„Nú reynir hann að klína sig utan í Miðflokkinn og Sigmund Davíð“

Sveinn Hjörtur Guð­finns­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík og sam­herji Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, vandar Birni Inga Hrafns­syni ekki kveðj­urnar. Björn lýsti því yfir í morgun að hann væri geng­inn til liðs við Mið­flokk­inn, nýja hreyf­ingu Sig­mundar.

„Nú reynir hann að klína sig utan í Miðflokkinn og Sigmund Davíð“

Sveinn Hjörtur Guð­finns­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík sem nýlega sagði sig úr flokknum og gekk til liðs við Mið­flokk­inn, nýtt fram­boð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, kann illa við að fjöl­miðla­mað­ur­inn Björn Ingi Hrafns­son seilist til áhrifa í Mið­flokknum. „Björn Ingi sér um sig sjálfur. Hann á ekk­ert erindi í stjórn­mál, hvað þá fjöl­miðla eins og sagan sýnir því miður,“ segir Sveinn í sam­tali við Stundina. 

Björn Ingi greindi frá því á Facebook í morgun að hann, og hópur í kringum hann sem und­ir­byggi nýtt borg­ara­lega sinnað fram­boð til Alþingis, hefði ákveðið að ganga til liðs við hreyf­ingu Sig­mundar Davíðs. 

Sveini Hirti líst ekki á blik­una. „Nú reynir hann að klína sig utan í Mið­flokk­inn og Sigmund Davíð. Hefur eng­inn spurt hve margir eru á bak­við Sam­vinnu­flokk­inn? Ég er næstum viss um að Bingi sé þar einn og eng­inn annar,“ skrif­aði Sveinn á Facebook í dag. 

„Ég hef unnið fyrir Björn Inga í kosn­ingum áður og veit hvernig hann vinnur. Ef hann heldur virki­lega að hans sé óskað í stjórn­mál í dag þá er því fljótt svarað – vertu úti!“

Sveinn segir jafn­framt að Björn Ingi sé að gera „sorg­lega til­raun“ til að „koma sér á blað - eins og fyrr á kostnað ann­arra“. „Meðan ég styð Mið­flokk­inn þá fær þessi maður varla kaffi­sopa. Sem gam­all dyra­vörður er minnsta mál að vísa honum út - aftur!“ Sveinn fjar­lægði færsl­una skömmu eftir að hún birt­ist.

Aðspurður seg­ist Sveinn ekki hafa ákveðið hvort hann bjóði sig sjálfur fram eða ein­beiti sér að gras­rót­inni í Mið­flokknum. Hann er bjart­sýnn á gengi hinnar nýju hreyf­ingar og bendir á að það segi ýmis­legt að á aðeins fjórum dögum sé flokk­ur­inn far­inn að mæl­ast með 7,3 pró­senta fylgi í í könn­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár