Fimm réttir í lífi mínu: Úr villtri náttúru Grænlands

Stefán Hrafn Magn­ús­son, hrein­dýra­bóndi á Græn­landi, slátrar úr hrein­dýra­hjörð­inni sér og sínum til matar og finnur m.a. hvönn til að krydda mat­inn með. Stefán Hrafn eldar gjarnan rétti sem eru hollir og góðir í maga svangs bónda, vinnu­manna, göngugarpa og veiði­manna.

Fimm réttir í lífi mínu: Úr villtri náttúru Grænlands
Stefán Hrafn Magn­ús­son Býr á hrein­dýra­bú­garði á Græn­landi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stefán Hrafn Magn­ús­son hrein­dýra­bóndi rekur hrein­dýra­bú­garð á jörð­inni Isortuusua á Suður-Græn­landi sem er um 150.000 hekt­arar. Fyrir utan að vera þar bóndi rekur hann ferða­þjón­ustu á búgarð­inum auk þess að vera í sam­starfi við Lax-á sem rekur veiði­búðir á land­inu. Græn­lands­jök­ull og stór­brotin nátt­úran blasa víða við ferða­fólki og veiði­mönnum frá öllum heims­hornum og eru jafnan í boði á búgarð­inum og í veiði­búð­unum hrein­dýra­kjöt og nýveiddur sil­ungur.

Hreindýrakjötsspænir

Pottréttur Sama frá Finnmörku, fyrir tvo til þrjá

„Þessi réttur varð til á þann hátt að á vet­urna þegar menn voru úti í nátt­úr­unni og slátr­uðu hrein­dýri þá úrbein­uðu þeir t.d. bóg­ana á meðan dýrið var volgt. Þeir voru kannski í tjaldi í 20 stiga frosti eða höfð­ust við í gangna­kofa eða sælu­húsi og hengdu þá kjötið gjarnan í poka fyrir utan. Þegar þeir ætl­uðu svo að elda sér mat­inn eitt­hvert kvöldið þá náðu þeir í úrbein­aða bóga fyrir utan tjald eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár