Reyndur náttúruverndarsinni skipaður umhverfisráðherra

Sigríður Andersen, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Þórdís Kolbrún Reykj­fjörð halda ráðu­neytum sínum. Þá verður Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra. Katrín Jak­obs­dóttir leit­aði út úr þing­flokknum og skip­aði óvænt reyndan umhverf­is­vernd­ar­sinna í umhverf­is­ráðu­neytið.

Reyndur náttúruverndarsinni skipaður umhverfisráðherra
Nýr umhverf­is­ráð­herra Nátt­úru­vernd­ar­sinn­inn Guð­mundur Ingi Guð­brands­son fer í ráðu­neyti umhverf­is­mála. Mynd: Landvernd

Óvæntasta útspilið í myndun nýrrar rík­is­stjórnar er ákvörðun Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að skipa Guðmund Inga Guð­brands­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna Land­verndar, í umhverf­is­ráðu­neytið. 

Guð­mundur Ingi er mennt­aður líf­fræð­ingur og umhverf­is­fræð­ingur að mennt. Hann hefur stundað rann­sóknir í vist- og umhverf­is­fræðum við Háskóla Íslands og við alþjóða­mál og rann­sóknir hjá Land­græðslu rík­is­ins.

Þá hefur hann kennt í nokkrum nám­skeiðum við Háskóla Íslands, Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands og Háskóla­setur Vest­fjarða síðan 2006. Guð­mundur Ingi hefur auk þess starfað sem land­vörður.

Guð­mundur Ingi er einn fárra utan­þings­ráð­herra í íslenskum rík­is­stjórnum á þess­ari öld. Áður gegndu Gylfi Magn­ús­son og Ragna Árna­dóttir ráð­herra­emb­ættum í vinstri stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, en Ólöf Nordal var einnig utan þings og svo Lilja Dögg Alfreðs­dóttir.

Katrín Jak­obs­dóttir rök­styður ákvörðun sína meðal ann­ars með þeim hætti að mikið álag verði á þing­mönnum vegna auk­innar áherslu á hlut­verk Alþingis, en einnig með því að Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir tóku þá afstöðu að greiða atkvæði gegn stjórn­ar­sam­starf­inu á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna.

Svandís Svav­ars­dóttir verður heil­brigð­is­ráð­herra.

Ásmundur ráðherra

Þá vekur athygli að Ásmundur Einar Daðason hefur verið skip­aður félags­mála­ráð­herra fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokk­inn. 

Sigurður Ingi Jóhanns­son verður sam­göngu­ráð­herra og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Willum Þór Þórsson verður for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis.

Kynja­hlut­fall í rík­is­stjórn­inni er körlum í hag, þeir eru sex en kon­urnar fimm.

Páll Magnússon aftur ósáttur

Hjá Sjálf­stæð­is­flokki halda flestir ráð­herrar sætum sínum. Sigríður Andersen verður áfram dóms­mála­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir iðn­aðar- og ferða­mála­ráð­herra, en Kristján Þór Júl­í­us­son fer í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið. Þá verður Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, líkt og hann var fram til síð­asta árs.

Svo virð­ist sem tveir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu afar ósáttir. Jón Gunn­ars­son, frá­far­andi sam­göngu­ráð­herra, yfir­gaf þing­flokks­fund áður en honum lauk og fór út um bak­dyr. 

Páll Magn­ús­son, fyrsti þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis, lýsir óánægju sinni á Facebook. „Í annað sinn á innan við ári hefur for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins nú gengið fram­hjá Suð­ur­kjör­dæmi þegar kemur að ráð­herra­skipan í rík­is­stjórn sem flokk­ur­inn á aðild að. Þetta ger­ist þrátt fyrir að kjör­dæmið sé annað höf­uð­vígi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á land­inu. Ég mót­mælti því harð­lega í sam­tali við for­mann­inn í morgun að hlutur kjör­dæm­is­ins skuli þannig vera fyrir borð bor­inn og til­kynnti honum að af þess­ari ástæðu gæti ég ekki stutt þann ráð­herra­lista sem hann lagði fyrir þing­flokk­inn. Áréttað skal að ég greiddi atkvæði með stjórn­ar­sátt­mál­anum og styð rík­is­stjórn­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár