hag, en það fylgir mér alltaf að hafa kært.
  • Eftir messu kom sókn­ar­nefnd­ar­maður til mín til að þakka mér með faðm­lagi fyrir messu – eins og við gerum svo oft í kirkj­unni. Nema í þetta skipti fannst honum við hæfi í miðju faðm­lagi að reka snöggt fram miðju sína, já kyn­færin og nudda þeim upp við mig. Og um leið og faðm­lag­inu lauk horfði hann á mig glott­andi og gekk í burtu. Hvað gerir kona? Frýs, fyllist óhug og verður alger­lega miður sín… og þegir.
  • Ég var að sækja um prests­emb­ætti, guð­fræð­ing­ur­inn. Spurning frá sókn­ar­nefnd­ar­konu særði mig. Hún var á þá leið að prests­starfið væri erfitt starf og ég þyrfti að mæta fólki við dauð­ann hvort ég treysti mér til þess? Hljóm­ur­inn í rödd hennar sagði: Hvað þyk­ist þú stelpan vera að vilja upp á dekk? Mér fannst það óþol­andi.
  • Ég minn­ist manns­ins sem sagði að hann hefði farið inn á kló­settið í kirkj­unni eftir að ég var þar. Hann vildi vita hvernig prestur gæti blesssð söfn­uð­inn þegar hún væri á túr. Fyrstu mán­uð­ina og árin eftir að þetta gerð­ist hugs­aði ég um þetta í hvert skipti sem mér blæddi. Ég sá and­litið á honum fyrir mér og fannst ég skítug.
  • Ég var ný tekin við sem prestur úti á landi þegar það er bankað upp á um miðja nótt. Ég fer til dyra og fyrir utan stendur maður sem sagði við mig að hann vildi sjá nýja prest­inn. Ég segi við hann að ég geti talað við hann að degi til þar sem ég væri í nátt­fötum og á leið­inni að sofa. Hann býður sér þá sjálfur inn, tekur utan um mig, kyssir mig á kinn­ina og segir mikið erum við heppin að fá svona fal­legan prest. Ég ýti honum frá mér og við það kemur mað­ur­inn minn og biður hann að fara. 
  • Þegar ég var prestur út á landi var ég eitt sinn í erindum í Reykja­vík. Þar sá ég sókn­ar­barn mitt sem ég þekkti vel. Ég hafði oft verið gestur hans og konu hans. Við tókum tal saman og hann vildi endi­lega sýna mér nýju íbúð­ina sem þau hjón voru að kaupa í bænum en ég rakst á hann þar við hús­gafl­inn. Inn fór ég, þegar ég vildi fara eftir stutta stund tók hann utan um mig og var eitt­hvað að þreifa á mér og segja óvið­eig­andi hluti sem ég er búin að loka út úr minn­inu. Ég reif mig lausa og þaut út. Óhug­ur­inn og ónotin voru eftir og ég var alveg ringluð yfir sam­heng­inu við fjöl­skyldu hans. 
  • Eitt sinn sat ég kringum borð ásamt fjölda fólks. Maðurinn sem sat við hlið­ina á mér byrj­aði að nudda lær­inu á sér upp að mínu og setti svo fót­inn ofan á minn. Ég alger­lega fraus, rauk frá borð­inu og titr­aði lengi á eftir.
  • Miðaldra karl­prest­ur­inn sem benti á mig á presta­stefnu þegar ég var nývígð og sagði: „Hvað heitir þetta?“
  • Svo var það mað­ur­inn sem að með glotti lýsti í sál­gæslu­sam­tali kyn­lífi sínu og konu sinnar í smá­at­riðum og vildi mjög að ég segði mína skoðun á hvað væri best og hvernig ég vildi hafa það.  Þetta hef ég upp­lifað oftar en einu sinni og oftar en tvisvar með mis­mun­andi hætti, mínus glottið. 
  • Ég sat á presta­stefnu í kaffi­tím­anum og við hlið mér sat pró­fast­ur­inn minn (kona), hjá okkur sett­ist kollegi sem nýtti kaffi­tím­ann í að lýsa fyrir mér og pró­fast­inum hvað hann hefði nú haft gaman af því að fylgj­ast með mér á sam­veru presta þar sem að ég hefði verið í flegnum kjól og sjá hvernig karl­arnir, sér­stak­lega þeir gömlu lifn­uðu við. Svo lýsti hann í löngu máli á mjög klám­feng­inn hátt hvernig ákveð­inn eldri kollegi hefði sótt í að tala við mig og horfa niður brjósta­skor­una á meðan. Pró­fast­ur­inn tók þátt í sam­tal­inu án þess að finna að nokkru og mér fannst ég alger­lega nið­ur­lægð.
  • Ég hef reynt að verja mig gagn­vart áreitni kollega, föstum faðm­lögum, óvæntum kossum og eyrn­an­arti,  með því að ljúga því til að  ég sé með ofnæmi fyrir rakspíra.
  • Ákveðinn karl­prestur vill alltaf kyssa mig á munn­inn sem mér finnst mjög óþægi­legt. Núna í haust þegar mér hefur vaxið hug­rekki, þakkað sé #metoo sagði ég við hann að ég vildi ekki að hann kyssti mig á munn­inn. Þá sagði hann mjög nið­ur­lægj­andi: hvaða, hvaða má nú ekk­ert lengur?
    Mér fannst hann gera mjög lítið úr til­finn­ingum mínum og rétt­inum til að skapa mér mín mörk.
  • Þegar ég var í starfs­þjálfun hjá karl­kyns sókn­ar­presti var eitt sinn sér­stak­lega mikið um að vera í kirkj­unni. Prest­ur­inn hringdi í mig og bað mig um að þrífa skrif­stof­una sína hátt og lágt þar sem vígslu­biskup væri vænt­an­legur í heim­sókn þann sama dag og hann sjálfur hefði ekki tíma til þess. Að sjálf­sögðu var hinn starfs­þjálf­un­ar­nem­inn, sem var karl­maður, ekki settur í þetta verk­efni.
  • Ég lendi reglu­lega í því að vera kölluð „stelpan“. Aldrei eru karl­kyns kollegar mínir kall­aðir „strák­ur­inn“. Það er talað öðru­vísi um okkur kon­urnar og við okkur. Eins eru sókn­ar­börnin mín mjög upp­tekin af þyngd­inni minni, ræða reglu­lega við mig í messu­kaff­inu um hvort ég hafi þyngst eða lést und­an­farið og hvernig ég líti almennt út þann dag­inn. Hvernig ég er klædd og greidd. Útlit mitt virð­ist skipta mörg þeirra meira máli en hvernig ég er að standa mig í starfi.
  • Fyrsta aðfanga­dags­kvöldið í starfi og messan hafði gengið betur en ég þorði að vona. Það varp­aði óneit­an­lega skugga á gleð­ina að eitt sókn­ar­barna minna, kona, sem hafði ekki legið á þeirri skoðun sinni að hún væri alger­lega á móti kven­prestum, lagði mikið á sig að sýna mér fyr­ir­litn­ingu sína á leið út úr kirkj­unni og heils­aði hvorki né óskaði gleði­legra jóla.
  • Yfir­maður minn heils­aði mér ekki í tvö ár af því við vorum ekki sam­mála um ákveðið ágrein­ings­mál innan kirkj­unnar. Hann heils­aði samt mann­inum mínum sem stóð við hlið­ina á mér.
  • Í nokkur skipti á starfs­ferli mínum hefur það komið fyrir að fólk hafi ákveðið að þiggja ekki þjón­ustu mína við útför vegna þess að ég er kona.  Útskýr­ingar eins og: „mamma hefði ekki viljað að kona jarð­aði sig“, „bróðir minn er svo mikið á móti kven­prestum að hann getur ekki hugsað sér að þú jarðir fyrir fjöl­skyld­una“ og „systir mín heyrir ekk­ert í kven­prestum svo það gengur ekki að þú jarðir“. 
  • Ég man kjör­nefnd sókn­ar­nefnd­anna þar sem ég sótti um prests­emb­ætti og mann­inn sem spurði: „Nú ert þú margra barna móðir. Hver hugsar um börnin? Og hvað á mað­ur­inn þinn að vinna við?“
  • Kollegi hót­aði mér að skrifa níð­grein um mig á vef­síðu kirkj­unnar og í Morg­un­blaðið ef ég myndi ekki draga umsókn mína um starf til baka.
  • Nýlega fékk ég athuga­semdir frá eldri kven­presti sem snertir útlit mitt og ég flokka tví­mæla­laust sem kyn­bundna áreitni. Hún spurði mig í tvígang hvort ég, margra barna móðir og sann­ar­lega komin úr barn­eign, væri „bomm“ eins og hún orð­aði það og benti glott­andi á fram­stæðan held­ri­konu mag­ann minn. Í annað skiptið vorum við tvær á skrif­stof­unni minni en í hitt skiptið urðu tveir kirkju­verðir vitni að þess­ari ósvífnu og dóna­legu spurn­ingu.
  • Orða­til­tækið að vera „sett í frost“ lærði ég ekki hvað merkti í raun fyrr en ég fór að vinna hjá kirkj­unni. En það merkti að yfir­maður okkar lagði sig fram um að sýna ákveðnum kven­kollega van­þóknun sína, úti­lok­aði, heils­aði ekki og svo fram­vegis, allt vegna þess að hún hafði leyft sér að kvarta yfir ákvörðun hans. Seinna var ég svo sjálf sett í frost og fann þá í alvöru hvað það merkti.  
  • Þetta minnir mig á þegar ég fyrir mörgum árum sótti um prests­emb­ætti í borg­inni og kom í kirkj­una til að ræða við sókn­ar­nefnd­ar­for­mann­inn. Hann mældi mig út og stað­næmd­ist sér­stak­lega við mag­ann á mér og sagði eitt­hvað á þá leið að söfn­uð­ur­inn myndi ekki þola að sókn­ar­prest­ur­inn færi í leyfi á næst­unni. Ég var þá ung tveggja barna móðir og alls ekki á leið­inni að eiga fleiri börn en þótti athuga­semdin mjög óvið­eig­andi.
  • Eitt sinn sat ég fund presta að kvöldi til. Við sátum öll í hring. Ég var í frekar stuttu pilsi og karl­pró­fast­ur­inn sem sat við hlið­ina á mér gat ekki tekið augun af hnjá­koll­unum á mér. Eftir nokkra stund þótt­ist hann reka sig í mig og lagði hönd­ina á lærið á mér. Ég var við­búin, greip lúk­una á honum og skellti henni á hans eigin læri með miklum til­þrifum. Allir í hópnum tóku eftir þessu og ráku upp skelli­hlátur sem varð til þess að guðs­mað­ur­inn rauk á dyr. Aldrei baðst hann afsök­unar og ég átti ekki von á því. Hitt þótti mér verra og særði mig mikið að margir úr hópnum komu að máli við mig eftir þetta atvik, sumir rifj­uðu það upp nokkrum árum síðar. Öllum bar þeim saman um að ég hefði nið­ur­lægt gamlan kollega. Engum þeim sem ég ræddi við fannst að hann hefði nið­ur­lægt mig með því að káfa á mér.
  • Móð­ur­bróðir minn hringdi í mig þegar hann frétti að ég væri byrjuð í guð­fræði­námi til að til­kynna mér að ef ég lyki námi og yrði prestur þá væri það á hreinu að ég mætti ekki jarð­syngja hann þegar sá dagur kæmi. Konur ættu ekk­ert erindi í þetta starf og bara til­hugs­unin um konu í hempu ylli honum óþæg­indum. 
  • Við heilsuð­umst með faðm­lagi, ég og kollegi minn, í sam­eig­in­legu rými þeirra er koma að kirkju­legum athöfnum líkt og algengt er. Hann snýr and­liti sínu að mínu setur varir sínar að mínum og stingur tung­unni upp í mig. Ég fraus. Ein­hverjum vikum síðar hitt­umst við aftur í sama rými og það sama ger­ist aftur, við föðm­umst hann hélt mér þétt­ings­fast og stingur tung­unni upp í mig. Ég brást illa við og bað hann um að ræða við mig undir fjögur augu. Ég sagði honum að þessi fram­koma væri fyrir neðan allar hellur og mér væri gjör­sam­lega mis­boðið. Hann baðst afsök­unar og lof­aði að gera þetta ekki aftur. Í næstu skipti er við hitt­umst hafði hann á orði að hann þyrði ekki að faðma mig, ég svar­aði því til að það væri gott að hann gerði ekki til­raun til þess.
  • Sókn­ar­nefnd­ar­kona sagði einu sinni á sókn­ar­nefnd­ar­fundi þar sem ég var sókn­ar­prestur að það vant­aði alla föð­ur­lega stað­festu í sókn­ar­prest­inn. 
  • Þegar ég hóf störf í kirkj­unni var ég komin með nokkuð þykkan skráp gagn­vart atvikum og athuga­semdum sem vörð­uðu útlit mitt og kyn­ferði. Ég gleymi samt aldrei þegar eldri karl­prestur sagði við mig að ég ætti ekki að vera með svona áber­andi vara­lit, þá myndu sókn­ar­börnin ekki heyra hvað ég segði. Svo var stundum sagt á fyrstu prest­skap­ar­árum mínum að ég punt­aði svo mikið upp á þar sem ég var oft eina konan í hópi karl­presta. Þetta var lík­lega meint sem hrós en ég hafði nú ekki vígst til prests­þjón­ustu til að vera upp á punt.
  • Þegar ég eftir nokk­urra ára þjón­ustu, gift kona og móðir tveggja ungra barna, fékk ósið­legt til­boð sem við­kom­andi karl­prestur taldi í sjálf­um­gleði sinni að ég gæti ekki hafnað, var mér mjög brugðið. Þetta atvik sem gerð­ist á fundi úti á landi hafði djúp­stæð áhrif á líf mitt enda þótt neitun mín hafi verið tekin gild. Á öðrum fundi síðar, sömu­leiðis úti á landi, taldi vinur hans, annar karl­prestur, hins vegar í lagi að spyrja mig nær­göng­ulla og klám­feng­inna spurn­inga sem tengd­ust þessu atviki. Hann varð þó að við­ur­kenna, hálf skömmustu­legur, að hann vissi að ekk­ert hafði orðið úr ætl­un­ar­verki vinar síns.
  • Dæmi um „Er pabbi þinn heima“ spurn­ingu.  Ég er sókn­ar­prestur í borg­inni og er enda­laust spurð að því hvort að ég sé nokkuð ein að starfa í þess­ari kirkju, er ekki annar með þér?  Eða á manna­máli: er ekki örugg­lega karl­maður sókn­ar­prest­ur­inn og þú prest­ur­inn?
  • Einu sinni svar­aði ég í sím­ann á skrif­stof­unni minni og þegar ég spurði um erindið segir rödd karl­prests á hinum enda lín­unnar: „Ég ætl­aði bara að segja þér að ég elska þig.“ Síðan sló hann orðum sínum upp í grín og fór að ræða eitt­hvað mál sem þurfti að leysa. Ég get ekki gleymt þessu þó mörg ár séu liðin þar sem mér fannst þetta mjög óvið­eig­andi enda bæði prestar og harð­gift, ekki hvort öðru. Sami maður gaf mér seinna súkkulaði­kossa og súkkulaði­hjörtu sem þakk­læti fyrir eitt­hvað sem ég gerði fyrir hann sem var hluti af mínu starfi og lét það eftir sér að kyssa mig á munn­inn þegar ég kom til hans á skrif­stof­una í ein­hverjum erindum. Þessi röð atvika sem varði yfir langan tíma trufl­aði mig mikið og ég var farin að kvíða því að koma á fundi sem ég vissi að hann myndi sækja.
  • Ég hef orðið fyrir áreitni skjól­stæð­ings, eldri ekkils, sem mér þó tókst að vísa á bug án þess að úr yrði meiri skaði. Óþæg­indin sem fylgja því að vera beðin um koss á munn hverfa þó ekki svo glatt. Atvikið minnti mig á að það er ekki ráð­legt að veita fólki sem býr ein­samalt sál­gæslu á heim­ili þess. 
  • Um ára­bil vann ég með sókn­ar­presti sem beitti mig miklu ofríki þann tíma sem við unnum saman. Við tók­umst mikið á inn­byrðis og vorum ósann­gjörn á báða bóga. Pró­fast­ur­inn kom inn í málið til að reyna að leysa úr ágrein­ingnum. Þegar sókn­ar­prest­ur­inn var að lýsa hvernig hann sæi stöðu okkar í sam­starfi not­aði hann þá lík­ingu að ég væri eins og skúr­inga­kona hjá honum og vildi ekki sinna mínum hluta. Pró­fast­ur­inn stopp­aði hann af í þessum sam­an­burði. Að end­ingu hrökkl­að­ist ég úr starf­inu. Á upp­sagn­ar­tím­anum sem voru þrír mán­uðir kom upp sú staða að ég þurfti að fara í minni­háttar móð­ur­lífs­að­gerð, það var komið grænt ljós hjá lækn­inum á aðgerð­ina. Þegar ég sagði sókn­ar­prest­inum frá að ég þyrfti að fara í þessa aðgerð og yrði frá í 3-5 daga þá sagði hann að ég gæti ekki farið í veik­inda­leyfi. Þar sem ég var orðin svo nið­ur­brotin á þessum tíma eftir sam­skipti okkar þá frestaði ég að fara í aðgerð­ina þangað til eftir að ég var hætt. Mér finnst erfitt að skrifa þetta en um leið okkuð frelsandi.
  • Fólk virð­ist halda að það hafi tak­marka­laust leyfi til að hafa skoðun á útliti kvenna. Eldri karl­prestur sagði til dæmis við mig þegar ég var nýbúin að ala barn og var venju fremur væn eftir barns­burð­inn hvað það klæddi mig vel að vera svo­lítið búttuð. Annar mændi á mig þegar ég gekk upp stiga í veislu í heima­húsi og lét í ljósi aðdáun sína á lík­ama mínum.
  • Ég starf­aði sem prestur í sókn þar sem fyrir var karl­kyns sókn­ar­prestur. Eftir stuttan tíma í starfi var ljóst að mér var ætlað annað starf en það sem aug­lýst var og fram hafði komið í við­tölum. Sókn­ar­prest­ur­inn umræddi ætl­aði mér að vera sér­leg aðstoð­ar­kona hans. Mitt hlut­verk taldi hann vera að hlaupa í skarðið fyrir sig þegar hann mætti ekki eða afboð­aði sig með litlum og stundum engum fyr­ir­vara, sem var ótelj­andi sinnum. Sæta því að hann breytti vinnu­tíma mínum í sífellu eftir eigin geð­þótta. Láta mér lynda fjár­mála­óreiðu, að mis­farið var með fé úr sam­eig­in­legum sjóði, ósvífna inn­heimtu ferm­ing­ar­fræðslu­gjalda og fleira. Ekki síst að taka á mig sök af mörgum þeirra ótal mis­taka sem hann gerði í starfi sínu. Lygar af hans hálfu til að koma mér illa eða fegra sitt fram­ferði voru nær dag­legt brauð, nið­ur­lægj­andi fram­koma, fýla, skap­sveiflur og óþægi­legar athuga­semdir. Ástandið varði þar til ég hætti og sótti um annað starf. Ég ræddi málið við ótal kollega og með form­legum hætti við öll þau sem gegndu yfir­manns­stöðum eða höfðu með málið að gera, bæði á meðan ástandið varði og eftir að ég hafði verið flæmd burt af vinnu­staðnum. Sum tóku þetta mjög alvar­lega en gerðu ekk­ert, önnur sögðu að svona væri við­kom­andi bara, mörg höfðu fleiri sögur að segja af við­kom­andi, enn annar taldi ekk­ert annað til ráða en að við ynnum bara saman eins og góð hjón enda væri sam­starf okkar karls og konu svona eins og hjóna­band bara í vinn­unni, annar minnti mig föð­ur­lega á að hver karl­maður þyrfti á því að halda að hafa konu sem passar uppá sig.  Annar sem ég ræddi við til­tók að ég sem væri svo skipu­lögð hefði það hlut­verk að bæta upp hið aug­ljósa óskipu­lag og óreiðu sam­starfs­manns­ins, önnur sagð­ist hafa lent í því sama og svona væri lífið bara, ekki síst var mér gerð grein fyrir því af yfir­manni að það yrði verst fyrir mig sjálfa ef ég setti málið í form­legt kæru­ferli. Því er ekki að neita að það hvernig yfir­menn mínir og sam­starfs­fólk þá og nú brugð­ust mér, í þessum aðstæðum og þeim eft­ir­köstum sem urðu af þess­ari reynslu svo sem að þurfa að skipta um starf, hefur haft mikil áhrif á mig og starfs­feril minn.  Núna þessum árum seinna hefur það mikil áhrif á mig, bara að setja þetta á blað og vekur með mér ótta um nei­kvæðar afleið­ingar. Hið góða var að það kom ber­sýni­lega í ljós hvað ég á góða vini og vin­konur. 
  • Ég veit ekki hversu oft ég hef komið grát­andi heim og spurt: hvenær í ósköp­unum hefði svona nokkuð verið sagt við karl­mann? 
  • Karlkyns kollegi hvatti mig að sækja um stöðu við hlið hans. Hann vildi konu en ekki karl­mann til að starfa með sér, ein­hverja sem segði honum hvenær bindið hans væri skakkt og sokk­arnir í mis­mun­andi lit, ein­hverja sem gæti lesið yfir predik­an­irnar hans og annað slíkt. Við kon­urnar værum svo natnar við slíkt. Svona „eig­in­kona í vinn­unni“ eins og hann orð­aði það. Ég sótti ekki um starfið. 
  • Þrátt fyrir mörg ár í starfi og mikla reynslu er það síend­ur­tekin upp­lifun að vera leið­beint af karl­kyns kol­legum. Talað föð­ur­lega og vandað um fyrir eins og smá­krakka. Jafnvel mun yngri og reynslu­minni karlar finna sig í að leið­beina mér óum­beðið. 
  • Á minni fyrstu presta­stefnu fyrir ára­tugum bað ég um orðið til að vekja athygli á efni sem var ný komið út hjá kirkj­unni og lá á borði í salnum.  Þegar ég hafði talað bað karl­kyns prestur um orðið.  Hann vildi koma þeim skila­boðum á fram­færi að ekki ætti að nýta tíma stefn­unnar í óþarfa mála­til­búnað.  Sá tími sem fór í þessa ábend­ingu hans var álíka langur og ég not­aði í máli mínu.  Það hafði þau áhrif á mig að ég bað nán­ast aldrei um orðið á presta­stefnu næstu árin og oft eftir það með hnút í mag­anum.  Þessir þögg­un­ar­til­burðir svín­virk­uðu. Þessi sami prestur hefur margoft gert lítið út orðum mínum, hár­togað, vís­vit­andi rang­túlkað og snúið út úr því sem ég segi. Áratugum síðar lét ég í ljós skoðun mína á fundi.  Enginn tók undir orð mín.  En þegar karl­maður sagði nákvæm­lega það sama nokkru síðar tóku margir undir þessa góðu til­lögu hans. Ég hef líka verið minnt á það af karl­manni að ég eigi að vanda mig í sam­skiptum við fólk og vera kurt­eis og til­lits­söm þegar ég tala.  Þetta hefur verið sagt eftir að ég nefndi eitt­hvað á fundum sem við­kom­andi hefur ekki líkað eða haft sömu skoðun á. Ófá eru skiptin og fleiri en fingur hand­anna þar sem ég hef spurt sjálfa mig að því í lok funda hvort svona væri talað við mig ef ég væri karl.  Sam­starfs­fólk mitt notar orðið kven­fyr­ir­litn­ing um fram­komu við mig á fundum. 
  • Ég var á balli í sókn­inni og sat ég við hlið sókn­ar­nefnd­ar­manns hluta úr kvöldi. Hann var orð­inn drukk­inn og káf­aði á lær­inu á mér eins og hann ætti mig.
  • Ég var prestur úti á landi og var gert ljóst frá fyrsta degi af karli í sókn­ar­nefnd­inni að hann teldi það mikla nið­ur­læg­ingu fyrir plássið að þangað hefði valist kona sem prestur. Fyrstu tvö árin í þessum söfn­uði voru mér gerð ótrú­lega erfið af hálfu þessa manns og skila­boð yfir­manna minna var að ég þyrfti bara að standa þetta af mér, ekk­ert væri hægt að gera. Á end­anum varð þessi karl svo mik­ill vinur minn og sá að sér. 
  • Á einni af mínum fyrstu presta­stefnum man ég eftir að hafa verið vöruð við ákveðnum kol­legum mínum þar sem þeir voru þekktir fyrir að verða fjöl­þreifnir þegar þeir væru búnir að fá sér aðeins neðan í því. Upp­lifunin var eins og þetta þætti bara fyndið og ég ætti bara að vera upp með mér að þeir skyldu líta við mér. Fjöl­þreifnin var hrós. 
  • Það var fyrst fyndið hvernig ótrú­lega margir karl­arnir í stétt­inni hlusta af athygli hver á annan og taka upp í umræðum orð hver ann­ars og taka mark á því sem karl kollegar segja.  En um leið hundsa, sneiða hjá eða gera lítið úr því sem kon­urnar hafa til mál­anna að leggja.  Seinna varð þetta leið­in­legt, núna eftir öll þessi ár er þetta óþol­andi. 
  • Á leið minni í sorg­ar­hús kom ég við í nær­staddri kirkju til að fá lán­aða sálma­bók. Kollegi minn tók á móti mér og náði í bók­ina fyrir mig. Áður en hann rétti mér hana tók hann utan um mig og bað Guð um að styrkja mig í þessu erf­iða verk­efni. Ég þakk­aði fyrir og ætl­aði að drífa mig áfram en þá þétti hann faðm­lagið, kyssti mig á kinn­ina og sleikti á mér eyrn­ar­snep­il­inn. Mér brá, en sagði ekki neitt og með óþæg­inda­til­finn­ingu fór ég í sorg­ar­hús til að styðja aðstand­endur í sorg sinni. 
  • Eitt sinn sat ég í sál­gæslu­við­tali með karl­manni og eftir smá tíma varð mér ljóst að hann var undir áhrifum vímu­efna. Hann grín­að­ist mikið með það hvað kven­prestar væru orðnar þokka­fullar og hvað það væri góð lykt af mér. Nokkrum mín­útum fyrr hafði kirkju­vörð­ur­inn skellt á eftir sér hurð­inni og varð mér skyndi­lega hugsað til þess að ég var alein í bygg­ing­unni fyrir utan skjól­stæð­ing minn. Engin myndi heyra í mér þótt ég myndi æpa, engin aðstoða mig ef ég þarfn­að­ist þess. Ég var varn­ar­laus með öllu. Þótt skjól­stæð­ingur minn sýndi enga til­burði til þess að meiða mig varð ég ekki róleg fyrr en hann fór. 
  • Ég veitti öldruðum ekkju­manni sál­gæslu. Á meðan sorg­ar­vinn­unni stóð reyndi hann ítrekað að kyssa mig og bjóða mér ást sína. Hann hringdi heim til mín jafnt daga sem nætur í marga mán­uði og hót­aði að fyr­ir­fara sér ef ég þýdd­ist hann ekki. Á end­anum varð ég að ræða við aðstand­endur hans um þetta atferli og þá fyrst fékk ég frið.
  • Í umsókn­ar­ferli um emb­ætti var ég spurð að því hver myndi sjá um þrif heima hjá mér og umönnun barn­anna þegar að ég væri að störfum.  Hvort ég fengi nokkurn frið fyrir börn­unum í vinn­unni.  Ég hef líka verið spurð að því hvernig ég sé vön að klæða mig þegar ég er ekki að messa, hvort ég noti nagla­lakk og þá hvernig á lit­inn og hvort ég máli mig mikið. 
  • Það var á fyrstu árum mínum í þjón­ustu að ég var stödd í hópi kollega, sem aðal­lega voru eldri karl­menn, að einn þeirra gefur sig á tal við mig og spyr hvar ég sé í þjón­ustu. Þá var ég starf­andi á svæði sem er erfitt yfir­ferðar, sér­stak­lega á vetrum. Þá spurði hann mig hvort ég hefði góðan bíl­stjóra. Ég neit­aði því og þá spurði hann hvort ég væri ekki hrædd að vera ein á ferð­inni svona ung konan. Ég svar­aði því eitt­hvað á þá leið að það væri engin hjálp í því að vera hrædd þegar maður þyrfti að ein­beita sér að akstr­inum. Senni­lega hefur eitt­hvað hnussað í mér enda þótti mér spurn­ingin fárán­leg. Þá strauk hann mér um vang­ann eins og ég væri barn og sagði (með rómi eins og hann hefði gleypt smjör­klípu): „Þú ert svo dug­leg vinan“.  
  • Að sumri til kom ég til vinnu ber­fætt í banda­skóm. Ég sett­ist til vinnu inn á skrif­stofu minni og skömmu síðar kom kollegi minn inn til mín og sett­ist í annan við­tals­stól­inn minn. Hann dásam­aði skóna mína og spurði svo hvort ég vildi ekki fóta­nudd. Ég neit­aði því. Áður en ég vissi af, steig hann upp úr stólnum, kraup fyrir framan mig,  tók upp annan fót minn og sleikti á mér tærnar. Ég man að ég spurði hann hvort það væri ekki allt í lagi með hann og hjart­slátt­ur­inn dundi fyrir eyrum mér. Ég hef örugg­lega orðið mjög vand­ræða­leg en hann lét eins og þetta væri ekk­ert mál og gekk að svo búnu inn á skrif­stofu sína. Ég þarf varla að taka það fram að ég fór aldrei aftur ber­fætt í banda­skóm til vinnu á skrif­stofu minni. 
  • Hef end­ur­tekið verið gerð að skot­marki af karl kollega á opin­berum vett­vangi með alvar­legum ásök­unum, dylgjum og lygum og þar sem stað­reyndum hefur verið hag­rætt og rangt með farið. Þessum mála­til­bún­aði hefur ekki linnt þótt hann eigi sér engan grund­völl. Til­gang­ur­inn hjá karl kollega mínum hefur verið að gera lítið úr mér en upp­hefja sjálfan sig og breiða yfir eigin veik­leika. 
  • Ég var að fræða ferm­ing­ar­börn í stórri sókn ásamt öðrum presti. Sá var sókn­ar­prest­ur­inn og hann sagði mér að þriðj­ungur ferm­ing­ar­fræðslu­gjalds­ins félli í minn hlut en hann tæki rest þar sem hann væri með meiri ábyrgð en ég. Vinna okkar var samt alveg jafn mikil. Eins fékk ég sjaldan að blessa söfn­uð­inn í messum. Þegar ég minnt­ist á þessi atriði við hann sagði hann að ég væri svo ung en ég gæti þó alltaf sett upp vara­lit­inn. Það gæti hann ekki. 
  • Eitt sinn vann ég tíma­bundið með karl­kyns presti. Tók hann upp á að strjúka alltaf mag­ann á mér þegar hann heils­aði mér, en ég var ólétt á þeim tíma. Fyrst fannst mér þetta ein­ungis mjög dóna­legt en þegar hann gerði þetta aftur og aftur vissi ég að þetta snérist um annað og meira en að snerta óléttu­kúlu. Sér­stak­lega því hann hætti þessu alltaf þegar önnur mann­eskja gekk inn í her­bergið. Ég reyndi þess vegna að vera aldrei ein með honum í rými með mis­góðum árangri. Nokkrum mán­uðum síðar fór hann á annan vinnu­stað. En ég hugsa alltaf um þetta þegar ég sé hann þótt lið­inn sé langur tími síðan við unnum saman og ég sé svo eftir því að hafa ekki sagt eitt­hvað við hann til að stöðva þetta. 
  • Eftir nokkur ár í starfi sótti ég um stöðu sókn­ar­prests í Reykja­vík. Kollegi einn hringdi til mín og sagði mér í föð­ur­legum tón að ég skyldi nú ekki gera mér miklar vonir um slíkt emb­ætti, þar sem ég væri svo ung og óreynd. Hann var þá sjálfur sókn­ar­prestur í stóru presta­kalli á sama svæði og hafði útskrif­ast tveimur árum á undan mér. 
  • Ég hafði sótt um stöðu sókn­ar­prests á SV horn­inu. Einn kollegi minn, karl­maður hringdi í mig og hvatti mig til að draga mig til baka þar sem annar kollegi okkar, karl­maður, væri nú senni­lega hæf­ari í stöð­una. Ég fylgdi ekki þeirri hvatn­ingu. 
  • Á meðan ég var í guð­fræði­nám­inu vann ég sem kirkju­vörður. Nokkrum mán­uðum eftir að ég hóf störf, var ég beðin að koma ekki aftur í buxum í kirkju­vörsl­una. Sókn­ar­prest­ur­inn daðr­aði mikið við konur, og ein sam­starfs­kona mín var barm­mikil. Hann gerði sér far um að faðma hana og nudda sér upp við barm hennar – sem var mjög óþægi­legt fyrir okkur sam­starfs­fólkið, en ekk­ert okkar sagði neitt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár