Samfélagslegar lausnir á sjúkum leigumarkaði

Lengi hefur verið talað um neyðar­ástand á leigu­markaði. Leiguverð á höfuð­borgar­svæðinu hefur hækkað töluvert umfram tekjur síðastliðin ár með þeim afleiðingum að æ fleiri flytja út fyrir borgina, úr landi eða enda hreinlega á götunni. Þá búa leigjendur á Íslandi við afar takmörkuð réttindi sé tekið mið af nágranna­löndunum. Lausnin gæti falist í því að auka vægi óhagnaðar­drifinna leigu­félaga sem rekin eru á samfélags­legum forsendum.

Mikil þörf
Mikil þörf Gríð­ar­legar fram­kvæmdir hafa verið við nýbygg­ingar í höf­uð­borg­inni síð­ast­liðin ár. Samt sem áður vantar ennþá 5000 íbúðir inn á mark­að­inn til þess að hann nái jafn­vægi. Mynd: Kristinn Magnússon

Leiguverð á höfuð­borgar­svæðinu hefur hækkað um 75,1 prósent frá byrjun árs 2011 samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Á sama tímabili hafa laun almennt hækkað um 64 prósent. Þannig rennur sífellt hærra hlutfall ráðstöfunar­tekna leigjenda í húsnæðis­kostnað. Þetta þýðir að æ fleiri þeirra tekju­lægstu eiga erfitt með að ná endum saman. Sumir bregða á það ráð að flytja út á land þar sem fasteigna­verð er lægra eða einfald­lega úr landi eigi þeir þess kost. Þá eru dæmi um að fólk setjist að í tjöldum eða bílum líkt og rakið hefur verið í fréttum undan­farið. Við þetta bætist svo að ungt fólk er mun lengur í foreldra­húsum en áður. Almennur skortur á íbúðar­húsnæði, hækkandi fasteigna­verð, aukin umsvif sérhæfðra leigu­félaga og útleiga íbúða til ferða­manna eru á meðal helstu ástæðna þess neyðar­ástands sem ríkir á íslenskum leigu­markaði, samkvæmt niður­stöðum helstu greiningar­aðila.

Þegar verka­manna­bústaða­kerfið var lagt niður í kringum síðustu aldamót fóru fimm …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár