Segir hug sinn hafa verið hjá þolendum en hunsaði óskir þeirra um svör

„Okkar hugur hefur ávallt verið með þeim sem hefur átt um sárt að binda,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Valhöll. Hann og sam­herjar hans huns­uðu hins vegar fyr­ir­spurnir þolenda og við­héldu leynd fyrir ger­endur.

Segir hug sinn hafa verið hjá þolendum en hunsaði óskir þeirra um svör
Bjarni í Valhöll Lýsingar for­sæt­is­ráð­herra á við­horfum sínum nú til þolenda sam­rým­ast ekki við­brögðum hans við beiðnum þeirra fyrr í sumar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í ræðu sinni á blaða­manna­fundi sem fram fór í Valhöll á fimmta tím­anum að hugur hans og rík­is­stjórn­ar­innar hefði ávallt verið með þeim sem hefðu átt um sárt að binda. Þá sagði hann að fólk hefði þurft að líða sál­ar­ang­ist vegna þess hvernig kerfið hefði talað til þess.

„Okkar hugur hefur ávallt verið með þeim sem hefur átt um sárt að binda. Sem hafa þurft að lifa sál­ar­ang­ist útaf allri umræð­unni og hvernig kerfið hefur talað til þessa fólks,“ sagði Bjarni.

Hins vegar liggur fyrir að bæði Bjarni Bene­dikts­son og dóms­mála­ráðu­neytið huns­uðu mán­uðum saman fyr­ir­spurnir þolenda og aðstand­enda þeirra um veit­ingu upp­reistar æru til kyn­ferð­is­brota­manns­ins Roberts Downey. 

Svaraði ekki kalli brotaþola og aðstandenda þeirra

Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir eins af brota­þolum Roberts, sendi Bjarna opið bréf í aðsendri grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu þann 22. júní síð­ast­lið­inn.

„Fyrst og fremst viljum við heyra rök núver­andi for­sæt­is­ráð­herra fyrir því vali sínu að veita einmitt þessum manni upp­reist æru en ekki öðrum. Og við hvetjum núver­andi dóms­mála­ráð­herra til að gera allt sem í hennar valdi stendur til að taka málið upp að nýju því það virð­ist hafa farið í gegn án þess að nokkur beri ábyrgð og eng­inn hafi unnið við það,“ skrif­aði Bergur sem fékk engin svör.

Þá reyndi dóttir Bergs, Nína Rún Bergs­dóttir, ítrekað að fá svör frá Bjarna við spurn­ingum sem brunnu á henni. Hún tagg­aði hann í tvígang á Facebook og óskaði eftir svörum án árang­urs. „Hann hefur ekki sýnt nein við­brögð eftir að ég tagg­aði hann í tveimur Facebook-færslum. Ég var nú ekki að búast við því þar sem hann hefur nú þegar sýnt að hann snýr baki við öllu sem honum finnst óþægi­legt, eins og kyn­ferð­is­of­beldi,“ sagði hún í við­tali við DV. 

Spurn­ingar hennar voru ein­faldar: „Af hverju vill hann ekki hlusta á okkur? Af hverju veitir hann manni sem var dæmdur fyrir að ræna æsku fimm ungra stúlkna og hefur verið kærður af þeirri sjöttu upp­reist æru og neitar að tjá sig um það? Hvað gerð­ist í þessu ferli? Af hverju er öll þessi leynd? Er eitt­hvað sem hann vill ekki að við komumst að?“ Þá sagði hún: „Maðurinn missti æruna við að brjóta á okkur. Bjarni ætti að sýna okkur þá virð­ingu og heið­ar­leika að svara spurn­ingum okkar. Að fá að vita hvað leiddi til þess að Robert Downey fengi upp­reist æru, hverjir skrif­uðu undir og afhverju, myndi þýða mikið fyrir mig og mína fjöl­skyldu og einnig gefa mér ein­hvers konar sál­arró.“

„Að fá að vita hvað leiddi til þess að Robert Downey fengi upp­reist æru, hverjir skrif­uðu undir og afhverju, myndi þýða mikið fyrir mig og mína fjöl­skyldu og einnig gefa mér ein­hvers­konar sál­arró“

Á þessum tíma héldu brota­þol­arnir að Bjarni Bene­dikts­son hefði sjálfur lagt fram til­lögu um upp­reist æru Roberts Downey, enda hafði hann gefið það skýrt til kynna í við­tali við frétta­stofu RÚV. „Nei, ég tók við nið­ur­stöðu úr ráðu­neyt­inu sem hafði fengið sína hefð­bundnu með­ferð,“ sagði hann þann 16. júní.

Það var ekki fyrr en löngu síðar, þegar leið­ara­höf­undur Frétta­blaðs­ins gagn­rýndi Bjarna, sem hann birti stöðu­upp­færslu á Facebook, varði hendur sínar og upp­lýsti um að það hefði ekki verið hann heldur Ólöf Nordal, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sem bar ábyrgð á því að Robert Downey var sæmdur óflekk­uðu mann­orði. Þetta kom þolend­unum í opna skjöldu, enda höfðu þær gagn­rýnt Bjarna um margra vikna skeið á grund­velli mis­vísandi upp­lýs­inga sem hann hafði sjálfur veitt í við­tali við RÚV.

Fund­ur­inn í ValhöllRáð­herrar og þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sátu á fremsta bekk ásamt frétta­mönnum.

 

Bjarni sagði tilfinningarnar ekki mega ráða för

Bjarni Bene­dikts­son og Brynjar Níelsson hafa verið gagn­rýndir harð­lega fyrir að sýna þolendum lít­ils­virð­ingu með ummælum sínum í fjöl­miðlum.

Bjarni sagði í við­tali við RÚV þann 16. júní síð­ast­lið­inn, þegar fjallað var um mál Roberts Downey, að mik­il­vægt væri að fólk sem hefði tekið út sína refs­ingu fengi aftur tæki­færi í líf­inu, óháð því hvers eðlis brotin væru. „Við getum ekki látið til­finn­ingar kannski ráða of miklu í þeim efnum. Með þessu er ég ekki að gera neinn mun á ein­stökum brotum eða ein­stak­lingum. Við viljum ein­fald­lega búa í sam­fé­lagi sem gerir ekki upp á milli fólks á grund­velli slíkra hluta þegar um borg­ara­leg rétt­indi er að ræða,“ sagði hann.

Þá hefur Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, látið hafa eftir sér í fjöl­miðlum að til séu verri brot en þau sem Robert Downey framdi. Jafn­framt vís­aði hann því á bug að afhjúpun á veit­ingu upp­reistar æru til Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, manns sem var dæmdur fyrir að brjóta gegn stjúp­dóttur sinni nær dag­lega í tólf ár en fékk upp­reist æru í fyrra, myndi ýta á eftir breyt­ingum á laga­á­kvæðum um veit­ingu upp­reistar æru.

Beittu sér fyrir leynd

Brynjar, rétt eins og dóms­mála­ráðu­neytið, lagð­ist ein­dregið gegn því að þolendur og aðrir fengju að sjá gögnin í máli Roberts. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst  hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu á mánu­dag að almenn­ingur ætti laga­legan rétt til aðgangs að gögn­unum með vissum tak­mörk­unum.

Jafn­framt vakti athygli þegar sjálf­stæð­is­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, aðrir en Brynjar, gengu út af fundi nefnd­ar­innar þegar rætt var um mál Roberts Downey. Þetta var gert á grund­velli laga­túlk­unar dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins sem úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hafn­aði síðar.

Jafn­framt reyndi Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, að koma í veg fyrir að rædd yrði um mál hans á opnum fundi nefnd­ar­innar. Brást dóms­mála­ráð­herra illa við þegar Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata bar upp spurn­ingar um mál Roberts og vildi ekki svara þeim. 

Bjarni Bene­dikts­son hefur nú lýst því yfir á blaða­manna­fundi að hugur hans og stjórn­ar­meiri­hlut­ans hafi alltaf verið með þolend­unum. Hins vegar útskýrði hann ekki hvernig stóð á því að hann huns­aði fyr­ir­spurnir brota­þola. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár