Geir Jón skrifaði meðmæli fyrir nauðgara sem hann rannsakaði

Geir Jón Þórisson, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á síð­asta kjör­tíma­bili og yfir­lög­reglu­þjónn í Reykja­vík til margra ára, skrif­aði með­mæli fyrir dæmdan kyn­ferð­is­brota­mann sem hann rann­sak­aði sjálfur sem lög­reglu­full­trúi í Vest­manna­eyjum.

Geir Jón skrifaði meðmæli fyrir nauðgara sem hann rannsakaði
Geir Jón Þórisson Var lög­reglu­full­trúi í Vest­manna­eyjum þegar nauðg­un­ar­mál kom upp. Veitti nauð­gar­anum síðar með­mæli fyrir upp­reist æru. Mynd: Pressphotos

Geir Jón Þórisson, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á síð­asta kjör­tíma­bili og yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til fjölda ára, skrif­aði með­mæli fyrir mann árið 1996 sem var dæmdur fyrir nauðgun í Vest­manna­eyjum árið 1989. 

Þetta kemur fram í gögnum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem Stundin fékk afhent eftir að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu að almenn­ingur ætti rétt á upp­lýs­ing­unum, þvert á afstöðu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis. 

„Hann lenti í þessu“

Geir Jón stað­festir við Stundina að hann hafi sjálfur komið að rann­sókn kyn­ferð­is­brota­máls­ins sem lög­reglu­full­trúi í Vest­manna­eyjum. „Ég rann­sak­aði málið á sínum tíma, það passar,“ segir hann.

Þegar Geir Jón skrif­aði með­mælin, sjö árum síðar, starf­aði hann hins vegar sem aðal­varð­stjóri hjá lög­regl­unni í Reykja­vík. 

„Á þeim tíma vott­aði ég hvernig mað­ur­inn hafði staðið sig eftir að hann lenti í þessu og afplán­aði sinn dóm,“ segir Geir Jón um mál hins dæmda kyn­ferð­is­brota­manns. „Hann bætti ráð sitt, sat inni í fang­elsi.“ Aðspurður hvað honum finn­ist um þetta í dag seg­ist hann ekk­ert hafa við málið að athuga.

Í með­mælum sínum um mann­inn tekur Geir Jón sér­stak­lega fram að hann hafi komið að máli manns­ins sem lög­reglu­full­trúi í Vest­manna­eyjum eftir að brotið var framið. 

Maðurinn nú reglusamur

Umræddur maður var 24 ára þegar dóm­ur­inn féll þann 19. des­em­ber 1989, og var honum gert að sæta tveggja ára fang­els­is­vist fyrir nauðgun sem hann framdi í Vest­manna­eyjum árið áður. Þá var hann dæmdur til að greiða þol­anda 300 þús­und króna skaða­bætur. 

Í með­mælum Geirs Jóns kemur fram að hann geti stað­fest að mað­ur­inn hafi staðið sig „mjög vel und­an­farin ár og miss­eri“. Geir seg­ist hafa haft „mikið með hans mál að gera“ þegar hann starf­aði sem lög­reglu­full­trúi í Vest­manna­eyjum.

Eftir að Geir flutti til Reykja­víkur hafi hann jafn­framt „fylgst mjög vel með honum“ og geti stað­fest að mað­ur­inn hafi tekið sig á og sé „reglu­samur í dag“. Maðurinn hlaut upp­reist æru að til­lögu dóms- og kirkju­mála­ráð­herra þann 1. októ­ber 1996. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
5
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár