Ásmundur biðst afsökunar - var „argur og þreyttur“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks neit­aði að gefa upp akst­urs­greiðslur sem hann þiggur frá rík­inu og kvart­aði undan kostn­aði við lög­fræð­inga Rauða kross­ins. Hann biðst nú afsök­unar.

Ásmundur biðst afsökunar - var „argur og þreyttur“

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, biðst afsök­unar á orðum sínum um kostnað við lög­fræð­inga Rauða kross­ins vegna hæl­is­um­sókna.

Ásmundur svar­aði fyrr í dag spurn­ingu Frétta­blaðs­ins um akst­urs­greiðslur, sem hann þiggur, með því að kvarta undan að ekki væri verið að fjalla um kostnað vegna hæl­is­um­sókna. 

„Ég var afar illa fyr­ir­kall­aður í við­tali við Frétta­blaðið í gær. Viðtal sem ég átti ekki að taka undir þeim kring­um­stæðum, argur og þreyttur,“ segir Ásmundur, sem neit­aði að svara spurn­ingum Frétta­blaðs­ins um akst­urs­greiðslur sem hann þiggur og spurði á móti: „Þið eruð ekki að spyrja hvað lög­fræð­ing­arnir frá Rauða kross­inum eru að fá fyrir að senda bréf til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna hæl­is­leit­enda, er það? Þið viljið ekki að þeir missi spón úr aski sínum?“

Ásmundur hefur ítrekað kvartað undan kostn­aði við hæl­is­leit­endur og hefur verið bent á að tölur og stað­reyndir sem hann nefnir í því sam­hengi stand­ast ekki skoðun.

Stundin fjall­aði um akst­urs­greiðslur til þing­manna í haust og leynd yfir þeim, en þar vildi Ásmundur ekki heldur svara um end­ur­greiðslur sem rynnu í hans vasa. Enn er leynd yfir greiðslum til þing­manna. Aðeins 16 af 63 þing­mönnum svör­uðu Stund­inni um akst­urs­greiðslur sínar. Samkvæmt núver­andi kerfi geta þing­menn keyrt á eigin bif­reiðum um kjör­dæmi sitt og inn­heimt kostnað úr rík­is­sjóði. Kostn­að­ur­inn er meiri en af því að leigja bíla­leigu­bíla, þegar þurfa þykir. Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir upp­lýs­ing­arnar einka­hagi.

Í kvöld birti Ásmunu­dur afsök­un­ar­beiðni á Facebook: „Síðustu tveir dagar hafa verið mér þungir í skauti og ég var afar illa fyr­ir­kall­aður í við­tali við Frétta­blaðið í gær. Viðtal sem ég átti ekki að taka undir þeim kring­um­stæðum, argur og þreyttur. Það var ávísun á vonda útkomu og ég bið Rauða kross­inn og starfs­fólk hans afsök­unar á orða­lagi sem aldrei átti að vera og stofn­unin á ekki skilið. Fer ekki í frek­ari útskýr­ingar á því eða umkenn­inga­leik.

„Í dag steig ég þung skref sem varð að stíga“

Í dag steig ég þung skref sem varð að stíga en von­andi fennir fljótt í þau spor og það birti að nýjum degi með nýjum tæki­færum. 

Ég er bara mann­legur og breiskur maður sem geri mis­tök en get líka beðið afsök­unar á þeim eins og ég geri nú. Ég vona að það birti á nýjum degi og hann lygni eftir storm­inn.“

Ásmundur hefur enn ekki svarað um þær akst­urs­greiðslur sem hann hefur þegið. „Ég er bara mjög dug­legur að sækja mitt kjör­dæmi,“ sagði hann við Stundina í sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár