Kvótakerfið: Félag Þorsteins Más græddi sex milljarða í fyrra og á 35 milljarða eignir

Þor­steinn Már Bald­vins­son á eignir upp á 35 millj­arða króna í eign­ar­halds­fé­lagi sínu. Arður hefur ekki verið greiddur úr félag­inu á liðnum árum en félagið kaupir hluta­bréf í sjálfu sér af Þor­steini Má og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Helgu S. Guð­munds­dóttur. Staða félags­ins sýnir hversu efn­aðir sumir útgerð­ar­menn hafa orðið í núver­andi fyr­ir­komu­lagi á kvóta­kerf­inu.

Kvótakerfið: Félag Þorsteins Más græddi sex milljarða í fyrra og á 35 milljarða eignir
Fjórir millj­arðar út úr félag­inu Eign­ar­halds­fé­lag Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, á eignir sem eru 35 millj­arða króna virði og skuldar ekk­ert. Þor­steinn og Helga Guð­munds­dóttir hafa fengið 4 millj­arða greidda út úr félag­inu á liðnum árum. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Eign­ar­halds­fé­lag Sam­herja­for­stjór­ans Þor­steins Más Bald­vins­sonar og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Helgu S. Guð­munds­dóttur, hagn­að­ist um ríf­lega sex millj­arða króna í fyrra. Fyr­ir­tækið, Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf., á nú ríf­lega 35 millj­arða króna eignir umfram skuldir. Félagið skuldar rúm­lega eina milljón króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi eign­ar­halds­fé­lags­ins fyrir árið 2016 sem sam­þykktur var í lok sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þor­steinn Már er for­stjóri og stærsti eig­andi Samherja, langstærsta og öfl­ug­asta útgerð­ar­fyr­ir­tækis sem verið hefur til á Íslandi. Samherji er ekki bara stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki Íslands heldur er það stórt fyr­ir­tæki á Evrópu- og heims­vísu og er með starf­semi í fjöl­mörgum löndum. Rekstur fyr­ir­tæk­is­ins hefur gengið ótrú­lega á síð­ustu árum. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist um 14,3 millj­arða í fyrra og hefur hagn­ast um sam­tals 86 millj­arða króna frá árinu 2011.  

Fjórir milljarðar til Þorsteins og Helgu

Hluta­bréf Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins ehf. í Samherja eru bók­færð á tæp­lega 29 millj­arða króna en auk þess á félagið hluta­bréf …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kvótinn

FréttirKvótinn

Sagan af vél­stjór­anum í Eyjum sem gagn­rýndi kvóta­kerfið: „Ég var tal­inn óalandi og óferj­andi.“

Stærsta útgerð­ar­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, Ísfé­lagið stendur á tíma­mótum eftir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir færði eign­ar­haldið að mestu yfir á syni sína og skráði félagið á markað. Völd útgerð­ar­innar í Eyjum eru mikil og segir fyrr­ver­andi starfs­maður Ísfé­lags­ins, Árni Marz Frið­geirs­son, sögu af því þegar honum var sagt upp vegna greinar sem hann skrif­aði í DV um kvóta­kerfið.
InnlentKvótinn

Fyrrum Alþings­maður vill rót­tækar breyt­ingar: „Búið að rústa mörgum sveit­ar­fé­lögum“

Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, telur að Sam­fylk­ingin geti hjálpað sjó­mönnum. Næst­kom­andi föstu­dag verður hald­inn fundur um stjórn fisk­veiða á Íslandi á Kaffi Catalínu og hefst fund­ur­inn klukkan 17:00. Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, verður einn af frum­mæl­endum fund­ar­ins en ásamt því að hafa verið Alþing­is­maður er Grétar þaul­vanur skip­stjóri. Mannlíf heyrði í Grétari til að...
InnlentKvótinn

Gunnar Smári hjólar í útgerð­irnar og lyg­ina: „Meira og minna einka­vina­vætt til auð­hringja“

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, tekur saman skipt­ingu útflutn­ings­verð­mæta loðnu­kvót­ans í nýjum pistli sínum. Þar fer hann yfir skipt­ingu útflutn­ings­verð­mæt­anna milli útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sem eiga kvót­ann. Nú stefnir í stóra loðnu­ver­tíð, eftir loðnu­brest síð­ast­liðin tvö ár. Komandi ver­tíð hefur verið metin á 50-70 millj­arða króna í útflutn­ings­verð­mæti, sem eru um 1,5-2,0 pró­sent af lands­fram­leiðsl­unni. Gunnar Smári fer yfir skipt­ing­una:...

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár