Útgerðin styrkti Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn um 50 milljónir á síðasta kjörtímabili
Handhafar fiskveiðikvóta styrktu stjórnmálaflokka um rúmar 16 milljónir fyrir þingkosningarnar 2016 þegar mikil og hávær umræða stóð yfir um uppboð fiskveiðiheimilda og gjaldtöku í sjávarútvegi.
Sjálfstæðisflokkurinn er sá stjórnmálaflokkur sem fékk veglegustu styrkina frá handhöfum fiskveiðikvóta í aðdraganda Alþingiskosninganna 2016. Þetta má lesa úr útdráttum úr ársreikningum stjórnmálaflokka sem Ríkisendurskoðun birti í dag.
Alls styrktu kvótahafar stjórnmálaflokka um rúmar 16 milljónir árið 2016, en mikil og hávær umræða stóð þá yfir um uppboð fiskveiðiheimilda og gjaldtöku í sjávarútvegi.
Aðeins tveir stjórnmálaflokkar töluðu gegn hvers kyns hugmyndum um uppboð fiskveiðiheimilda fyrir síðustu þingkosningar, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn. Sömu tveir flokkarnir fengu hæstu styrkina frá þeim fyrirtækjum sem hafa yfir fiskveiðiheimildum að ráða þetta ár.
Hér má sjá yfirlit yfir fjárstyrki útgerðarfélaga til stjórnmálaflokka árið 2016:
Fyrirtæki
Sjálfstæðisflokkurinn
Framsóknarflokkurinn
Vinstri græn
Samfylkingin
Viðreisn
Samtals
Brim hf
400.000
400.000
400.000
400.000
400.000
2.000.000
Geir ehf
100.000
100.000
Gjögur hf
300.000
400.000
700.000
Guðmundur Runólfsson hf
400.000
400.000
Gullberg ehf
250.000
100.000
250.000
600.000
Gunnvör hf
300.000
300.000
HB Grandi hf
400.000
400.000
400.000
400.000
400.000
2.000.000
Hraðfrystihús Hellissands hf
200.000
200.000
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf
400.000
400.000
Hvalur hf
400.000
400.000
800.000
Ísfélag Vestmannaeyja hf
400.000
400.000
800.000
Kaupfélag Skagfirðinga
250.000
250.000
500.000
Loðnuvinnslan hf
400.000
400.000
400.000
1.200.000
Oddi hf
50.000
50.000
Ögurvík ehf
300.000
300.000
Rammi hf
400.000
100.000
500.000
Saltver ehf
400.000
400.000
Samherji Ísland ehf
400.000
400.000
400.000
1.200.000
Síldarvinnslan hf
400.000
400.000
400.000
1.200.000
Skinney-Þinganes hf
350.000
400.000
750.000
Soffanías Cecilsson hf
25.000
25.000
Vinnslustöðin hf
200.000
200.000
Vísir hf
400.000
400.000
800.000
Þorbjörn hf
400.000
400.000
800.000
Þórsnes ehf
100.000
100.000
Samtals:
6.825.000
4.800.000
2.050.000
1.850.000
800.000
16.325.000
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 6,8 milljónir frá kvótahöfum sem er litlu hærri upphæð en árið á undan. Alls hafa handhafar fiskveiðikvóta þannig styrkt flokkinn um 27 milljónir frá árinu 2013.
Framsóknarflokkurinn fékk 4,8 milljónir og hefur samtals fengið 22,3 milljóna styrki frá kvótahöfum frá 2013. Hér má sjá yfirlit yfir styrki útgerðarfélaga til Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins á árunum sem flokkarnir sátu í ríkisstjórn, 2013 til 2016.
Framlög kvótahafa til Sjálfstæðisflokksins frá 2013:
Fyrirtæki
2013
2014
2015
2016
Samtals
Auðbjörg ehf
100.000
100.000
Bárður SH 81 ehf
10.000
10.000
Bergur ehf
50.000
250.000
300.000
Brim hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Bylgja ehf
50.000
50.000
100.000
Dala-Rafn ehf
50.000
100.000
150.000
Einhamar Seafood ehf
200.000
200.000
Eskja hf
400.000
400.000
Frár ehf
50.000
50.000
100.000
Frosti
20.000
20.000
Gjögur hf
400.000
400.000
400.000
300.000
1.500.000
GPG Seafood ehf
100.000
100.000
Guðmundur Runólfsson hf
400.000
300.000
400.000
1.100.000
Gullberg ehf
200.000
250.000
250.000
700.000
HB Grandi hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Hraðfrystihús Hellissands hf
200.000
200.000
200.000
200.000
800.000
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Huginn ehf
400.000
250.000
650.000
Hvalur hf
400.000
400.000
400.000
1.200.000
Ísfélag Vestmannaeyja hf
400.000
300.000
400.000
400.000
1.500.000
Kaupfélag Skagfirðinga
200.000
200.000
350.000
250.000
1.000.000
KG Fiskverkun ehf
200.000
200.000
400.000
Narfi ehf
50.000
50.000
Nesver
10.000
10.000
Oddi hf
50.000
50.000
50.000
50.000
200.000
Ós ehf
100.000
80.000
180.000
Rammi hf
400.000
400.000
400.000
1.200.000
Runólfur Hallfreðsson ehf
30.000
30.000
Saltver ehf
300.000
400.000
700.000
Samherji Ísland ehf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Síldarvinnslan hf
200.000
400.000
400.000
1.000.000
Skinney-Þinganes hf
150.000
150.000
150.000
350.000
800.000
Soffanías Cecilsson hf
100.000
200.000
25.000
25.000
350.000
Stálskip ehf
150.000
150.000
Stormur Seafood ehf
100.000
100.000
Vinnslustöðin hf
400.000
400.000
200.000
200.000
1.200.000
Vísir hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Þorbjörn hf
400.000
300.000
400.000
1.100.000
Þórsnes ehf
100.000
100.000
100.000
300.000
Ögurvík hf
300.000
300.000
300.000
300.000
1.200.000
Samtals
7.100.000
6.850.000
6.125.000
6.825.000
26.900.000
Framlög kvótahafa til Framsóknarflokksins frá 2013:
Fyrirtæki
2013
2014
2015
2016
Samtals
Auðbjörg ehf
50.000
50.000
Brim hf
400.000
400.000
400.000
1.200.000
Einhamar Seafood ehf
400.000
300.000
700.000
Eskja hf
400.000
400.000
G.P.G. Fiskverkun ehf
200.000
200.000
Gjögur hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Guðmundur Runólfsson
50.000
50.000
Gullberg ehf
100.000
100.000
Hampiðjan hf
200.000
200.000
400.000
HB Grandi hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf
400.000
400.000
300.000
1.100.000
Huginn ehf
100.000
50.000
150.000
Hvalur hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Ísfélag Vestmannaeyja hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Jakob Valgeir ehf
100.000
100.000
Kaupfélag Skagfirðinga
400.000
400.000
800.000
Loðnuvinnslan hf
400.000
200.000
400.000
1.000.000
Marver ehf
87.750
87.750
Nesfiskur ehf
300.000
300.000
Ögurvík hf
300.000
150.000
100.000
550.000
Ós ehf
30.000
30.000
Rammi hf
100.000
250.000
350.000
Salting ehf
100.000
100.000
Samherji Ísland ehf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Sigurbjörg ehf
100.000
100.000
Síldarvinnslan hf
200.000
400.000
600.000
Skarfaklettur ehf
50.000
50.000
Skinney-Þinganes hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Soffanías Cecilsson hf
15.000
15.000
Stakkavík ehf
250.000
250.000
Vinnslustöðin hf
400.000
400.000
400.000
1.200.000
Vísir hf
400.000
400.000
400.000
1.200.000
Þorbjörn hf
400.000
400.000
400.000
400.000
1.600.000
Samtals
6.582.750
6.200.000
4.700.000
4.800.000
22.282.750
Lækkuðu veiðigjöldin og fengu 50 milljóna fjárstyrki frá útgerðinni
Styrkveitingar útgerðarfyrirtækjanna til umræddra flokka eru ekki nýjar af nálinni. Á árunum 2008 til 2011 fengu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn rúmlega tífalt hærri fjárframlög frá fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi en allir aðrir flokkar til samans. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þá 23 milljónir og Framsóknarflokkurinn 11 milljónir, en á sama tímabili beittu flokkarnir sér af hörku gegn því að hróflað yrði við íslensku fiskveiðistjórnunarkerfi og gjaldtöku í sjávarútvegi. Þetta birtist í eindreginni andstöðu við upphafleg áform vinstristjórnarinnar um innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda, upptöku sérstaks veiðigjalds og stjórnarskrárbreytingarnar sem miðuðu m.a. að lögfestingu þjóðareignarákvæðis um auðlindir.
Frá 2013, árinu sem flokkarnir settust saman í ríkisstjórn, hafa flokkarnir fengið tæplega 49 milljóna fjárstuðning frá handhöfum fiskveiðikvóta. Eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar sem tók við völdum árið 2013 var að breyta og lækka sérstaka veiðigjaldið og létta þannig um 40 milljarða króna fjárhagsbyrðum af útgerðinni yfir kjörtímabilið. Ríkisstjórnin vann einnig að lagabreytingum þar sem til stóð að gera langtímasamninga við handhafa kvótans og úthluta tíu stórum útgerðarfyrirtækjum 90 prósent alls makrílkvóta til sex ára án endurgjalds, en málin fengu ekki framgöngu á þinginu.
2 milljónir til Vinstri grænna
Eins og Stundin hefur áður greint frá fengu Vinstri græn 2 milljónir frá útgerðarfélögum í fyrra, sem er miklu hærri upphæð en flokkurinn fékk árin á undan, og Viðreisn aðeins 800 þúsund krónur.
Í gögnunum sem birtust á vef Ríkisendurskoðunar í dag kemur fram að Samfylkingin fékk 1,8 milljónir frá kvótahöfum en Píratar og Björt framtíð ekki neitt. Hér má sjá yfirlit yfir heildarframlög einstaklinga (þ.m.t. félagsgjöld) og lögaðila til stjórnmálaflokka í fyrra.
Almenningur hefur viðhaldið Stundinni og Kjarnanum með áskriftum og styrkjum síðan 2013. Með því að kaupa áskrift að Heimildinni styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Athugasemdir